Vikan


Vikan - 14.09.1939, Blaðsíða 4

Vikan - 14.09.1939, Blaðsíða 4
4 VIKAN Nr. 37, 1939 myndi nú ekki bráðum gerast aðili að and- komúnistiska sáttmálanum. Annað blað kom með getgátur um það, að Þjóðverjar myndu bráðlega verða í vafa um það, hvort þeir ættu heldur að heilsa með Heil- Hitler eða Heil Moskva! Og þannig rigndi niður gamanyrðunum. En á einum stað í heiminum voru djúp vonbrigði yfir þess- um atburðum. Það var í Englandi. Við leggjum að landi í Reykjavík undir miðnætti. Hinir stórpólitísku atburðir þoka í baksýn í huganum. Nú er hver farinn að hugsa til síns heima. En næsta morg- un, þegar ég kem á skrifstofu mína ligg- ur síðasta eintak af Manchester Guardian á skrifborðinu. Ég fer að blaða í því, og er enn þá einu sinni átakanlega minntur á það, að blað hefir verið brotið við í mann- kynssögunni. Sú öld, sem var fyrir viku, er liðin, ný öld og ný viðhorf komin í stað- inn. Ég þori ekkert að segja um það með hverjum hug stjórn Chamberlains hefir gengið til samninganna við Rússland. Hún getur, vegna alls þess, sem ég veit, hafa verið full af óheilindum. En brezka þjóðin vildi afdráttarlaust þessa samninga. Það veit ég, og það áður en ég las þetta blað frá 18. ágúst. En nú les ég þessi orð eins og bergmál frá liðinni tíð: Það er ekkert annað en heilbrigð skyn- semi að gera sér grein fyrir því, að það er enn þá eins nauðsynlegt og það hefir nokkru sinni verið að fylla upp í eina stóra skarðið, sem enn þá er í vegg þeim, sem verið er að hlaða upp gegn of- beldi öxulríkjanna, með því að ljúka samn- ingunum við Rússland. Þetta þýðir það, að hermálaviðræðunum verður að flýta af öllu megni. Ef vér gröfum niður á grunn vandamálsins, þá munum vér komast að raun um, að Rússland undiritar ekki neinn pólitískan sáttmála af neinni tegund, þang- að til Bretland og Frakkland hafa sett fram svart á hvítu hverjar skuldbindingar af hemaðarlegu tagi hver aðili um sig skal takast á hendur, ef til styrjaldar kemur, oss getur fallið þetta betur eða miður, en ella mun Rússland ekki treysta oss. Þess vegna er það, að því fyrr sem gengið er til fulls frá hinum hernaðarlegu samningum, því betri horfur em á um pólitískan sátt- mála, og því meiri líkur eru til að bæta megi nokkuð af því tjóni, — og enginn veit, hvað það er mikið — sem gert hefir verið með drætti síðustu mánaða.“ Þannig farast Manchester Guardian orð. Og mér finnst ósjálfrátt, að það vera mik- ill sannleikur í þessum orðum, og einkum þó því, að Sovét-Rússland muni ekki gera neinn pólitískan sáttmála fyrr en gengið sé úr skugga um það, að hinar hemaðar- legu fyrirætlanir hins samningsaðilans séu Sovét-Rússlandi að skapi. Og um leið og síðustu vonir brastu um sáttmála við lýð- ræðisríkin Bretland og Frakkland, má ætla, að hemaðarlegar fyrirætlanir Þýzkalands og öxulveldanna hafi Verið á þá leið, að Sovét-Rússlandi hafi þótt vel mega við una. Síðustu dagana, sem ég var erlendis, var ófriðaróttinn orðinn mjög ríkjandi. Hið ytra tilefni var Danzig og pólska hlið- ið, og sívaxandi og harðnandi deilur Pól- verja og Þjóðverja um það. En reyndar fannst mér allir, sem ég talaði við, gera sér ljóst, að þetta er aðeins hið ytra tilefni. Hin raunverulega ófriðarorsök liggur miklu dýpra. Það er verið að takast á um menningarlega og f járhagslega yfirdrottn- un um komandi ár, og búa sig undir að gera það með öllu því risaafli fjár og tækni, sem heimurinn á yfir að ráða. Ef til vill býst enginn við sigri í slíkri styrj- öld. Það er sönnu næst, að allir viti það, sem Daladier, forsætisráðherra Frakk- lands, sagði í bréfi sínu til Hitlers. 1 slíkri styrjöld mun hvorug þjóðin sigra hina, heldur verða það eyðileggingin, hörmung- in og hrottaskapurinn, sem sigri hrósa. Það minnir mig á orð, sem standa í ný- útkominni danskri bók eftir suðurjótann Svend Weis Fogh: Hann barðist með Þjóð- verjum öll styrjaldarárin 1914—1918. Hann segir: I næstu styrjöld verður dauðinn einn hinn mikh sigurvegari. En á meðan fallbyssurnar eru ekki enn- þá farnar að þruma dauðasöng sinn, þá er ennþá von. Og sennilega leiðir næsta vika það í ljós, hvort hinn beiski bikar styrjald- arinnar verður tekinn frá vömm mann- kynsins í bili og við fáum enn um stund að njóta þess, sem blessaðast er af öllum gæðum jarðarinnar: Friður og góðvilji meðal mannanna. ^imimiiiiiimiimmmmmmmiiimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmiimiiiiimmmmmmmmmmmmmmmmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiii^ Ein þögul kona, sem þó er mælsk, | fer þjóðleiðir út um sveitir, | og kurteis í framgöngu klappar á dyr. [ En kona sú Vika heitir. i Til góðgerða rásar hún suður með sjó | í og samtímis norður og vestur. En þar sem hún staðnæmist, þetta er mælt: i „Já, þú ert hér aufúsugestur.“ | Og mælt er að Vika sé frásagnafróð | um fornöld á miðjarðarhveli; i i á hinn bóginn getur og haft þó um leið i á Hornströndum norður í seli. f Um forsæludalina finnur hún veg, i i þó fannir með þversköflum girði, | i og byljir á háf jöllum blási í horn, i og bylgjur á ströndina yrði. Á sumrin hún gengur í sefgrænum kjól, og safírblá’n listvefnað fremur, \ en lýsist með rjúpu við lækkandi sól, i er lognsnær á fund hennar kemur. f Hún nálgaðist mig og ég naut þess um leið, er náttmálaeldarnir brunnu. i Og roðinn, er skreytir með róslitum frú, kom rakleiðis boðleið frá sunnu. I Á sniðgönguleið milli f jöru og f jalls f i mun fara í sporin þín engi. Og synirnir, þeir munu sjö vera tals, \ geta’ séð um að vaxi þitt gengi. Guðmundur Friðjónsson. ’''Miiiiiiiiimtiitiiiiiiiii|iiiii|||||||||||ll ii 111111111111111111111111111111 ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiii'^

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.