Vikan


Vikan - 12.10.1939, Síða 3

Vikan - 12.10.1939, Síða 3
Nr. 41, 1939 V IK A N 3 Dr. phil. Guðmundur Finnbogason: BÖRi. að er altaf vandi að vera góð- ur vinur, og það er sérstaklega vandi að vera barnavinur. — Til þess að vera öðrum góður vinur, verður fyrst og fremst að skilja hinar sönnu þarfir hans, vita, hvað honum er fyrir beztu, og breyta eftir því. Það kemur fram í orðum Hávamála: „Esa sá vinr öðr- um es vilt eitt segir“, sá er ekki vinur öðr- um, er aðeins segir það, sem honum er ljúft. En að skilja hinar sönnu þarfir barn- anna er oft svo erfitt af því, að „þess minn- ist ekki kýrin, að hún hefir kálfur verið.“ Mikið af harmsögu mannkynsins er í því fólgið, að hinir fullorðnu hafa löngum rembst við það eins og rjúpan við staur- inn að gera börn lifandi eftirmynd sjálfra sín, innræta þeim sem fyrst sömu kredd- urnar, sem þeir voru sjálfir tröllriða af. Það hefir ef til vill aldrei komið hryggi- legar fram en nú á dögum víða um heim, þar sem stjórnmálaflokkar vinna að því harðri hendi að gera börnin að garganplöt- um pólitískra jazza. Slíkt er sálarmorð, litlu betra en barnamorðin í Betlehem. Því að hvað er barnamorð, ef það er ekki að drepa barnseðlið? Hvað er þá bamseðlið? Ég held, að því hafi sjaldan verið lýst betur en í kvæði Stephans G. Stephans- sonar „Við barn.“ Það er svona: Bam með skapið ofið úr árdegisblíðu og þrumu-skúr, veðri því, sem allt grær í, öll er veröld þér svo ný. Allt það, sem þitt auga sér, upp í þínum huga ber spurning — út 'úr öllu skín einhver þýðing djúp og brýn. Hreinskilið í huga þú hræsnar enga venju-trú, aldrei þinnar reynslu rök rýrir úrlausn dularspök. I vona þinna og vizku garð víða þó að hrapi skarð, þú átt gnægð af efni að eins gott jafnskjótt bæta það. Freistar þess, sem óreynt er, ofraun margt þó verði þér stundum óvænt afreks-verk á því vinnur hönd þín sterk. Þar sem blíða finnst og fjör festirðu augun skilningssnör — bezt þú sögur kappa kannt, kostum þeirra mest þú annt. Ærslum með og æsku-sveim yngir þú upp roskinn heim. Ertni þinni flýja frá fýludrembinn staur-karl má. Barn, sem æ átt upprof víst ef í hretkast bernskan snýst; hún er fleira en hlátra-sköll, hún er raun og tára-föll. Barn með hjarta haturslaust, hugar-auðlegð, von og traust, sátt við gærdag sofnar strax, sól ei kvíðir morgun-dags. Barn, með skapið ofið úr árdags-blíðu og þrumu-skúr: Ljá mér hjarta og huga þinn, hönd þó stirðni og fótur minn. Mér þá út úr öllu skín einhver þýðing djúp og brýn, hljóma ei tímans hávamál heyrnarlausri fyrir sál. Hlégiljur, sem veldið vítt veitir spekings-gerfi sítt erta þori þykkju spar — þó það nefnist stráka-par. Þekkingar í þarfa-garð þreytist ei að fylla skarð. Kaupið hæsta heimta í hverju verki að: orka því. Og með geðið æskurótt eins þig kyssi góða nótt! er hátta lætur hinsta sinn, heimur, þreytta drenginn þinn. Þeir eiginleikar barnsins, sem skáldið bendir á, eru þá í stuttu máli: gróðrar- veðrið í sál þess, skilningsþorstinn, hrein- skilnin, auðug ímyndun, reynsluþorið, ást- in á hreystinni, glaðværðin, hatursleysið, vonin og traustið. Og tökum eftir því, að Stephan G. Stephansson, einn hinn mesti andans skörungur, sem þjóð vor hefir átt, hann þráir að eiga til æfiloka einmitt þessa eiginleika barnsins: Ljá mér hjarta og huga þinn, hönd þó stirðni og fótur minn. Hann veit, að auðnist honum þetta, þá geti hann háttað rólegur hið hinsta kvöld. Er þetta ekki sama kenningin og frelsar- inn flutti mannkyninu, en það hefir aldrei viljað skilja: „Hver sem ekki tekur á móti guðsríki eins og barn, mun alls eigi inn í það koma.“ Þetta viðhorf er gagnstætt því, sem al- mennast hefir verið. I stað þess að reyna með illu og góðu að gera börnin eftirmynd hinna fullorðnu, þá er stefnan þarna sú að líta á barnseðlið sjálft til að finna svar við því, hvað mönnum er ætlað að verða. Við skulum líta á þessa eiginleika, sem skáldið bendir á, hvern fyrir sig, og sjá hvert þeir stefna. Eru ekki heilindin í til- finningum barnsins hressandi? Hvort sem þar er ,,árdegisblíða“ eða „þrumu skúr“, þá er þar engin uppgerð, ekkert óheilt og engin trénun. Væri ekki dýrmætt að varð- veita þessi heilindi til æfiloka? Hvað er elskulegra en skilningsþorsti barnsins, er það spyr, og glampinn í augunum, er það fær úrlausn ? Á ekki markmiðið að vera það að halda þessum þorsta til æfiloka? Hann mun þá sjálfur á hverri stund afla sér fullnægingar, ef barninu er kennt að beita skynseminni og treysta sjálfu sér. Það öðlast þá smám saman þær skoðanir, sem nægja því betur en lánaðar fjaðrir til að leysa þau vandamál, er fyrir það koma. Er ekki hreinskilni barnsins, þegar það í sakleysi segir það, sem því býr í brjósti, í rauninni fyrirmynd ? Hvernig fer, ef menn hætta að vera einlægir og nota orðin til að dylja hugsanir sínar og tilfinningar ? Er ekki ímyndun barnsins, sem blæs lífi í allt, fyrsti neisti þeirrar gáfu, sem gerir menn að skáldum? Er ekki reynsluþorið, hug- rekkið til að „freista þess, sem óreynt er“, skilyrði alira nýjunga og framfara í líf- skoðun, vísindum og framkvæmdum? Það þor glæðist af sögum um afreksmenn, og því munu börnin unna þeim, eins og skáld- ið tekur fram. Glaðværðin, haturslaust hjarta, von og traust eru beztu undirstöð- ur heilbrigðs lífs á öllum aldri. Og hvílíkt framtak mundi verða með þjóðinni, ef allir fengju þann hugsunarhátt barnsins: Kaupið hæsta að heimta í hve'rju verki: að orka því. Ég spyr, en sjálf verðið þið að svara fyrir ykkur. En þó að börn séu að vísu, eins og kunn- ugt er, gædd hverjum þessara eiginleika á mismunandi stigi, þá býst ég við, að við getum orðið sammála um það, að mark- mið allra barnavina ætti að vera það að glæða þessa eiginleika og styðja þá til samræmilegs þroska, og að sú þjóð, sem bæri gæfu til að skila ungu kynslóðinni fram á fullorðinsár með þessa góðu eigin- leika barnseðlisins í fullum þroska, gæti gert sér von um fagran ávöxt í framtíð- inni. Hún hefði verndað gróðurmagn sitt einmitt á því skeiðinu sem hættulegast er, vemdað það í vorhretunum og næðingun- um, sem skæðastir eru hinum viðkvæma nýgræðingi. Það er ávalt erfiðasta hlut- verkið.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.