Vikan


Vikan - 06.07.1939, Qupperneq 9

Vikan - 06.07.1939, Qupperneq 9
Nr. 27, 1939 V IK A N 9 Nágrönríum frú Simmons er enn í fersku minni hin auðvirðilega fram- koma Simmons gagnvart konu sinni. Nágrannakonurnar höfðu lengi skoðað hann sem fyrirmyndar eiginmann, og vissulega var frú Simmons ákaflega sam- vizkusöm eiginkona. Hún stritaði og þrælk- aði fyrir honum miklu meira en nokkur eiginmaður gat með réttu krafizt. Það gátu þær allar borið vitni um. Og þetta voru þakkirnar, sem hún fékk. Ef til vill hafði hann allt í einu orðið brjálaður. Áður en hún giftist Simmons hafði hún verið ekkja eftir herra Ford. Ford hafði fengið atvinnu sem kyndari á gömlum flutningadalli, sem svo fórst með allri áhöfn. Frú Ford var sannfærð um, að þetta hefði verið refsing fyrir margra ára þrjózku og þvergiðingshátt, sem náð hefði hámarki sínu, þegar hann, duglegur vél- stjóri, hafði ráðið sig sem kyndara. Hún lifði 12 ár í barnlausu hjónabandi sem frú Ford, og hún var enn bamlaus sem frú Simmons. En Simmons var álitinn heppinn, að hafa eignazt svona duglega konu. Hann var tré- smiður, í meðallagi góður, en ekki verald- arvanur, sem hann langaði þó til að vera. Það var ómögulegt að segja, hvernig farið hefði fyrir Tommy Simmons, ef engin frú Simmons hefði verið til að gæta hans. Hann var gæflyndur og rólegur maður með barnslegt andlit og mjúkan gisinn skegg- hýung á efri vör. Hann hafði enga lesti (jafnvel pípuna hafði hann lagt á hilluna, þegar hann giftist) og frú Simmons hafði ræktað , hjá honum ýmsar dyggðir. Hann gekk hátíðlega til kirkju á hverjum sunnu- degi með háan hatt og lagði einn penny á samskotadiskinn, sem hann hafði til þess fengið af vikukaupinu. Því næst burstaði hann vandlega sparifötin sín, undir eftir- liti frú Simmons. Á laugardögum hreins- aði hann hnífana, gaflana, stígvélin, pott- ana og gluggana með stakri samvizkusemi og þolinmæði. Á þriðjudagskvöldum fór hann með öll föt til pressunar. Á laugar- dagskvöldum fór hann með frú Simmons í búðir til að bera fyrir hana pakkana. Kostir frú Simmons voru alkunnir og óteljandi. Hún var dásamlegur fjárhalds- maður. Hver einasti penny af þrjátíu og sex eða þr játíu og átta shillinga vikukaupi Tommy var nýttur til hins ýtrasta, og Tommy dirfðist aldrei að geta sér til hve mikið hún legði fyrir af því. Þrifnaður hennar var óvéfengjanlegur. I hvert skipti, sem Simmons kom heim, tók hún á móti honum í útidyrunum, og skipti þar um skó á honum, en hann vóg salt á öðrum fæti á meðan. Hún gerði þetta af því að hún og konan, sem bjó niðri skiptust á að þvo ganginn og stigann, og af því að hún átti sjálf stigadregilinn. Hún hafði vakandi auga á honum á meðan hann var að þrífa sig til eftir vinnuna, að hann setti ekki bletti í veggina, og ef það kom fyrir, þrátt fyrir árvekni hennar, þá hafði hún lag á að gera honum það minnisstætt og sýna hon- um fram á, hvað hann væri vanþakklátur Óþokkinn hann Simmons. og eigingjarn. I fyrstu hafði hún alltaf farið með honum og keypt handa honum tilbúin föt — því að karlmenn voru þessar dauðans rolur, og kaupmennirnir gætu far- ið með þá eins og þeir vildu. En hún breytti fljótt um til batnaðar. Hún rakst á mann, sem seldi ódýra tauafganga á götuhorni og datt þá skyndilega í hug, að hún gæti sjálf saumað fötin á Simmons. Hún var fljót að ákveða sig — það var einn af kost- um hennar — og sama kvöldið settist hún við að sauma honum föt úr afgöngunum eftir sniði af gömlum fötum. Og það sem meira var: á sunnudag voru þau búin, Simmons færður í þau og sendur af stað í kirkju áður en hann hafði náð sér eftir undrunina. Þau fóru ekki sem bezt. Hann fann, að buxnaskálmarnar voru strengd- ar framan á leggjunum, en pokuðu aftan á hælunum, og þegar hann settist urðu undir honum harðir saumar og fellingar. Vestiskraginn kitlaði hann í hnakkann, en jakkakraginn var eins og beinn streng- ur á milli axlanna, og neðan við mittið safnaðist efnið saman í ríkulegar felling- ar. Hann vandist þessum óþægindum með tímanum, en hann gat aldrei vanizt ertni starfsbræðra sinna, því að frú Simmons hélt áfram fatasaumunum og sneið alltaf eftir þeim fötum, sem hún hafði saumað næst á undan- svo að þau einkenni, sem höfðu orðið til af tilviljun, öðluðust fast form og urðu jafnvel enn greinilegri, þegar frá leið. Það var þýðingarlaust, þó að Simmons gæfi í skyn að hann kærði sig ekki um, að hún oftæki sig á vinnunni, það væri vont fyrir augun að sauma, og að nýr skraddari væri kominn í Mile End Road, hann væri mjög sanngjarn-. — Ja, svei, hreytti hún út úr sér, — skárri er það nú nærgætnin, þarna siturðu og lýgur upp í opið geðið á konunni þinni, Thomas Simmons, eins og ég geti ekki lesið hug þinn eins og opna bók. Já ekki vantar umhyggjuna fyrir velferð minni, á meðan þú getur óhindraður fleygt peningum eins og skít í svikula skraddara, en ég verð að þræla mér út til að spara einn lúsugan penny og fæ svo þetta í þokkabót. Maður skyldi halda, að þú getir tínt peninga upp af götunni, og ég býst við, að betur yrði hugsað til mín, ef ég lægi í rúminu allan Smásaga eftir A. MORRISON. daginn, eins og sumir mundu gera, það verð ég rétt að segja ? Thomas Simmons minnt- ist því ekki á það framar, maldaði ekki einu sinni í móinn þegar hún ákvað að klippa hann sjálf. Þannig liðu árin hægt og breytingalaust. Svo eitt sinn á sólbjörtu sumarkvöldi tók frú Simmons körfu á handlegginn og fór út til að kaupa í matinn. Simmons skyldi hún eftir einan heima. Hann þvoði og gekk frá tebollunum, og fór svo að hugsa um buxur, sem séð höfðu dagsins Ijós þá um morguninn og héngu á bak við forstofu- hurðina. Þarna héngu þær, saklausar í skapnaði sínum, með styttri skálmum, lengri bol og dæmalausara sniði en nokkr- ar buxur, sem hann hafði átt áður. Á meðan hann horfði á þær, skaut örlítil ósvífin erfðasynd upp kollinum í huga hans. Hann skammaðist.sín auðvitað fyrir hana, því að hann vissi vel í hvaða þakk- lætisskuld hann stóð við konu sína fyrir þessar buxur, og margt annað. En hún var þarna syndarskömmin og það var erfitt að þagga niður í henni, þegar hún var að minna hann á allar þær háðglósur, sem dynja mundu á honum í fyrsta skipti, sem hann kæmi í þessum buxum á verkstæðið. — Fleygðu þeim í ruslakassann! sagði erfðasyndin að lokum, — þær eru ekki til annars hæfar. Simmons snéri sér undan af viðbjóði á mannvonzku sjálfs sín, og sem snöggvast datt honum í hug að þvo tebollana aftur til að stæla sig gegn syndinni. Hann hætti þó við það, og fór inn í bakherbergið, en þá sá hann af loftskörinni, að útidyrahurð- in stóð opin. Börnin niðri höfðu sennilega skilið hana eftir opna. Opin útidyrahurð var eitt af því, sem frú Simmons gat ekki þolað, það var skrælingjaháttur. Simmons fór því niður, svo að hún yrði sér ekki reið þess vegna, þegar hún kæmi aftur. Um leið og hann lokaði hurðinni leit hann út á götuna. Á gangstéttinni rétt utan við dyrnar stóð maður og horfði með varkárni og for- vitnislegu augnaráði á dyrnar. Hann var sólbrenndur og veðurbarinn í andliti, með hendurnar á kafi í buxnavösunum og koll- háa ullartopphúfu á höfðinu, eins og sjó- menn nota í landi. Hann læddist einu skrefi nær dyrunum. — Frú Ford er ekki heima, er það? spurði hann. Simmons glápti á hann stundarkorn og sagði svo: — Ha? — Frú Ford, eins og hún hét — en núna heitir hún frú Simmons, er það ekki? Hann gaut augunum lymskulega um leið og hann sagði þetta. Simmons hvorki skildi né geðjaðist að þessu augnaráði. — Nei, hún er ekki heima núna, sagði Simmons. — Þú ert ekki maðurinn hennar, er það? — Jú. Maðurinn tók út úr sér pípuna og glotti lengi. — Svei mér ef þú ert ekki einmitt af því sauðahúsinu, sem henni fellur bezt. Hann glotti aftur. En þegar hann sá, að

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.