Vikan


Vikan - 06.07.1939, Side 22

Vikan - 06.07.1939, Side 22
22 VIKAN Nr. 27, 1939 Sigurður Pálsson, enskukennari í Menntaskólanum á Akureyri, er maður orðheppinn og sögufróður. Segir hann oft hinar skemmtilegustu sögur — og bregð- ur hann þá oft ýkjukenndum blæ yfir veru- leikann, en oftast er það aðeins græsku- laust gaman. Einhverju sinni gat Sigurður þess í enskutíma í 5. bekk, að það væru einkenni- leg álög á útvarpinu, að þeir, sem stund- uðu þar kennslu, væru oftast lélegir í ensku. Að svo mæltu tók hann upp mann að nafni Jón Gunnlaugsson. Las hann um stund, unz Sigurður sagði að nóg væri komið. — Þagði Sigurður þá tímakorn, en mælti síðan: — Þér ættuð að komast að útvarpinu, Jón minn. * Ein vinsælasta saga Sigurðar mun samt vera um hrútinn. Er hún sjálfsagt til í mörgum útgáfum frá höfundarins hendi. Fer hér á eftir ein útgáfan: Sigurður var eitt sinn á ferð frá Hnífs- dal og inn á ísafjörð. Niðdimm þoka var, og sást ekki handa skil. — Þegar hann kom inn í hlíðina fyrir utan Isaf jörð, vissi hann eigi fyrr til en einhver ófreskja réðst að honum. Urðu nú harðar sviptingar, en þeim lauk svo, að Sigurður henti illvætt- inni út á sjó, og hélt síðan áfram ferð sinni, sem ekkert hefði ískorizt. En dag- inn eftir fannst dauður hrútur í fjörunni. — En til allar hamingju, sagði Sigurð- ur, — tók hrútinn út á næsta flóði, því samkvæmt enskum lögum er ekki hægt að dæma mann fyrir morð, nema líkið sé lagt fram í réttinum. # Sigurður stundaði nám í Gagnfræða- skólanum á Akureyri, þegar hann var ungur. — Bjó hann í heimavistinni. Tó- baksreykingar voru stranglega bannaðar inni í skólanum, en til allrar óhamingju reykti Sigurður. — Einhverju sinni, segir Sigurður, — langaði mig til þess að fé mér reyk. — Tók ég því stól og setti fyrir dyrnar, og hugðist verja öllum inngöngu. — Kveikti ég því næst í sigarettu og settist í stól- inn. Reykti ég nú í ró og næði um stund. En allt í einu hrökk ég við sem eldingu hefði slegið niður. Að baki mér stóð skóla- meistari og klappaði mér á öxlina. Hurð- in opnaðist nefnilega út úr herberginu. # Blaðsöludrengur mætti Sigurði skáldi frá Arnarholti í Austurstræti og bauð honum Bílvísumar til kaups. En Sigurð fýsti ekki að kaupa bókina, pataði frá sér og sagði: — Nei, nei, góði minn. Ég get ort sjálf- ur, ef ég vil. 20. krossgáta Vikunnar. Stjarna. — 18. Fátæka. — 21. Heldur hátíðlegt. — 22. A kerti. — 23. Vesæl. — 25. Ótti. — 26. Ur- gangur. — 27. Rafleiðandi efni. — 29. Fyrir utan. — 32. Handsama. — 34. Mannsnafn. — 36. Stór- anfugl. — 39. Kvenm.nafn, þolf. — 41. Lík. — 42. — kaffi. — 44. Verðbréf. — 47. Mögnuð. — 49. Æða. — 51. Skeyti. -— 52. Tak. — 53. 1 skáld- skap. — 55. Tóntegund. — 57. Versna. — 59. Bömin. — 61. Lofttegund. — 62. Ritföng, eintala. — 65. Samkunda. — 66. Hreinsuð (fom ending). — 68. Batnaðar. — 70. Matur. — 71. Gjöf. — 73. Samræður. — 75. Sjór. — 76. Skaut. — 78. Deild. — 79. Grískur bókstafur. 80. Evrópískt forskeyti. Lóðrétt: 1. Hraustur. — 2. Slá bjarma á. — 3. Borði. — 4. = 20. lárétt. — 5. Bílstjóra. — 6. Megna. — 7. Beygingarending. — 8. Jörð. — 9. Grasnibba. — 10. Drykkur, eignarfall. — 11. Skera hár. — 12. Islenzkur matur, þáguf. — 15. Vik. — 17. Lárétt: 1. Mikill. — 8. Sýslanir. — 13. Drepa. — 14. llát. — 15. Hægindi. — 16. Hugsun. — 17. Hvílist. — 18. Sjáðu. — 19. Koma fyrir. — 20. Iþróttafé- lag. — 21. Fantur. — 22. Veiðitæki. -— 24. Forsetning. — 25. Hár. — 26. Of lítill. — 28. Narta. — 30. Huglaus. — 31. Virðingu. ■— 33. Strjúka. — 35. Samstafa. — 37. Höfuðfat. — 38. llát. — 40. Alþjóðlegt andstæðufor- skeyti. — 43. Tveir eins. ■— 45. Bun- aði. ■— 46. Óska. —- 48. Tónn. — 50. Sleit. — 52. Haugar. — 54. Sár. ■— 56. Dóttir Labans. — 58. Höfuðborg. •— 60. Strengur. — 62. Skrauti. ■— 63. Sprakk sá sjötti á. — 64. Ögn. — 66. Halt. — 67. Tveir eins. — 69. Sól. — 70. Ögn. — 71. Tveir samstæðir í stafrófinu. — 72. Upphaf. — 74. Þrir eins. — 75. Húð. — 76. A kjólum. — 77. Borðandi. — 79. Litlir flækingar. — 81. Brydda. -— 82. Stefna Helga Péturss. KANSLARINN I HVÍTU HÖLLINNI. Framh. af bls. 22. þangað til ég fluttist til Akureyrar, haust- ið 1921, og tók þar við stöðu Stefáns heit- ins skólameistara. Ég hafði enga löngun né metnað til að gerast skólastjóri, og nauðugur fór ég norður, — lét tilleiðast fyrir þrábeiðni nokkurra norðan-þing- manna, og svo af því, að ég gerði mér vonir um betri fjárhag en raun hefir orð- ið á. Þó er ég engan veginn metnaðarlaus maður. — Þér ættuð þó ekki að þurfa að sjá eftir því, að þér fluttuð til Akureyrar? — Ef til vill ekki. Um gagn það, sem staðið hefir af ferð minni norður, eða þá gæfu, sem ég hefi af henni haft, spyr ég eins og síra Matthías í eftirmælum eftir grannprest sinn, síra Jakob í Saurbæ: Hvert var það gagn, sem við gerðum? Guð veit það, Jakob. — Trúið þér á guð? — Nei, því miður geri ég það ekki. Ég er enginn trúmaður, en legg mikið upp úr því, að hver fái að hafa sína trú óáreitt- ur af öðrum. Frelsið er hverjum fyrir mestu, og sjálfsforræðið tel ég þá menn- ingarnauðsyn, sem menn geta bezta öðlast. Ef það ætti fyrir mér að liggja, að fá „lausn í náð“, og halda þó óskertu starfs- þreki, mundi ég verja tímanum til að gagn- rýna þau höft á einstaklingsfrelsi, sem mér virðist þjóðfélagið leggja ómaklega á þegna sína. Því sú er trú mín, að sönn menning geti aðeins þrifist með sem víð- tækustu athafnafrelsi og minnstum höml- um. — Það er svo ótal margt, sem ég vildi gert hafa, en svo hefir mér ekkert orðið úr verki. Árin líða — og lífið er stutt. Og það eina, sem máli skiptir er það, sem maður gerir, og þess vegna getur enginn sagt um það, hvort hann er gæfumaður eða ekki. Það er svo relativt. # Þannig óx einn þekktasti og áhrifamesti skólamaður þjóðarinnar úr grasinu, og þetta hefir hann lært á sextíu ára æfi. Þegar hann á sólbjörtum sumarmorgni röltir um gangstéttina framan við Mennta- skólann á Akureyri, eða hann gengur um á milli reynitrjánna í skólagarðinum og talar við sjálfan sig, verður manni á að líta um öxl og virða fyrir sér þenna kanzlara hvítu hallarinnar, fjölmennasta skóla landsins, þenna hæruskotna hálf- aldraða mann, sem stöðugt að að móta menn framtíðarinnar og ákveða þeim leiðir. Það er hans veraldlega vald. En sjálfur er hann hinn ötuh vizkuleitandi orðsins, hinn dreymni orsakaspyrjandi, sem hættir til að nema staðar og hugsa sér heiminn úr háfleygum setningum og hálfkveðnum vísum. Og kannske er það þess vegna, sem hann tekur dýpst og virðulegast ofan allra manna, sem ég þekki og minnist að hafa séð lyfta hatt- inum og varpa kveðjum á förnum vegi. S. B.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.