Vikan


Vikan - 12.10.1939, Blaðsíða 21

Vikan - 12.10.1939, Blaðsíða 21
Nr. 41, 1939 VIKAN 21 Frú Martha Smigly Rydz, kona pólska herforing-jans, sem fór með konu og dóttur Becks, utanríkismála- ráðherra, frá Póllandi til Bukarest. Undir stjóm lögreglunnar í Berlín eru hér og þar settar upp auglýsing- ar, svo að fólk geti séð, hvert það getur forðað sér, ef loftárás verður gerð á borgina. Það er um fátt meira talað í sam- bandi við styrjöld þá, sem nú geisar i heiminum, en samstarf Sovét-Rúss- lansd og Þýzkalands. Hér er mynd af rússneskum hermanni. Frönsk riddaraliðssveit fer i gegnum götur Parísarborgar á leið til víg- stöðvanna við Saar, milli Maginot- og Sigfried-vamarlínanna, þar sem aðallega hefir verið barizt. þar ríkiskirkja, sem allir voru skyldugir að greiða gjöld til. Sú upphæð, sem írska þjóðin greiddi þeirri stofnun árlega um aldamótin 1800, nam ekki minna en 500 þúsundum sterlingspunda, þótt tæplega V» hluti þjóðarinnar teldist henni fylgjandi. Og þótt furðu megi gegna, hélzt þessi til- högun allan tímann fram til ársins 1869, er enska þinginu þóknaðist að lokum, fyrir fortölur Gladstones, að létta þessum skatti af írskum landslýð og leggja biskupakirkj- una niður sem ríkisstofnun á Irlandi. En því má bæta við, að allan þann tíma, sem írska þjóðin, — þetta olnbogabarn hins mikla brezka veldis, átti í baráttu fyrir réttarbótum sínum, átti hún í fylk- ingarbrjósti menn, sem börðust eins og Ijón, menn, sem töldu enga fórn of stóra, ef hún var færð fyrir Irland. Því hefir stundum verið haldið fram, að á 19. öld- inni, þeirri öld, sem drap úr dróma afburða- gáfumenn hjá hverri einustu þjóð í Evrópu, hafi hvergi komið fram annað eins mann- val og það, er Irar tefldu fram á skákborð stjórnmálanna í málstofum brezka þings- ins. En flestir þeirra fengu einhvern tíma á æfinni að heyra marrið í fangelsishurð innan frá, og ekki allfáir kvöddu þennan heim með háðsbrosi við gálga eða högg- stokk, sem stóð nú enn eins og hann hafði staðið öldum saman í þjónustu fallegs hug- taks, sem heitir „öryggi Bretlands". — Þeir höfðu meðtekið sama andann, sem um aldir hafði svifið yfir grösugum engjum og grænum skógum írlands, mennt og speki írska munksins, eldmóð og fórnarlund írska prestsins. * Saga írska prestsins er saga þjóðar hans, raunasaga hennar, sigursaga hennar. Og nú, þegar írska þjóðin er frjáls, og farið er að sýna menningararfi hennar sóma, tekur hann virkan þátt í endur- reisnarstarfinu. Hann nýtur alþýðuhylli. Hann er lærður vel í þjóðlegum fræð- um ekki síður en kirkjulegum. Hann er ættjarðarvinur og fylgist vel með í opin- berum málum. En hann er lítill vinur Breta, þótt hann stilli orðum sínum í hóf, er þá ber á góma. Og hvernig má annað vera? Til þess þekkir hann of vel sögu lands síns og kirkju sinnar. Og ef það kynni að detta fram úr þér í viðurvist hans einhver athugasemd í þá átt, að Bretar heyi styrjaldir enn í dag í guðs nafni alveg eins og á dögum Cromwells, þá bregður fyrir í augum hans glampa, sem þú áttar þig ef til vill ekki á samstundis. Ef til vill er það háð, ef til vill harmur, ef til vill sársaukablandin meðaumkun og sennilega snýr hann út úr fyrir þér og segir: „Menn- irnir eru enn í dag eins og þeir lengstum voru, heimskari en hvað þeir eru vondir.“ Það mælir hann, írski presturinn með ald- irnar á bak við sig. Við fórum að næturlagi gegnum nokkrár írskar borgir. Allt var niðdimmt, aðeins nokkur Ijós við aðalgöturnar. En þegar betur var að gætt, mátti greina daufa, dumbrauða glætu, er lagði út frá sumum gluggunum á íbúðarhúsunum. Það loguðu ljós þarna inni, þótt lítið bæri á. Og við vorum, þegar hér var komið sögu, orðin það kunnug írskum heimilisháttum, að við vissum, af hverju þau stöfuðu. Þetta var bjarminn frá litlum, rauðum lömpum, sem loga dag og nótt við mynd Maríu eða ein- hvers annars dýrlings. Og með þessum bjarma barst eitthvað vingjarnlegt og hug- hreystandi út í náttmyrkrið, sem sætti mann við það að vera á ferðinni á þjóð- vegi bráðókunnugs lands um brúnamyrka nótt. Kaþólskar trúarkreddur! segja ef til vill einhverjir kaldrifjaðir lesendur mínir og hrista höfuðið. En ég fer að hugsa um það, með hve táknrænu móti þessi yfirlætis- lausu ljós minna á trúna, sem varð að lifa í leyndum svo öldum skipti á írlandi. Og mig gildir einu, hvað kirkjudeildin heitir, en man ekki til, að nein Evrópuþjóð hafi lagt annað eins í sölurnar fyrir trú sína og írar. írski prestur, það er eitthvað í verki með þér, sem valdhafar þjóðanna gera ekki ráð fyrir, þegar þeir segja hver öðrum stríð á hendur, eitthvað, sem' varð sterkara en stál og púður, fjármagn og stjórnkænska stærsta ríkisins í veröld. Og mér finnst bjarminn frá rauðu lömp- unum lýsa út á koldimman veginn, — langt fram á veginn. SKÓLASTJÖRINN. Frh. af bls. 10. sig hægt og seinlega. Hann eyddi löngum tíma í að bursta nýju, svörtu fötin sín, braut þau síðan vandlega saman og lagði þau í dragkistuna. Síðan gekk hann að borðinu, þar sem lá stafli af stílabókum nemenda hans, tók bókina hans Babkins, settist niður og tók að virða fyrir sér hina fögru, barnalegu rithönd . . . En á meðan hann skoðaði stílabækurn- ar, sat héraðslæknirinn í næstu stofu og var að segja við konu hans, í hálfum hljóð- um, að ekki hefði átt að leyfa manni að fara í veizlu, sem að öilum líkindum ætti ekki eftir að lifa meira en eina viku. er þvottasápa nútímans.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.