Vikan


Vikan - 14.09.1939, Page 7

Vikan - 14.09.1939, Page 7
Nr. 37, 1939 VIKAN 7 Síðari grein FRITZ SCHAUERTE: FLUG á íslandi — og hinu megin hafsins. Met. Heimsmet í hraðflugi! Þetta er al- geng fyrirsögn yfir smágrein í dagblaði, ef til. vill með mynd af flugmanninum. Fæstir geta gert sér grein fyrir því, hversu mikil vinna og hugsun liggur að baki slíku afreki. Næstum því enginn hugsar um þá hættu, sem methafinn hefir verið í. Allir hafa gleymt þeim þúsundum manna, sem hafa orðið að fórna lífi sínu eða aleigu sinni til þess að gefa mannkyninu þann Brautigam svifflugmaður flaug á „Kranick- svifflugu frá Dresden til Wien, 362 km., á 5Vz klukkstund. möguleika að sigrast á f jarlægðum og far- artálmum með síendurbættum flugvélum og góðum flugmönnum. Það voru Frakkar, sem lengi áttu heims- met í hraðflugi, 309 km. á kls. (1920). Þetta met stóð óhaggað í 6 ár, en þá kom- ust ítalir í 511 km. hraða. Lengi var álitið, að þetta væri endirinn, að hraðinn myndi ekki vaxa úr því. Samt tókst Englending- um 1931 að ná 655 km. hraða með 2,500 hestafla hreyfli og ítölum 1935 709 km. hraða með 3,000 hestafla hreyfli. Þetta met stóð í fjögur ár, þangað til í apríl s.l., þá var það bætt tvisvar á einum mánuði, fyrst með þýzkri Heinkel-vél upp í 746 km. og nokkrum vikum seinna í 755 km. á klst. með Messerschmidt-vél. 1 bæði skiptin var notaður sams konar hreyfill, sem hefir aðeins 1,100 hestöfl. Framfarir flugtækn- innar sjást bezt á því, að nú er hægt að fljúga með einum þriðja af vélaafli meira en helmingi hraðara en fyrir 20 árum. Sá, sem byggði metvélina, Messerschmidt, og sá, sem flaug metið, Wendel, hafa báðir verið svifflugmenn, áður en þeir sneru sér að mótorflugi. Að fljúga með 755 km. hraða, er sama og að komast frá Reykjavík til Akureyrar á 18 mínútum! Þetta dæmi sýnir okkur, að flugið hefir gert fjarlægðir að engu. Auðvitað munu líða nokkur ár, þangað til að slík hraðflutningstæki verða notuð til algengra flutninga, en sá tími kemur, og þar með sönnun fyrir sigri mannkynsins á f jarlægðum og þyngdarafli. Flugafrek á öðrum sviðum. Þó að met í hraðflugi, hæðarflugi og burðarmagni einstakra véla séu afar mikils virði fyrir framfarir flugtækninnar og menntun flug- manna, voru það ekki sílk afrek, sem opn- uðu hjörtu almennings. Almenningur hefir frá því fyrsta fylgzt með öllu, sem gerðist á sviði flugs, og látið hrifningu síha í ljós á flugsýningum o. s. frv., frá því að þær hófust um s.l. aldamót. En það leið langur tími, þangað til að almenningur skildi, að flug var meira en stundargaman, að flugið gat orðið fram- þróun alls mannkynsins að ómetanlegu gagni. Get ég hér strax bent á dæmi þau, sem til eru á íslandi: sjúkra- og læknaflutn- inga með flugvélum, síldarleit úr lofti, rannsókna- og landkönnunarflug til elds- umbrotasvæða o. s. frv. Þeir íslenzku flug- menn, sem hafa unnið slík afrek og gera enn, eiga engu að síður heiður skilið en þeir, sem fljúga t. d. yfir Afríku eða aðrar heimsálfur. Meira að segja er aðstaða ís- lenzkra flugmanna að mörgu leyti verri en erlendra félaga þeirra, vegna skorts á nýtízku vélum, áhöldum, lendingarstöðum og almennu flugskipulagi. Flug- afrek þeirra eru að því leyti verð- meiri en mörg önnur, sem heims- blöðin eru að montast yfir. Sann- ur flugmaður bíður ekki eftir opinberri viðurkenningu eða þess háttar, hann fær vinnu sína og sjálfsfórn fulllaunaða með því að fljúga, líta landið úr lofti og verða öðrum mönnum til gagns. Innri hamingja eru honum næg laun. Ég nefndi hér áðan landkönn- unarflug og ætla að bæta því við, að slík flug eru einnig stunduð víða um heim af flugmönnum allra þjóða. Þess hefir verið getið, einnig í íslenzkum blöðum, að flugmenn hafa fundið áður óþekkta fossa, bæði í Afríku og Ameríku, sem eru stærri og fallegri en fossar, sem hingað til þekktust, og mætti hér nefna fleiri dæmi. Síðast liðinn vetur og vor fékk þýzkur flugleiðangur lánað flugvélaaðstoðarskip, sem ,,Luft-Hansa“ notar að öðru leyti fyrir loftsamgöngur til Suður-Ameríku. Með aðstoð þessa skips var rannsakað áður óþekkt svæði við Suðurpólinn, sem er alls 600.000 ferkm að stærð. Flug- menn okkar þurftu að fljúga upp undir 10 tíma á dag í 30° kulda. Myndir og mælingar þeirra veita vísindamönnum Helmut Hirth, flughreyfla- smiður, bróðir Wolfgang- Hirth, er flaug- til Islands fyr- ir nokrum ár- um, dó í fyrra. nýjan fróðleik um þetta óþekkta land, sem þar liggur innilokað af ís á alla vegu, en flugmennirnir sjálfir fengu verðskulduð laun með því að fá að líta þetta land, sem ekkert mannlegt auga hafði litið, síðan það skapaðist. Flugafrek eins og þessi, sem hér hafa verið nefnd sem dæmi, og eru unnin af stundarþörfum, eru oftast fyrstu spor- in að næsta marki, þ. e. reglubundnum flugum um þetta svæði, fyrst með póst, síðar með farþega. Má hér til hliðsjónar benda á flugin hér á íslandi til Austf jarða. Áætlunarpóstflug skapa þá skilyrði fyrir næsta og hæsta markið: Áætlunarflug með farþega. Farþega- flug hófst strax eftir heimsstyrjöldina. Þá voru nógu margar flugvélar til, sem höfðu verið notaðar í ófriði. Þær átti nú að nota einnig á friðartímum. Þetta gekk þó ekki eins vel og menn höfðu hugsað sér, og skal bent á ástæðurnar fyrirþví síðarígreininni. Heimsmet á flugvél af minnstu gerð setti Gabter, með því að fljúga frá Sviss tii Norður-Sviþjóðar (1.951 km) í einu flugi.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.