Vikan


Vikan - 14.09.1939, Qupperneq 3

Vikan - 14.09.1939, Qupperneq 3
Nr. 37, 1939 VIKAN 3 A HEIMLESÐ með Gullfossi. Eftir SIQURÐ EINARSSON, docent. að er sunnudagur 21. ágúst að kvöldi. Á rólegri lognöldu skríður Gullfoss norðvestur á við, á leið til íslands. Nú eig- um við aðeins sólarhrings siglingu eftir, og erum löngu farin að heyra útvarp Reykja- vík. Þrátt fyrir alla alúð skipstjóra og elskulegrar skipshafnar, og þrátt fyrir skemmtilegt samferðafólk, þá getur til- veran á skipsfjöl orðið ótrúlega daufleg. Maður nennir tæplega að lesa eða skrifa nema þeir allra duglegustu, og ég tilheyri því miður ekki þeim hópi. Einstaka kona hefir handavinnu með sér. Og þó að ég hafi ákaflega lítið vit á handavinnu, þá hefi ég það mikið, að mér sýnist henni ótrú- lega lítið miða áfram. Nokkrir hafa drifið sig upp í það að spila, en reka það með hangsi og semingi. Þegar svona stendur á, þá eru fréttir, hvaðan sem er úr heiminum, ákaflega kær- komin dægrastytting. Þær gefa manni um- ræðuefni næstu stundimar, og þeir vitru fara að spyrja og spá, en hinir, sem eru hálf lamaðir af góðum miðdegisverði og hálf meðvitaðri aðkenningu af sjóveiki, þeir halla sér útaf og láta sérkennilega vökuværð líða 1 brjóstið við skvaldrið úr hinum. Og svo kemur IJtvarp Reykjavík — fréttir frá útlöndum. Við þyrpumst nær hátalaranum, því að allir vilja hlusta, og við höfum öll haft það skyn af andrúms- loftinu þegar við létum frá landi og síð- ustu dagana, að hve nær sem er gæti verið mikilla tíðinda von. Og svo kemur frétt eins og „þjófur úr heiðskíru lofti“: Þýzka- land og Sovét-Rússland hafa gert með sér vináttu- og viðskiptasamning til 15 ára! Við lítum hvert á annað. Hið seinasta, sem við vissum, áður, var það, að hermála- sérfræðingar lýðræðisríkjanna Frakklands og Bretlands voru komnir til Moskva með alla pappíra sína. Okkur hafði skilizt, að Sovét-stjómin ætlaði að kíkja ofurlítið í þessi blöð af föðurlegum velvilja til þess að ganga úr skugga um það, að óhætt væri að trúa lýðræðisríkjunum fyrir lýðræðinu. Svo fannst manni, að allt mundi vera í lagi. Þannig höfðu blöðin talað. Og Sovét-stjómin kíkir í blöðin. Sér- fræðingar hennar laga gleraugu sín og at- huga vandlega. Það er stór fundur á fínu hóteli í Moskva. Herramir sitja saman og vinarorð og vindlareykur líður um stofuna, og allt er harla gott. Það er staðið upp, tekizt í hendur. Menn hneygja sig! Góða nótt! Morguninn eftir er tilkynnt, að Sovét- Rússland og Þýzkaland hafi gert með sér vináttu og „ekki árásarsamning“, og her- málafulltrúum Bretlands og Frakklands er kurteislega tilkynnt, að þeim sé frjáls för úr landi, hve nær sem er, ásamt öllum þeirra pappímm, hvort heldur yfir Norð- urlönd eða Miðevrópu. Annars muni Molo- toff gefa skýringu á þýzk-rússneska sátt- málanum áður en langt um líður. Og full- trúarnir bíða eftir skýringu, og Molotoff gefur skýringu. Við sitjum þarna í reykskálanum á Gull- fossi og hlustum á, og horfum hvert á annað með forvitnum og spyrjandi aug- um. Svo er fréttalestrinum lokið. En það verður ekkert skvaldur. Menn þegja. Ein- hvern veginn höfum við öll, hvert á sinn hátt, veður af því, að nú höfum við verið áheyrendur þeirra fágætu tíðinda, þegar veraldarsögunni er snúið við. Þetta gerist stundum á tíu ára fresti, stundum viku- lega, en langoftast með fjögur hupdruð ára millibili. Við hreyfum ekki kaffiboll- ana okkar. Það er óhugnanleg alvara að færast yfir hópinn, sem ekki er góð á sjó- ferð. En hver þrengingarstund á sinn spámann og svo fór hér. Ungur maður í hópnum yppir öxlum og lítur brosandi framan í okkur. — Það verður gaman að sjá Þjóðviljann á morgunn, segir hann. Skellihlátur um allan salinn, þrátt fyrir al- vöru augnabliksins. Og andspænis því að standa frammi fyrir nýju tímabili í ver- aldarsögunni, með óvænt örlög milljóna manna, þá höfum við þetta til að hressa okkur á og hlakka til: Það verður gaman að sjá Þjóðviljann! Og svo segja menn, að blaðaútgáfa sé ómerkilegur og þýðing- arlítill starfi. Ég neita því. En það er ekki til neins að láta hátíðlegar bollalegg- ingar fela fyrir sér staðreyndir. Og þessi þýzk-rússneski sáttmáli er nýr steinn, ný stífla, sem sett hefir verið í sjálfa elfi heimsrásarinnar, og öll viðburðarásin brotnar hvítfyssandi á henni. Boðaföllin út frá kinnungum Gullfoss á hinni rólegu Atlantshafsöldu eru eins og blævarblak í sefi, eða lognalda við fjörustein miðað við það allt og þau öfl, sem brýtur á þessu saklausa pappírsblaði. Og hvað er svo á þessu blaði. Sovét- Rússland og Þýzkaland gera með sér samning! Illkvittinn náungi, sem hlustar á fregnina, segir, að þegar að Sovét-Rúss- land fór að athuga möguleikana á því að trúa lýðræðisríkjunum fyrir lýðræðinu, þá hafi það séð eins og var, að það næði vit- anlega engri átt. Það varð að fá Þýzkaland í lið með sér, eða öllu heldur, það varð að veita Þýzkalandi lið — af einhverjum or- sökum: „Er bara ekki Stalin að eyðileggja Hitler á þessu“, segir undur elskuleg dama, sem ég veit ekkert um, annað en það, að hún á blá, fælin augu og brúna kápu. — Hvernig? spyr ungur læknir, sem er í hópnum, dálítið hvasslega. — Ég veit ekki segir hún. — En mér finnst hann miklu sætari en Franco og Hitler. Einhvern veg- inn finnst mér, að þessi röksemd þyki létt- væg í þessum litla hópi. Mér finnst hún þvert á móti bæði elskuleg og kvenleg. Og þarna sitjum við á Gullfossi, van- máttugir áhorfendur þess, að veraldarsög- unni er snúið við með 226 orðum, sem rað- að er í sjö greinar með formála og eftir- mála á hvítt blað. Það endar á orðunum v. Ribbentrop, Molotoff. Og það sem stendur yfir þess- um ginnvirðulegu nöfnum er á þessa leið: Sovét-Rússland og Þýzkaland skuld- binda sig til að gera ekki árás hvort á ann- að, að styðja ekki á neinn hátt þriðja ríki, sem ráðast kynni á annan hvorn samn- ingsaðila, að ráðfæra sig stöðugt hvor við annan, að taka ekki þátt í neinni ríkja- samsteypu, sem beint sé móti hinum samn- ingsaðilanum, að gera út um ágreining, sem rísa kynni út af sáttmálanum, með vinsamlegum viðræðum eða sameiginleg- um gerðardómi, að samningurinn skuli gilda í 10 ár og framlengjast sjálfkrafa í 5 ár, ef honum hefir ekki verið sagt upp, og loks að samningurinn skuli koma til framkvæmda þegar í stað eftir undir- skrift. Þegar við skrifum upp á víxla okkar, eða samþykkjum þá, eða setjum nöfn okk- ar yfirleitt á pappír, þá er venjulega ekkert um að vera. Og það sér að mínnsta kosti hvergi á úthti borgar eða byggðar með neinum ytri merkjum. Það getur ver- ið, að hugurinn flaggi stundum í hálfa stöng yfir slíkum atburðum. En þegar Joachim von Ribbentrop, utanríkismála- ráðherra þjóðernisjafnaðarmanna Þýzka- lands, kemur í flugvél til Moskva til þess að gera vináttu og viðskiptasamning við ríki verkamannsins, hið rauða Sovét- Rússland, þá blaktir Þórshamars fáninn germannski yfir öllum múrum Moskva, til marks um það, að velkominn og mikils- virtur vinur ríði nú í garð. Okkur á Gull- fossi fannst þetta hálf skrítið. Svona get- um við úti á íslandi oft átt á hættu að misskilja hið rétta eðli hlutanna: * 1 fregnum næstu daga segir frá því, að þessi sáttmáli hafi komið öllum á óvart. Menn stóðu undrandi í Berlín og hvarvetna um heim. Eitt franskt blað hafði snarræði til að spyrja, hvort að Sovét-Rússland

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.