Vikan


Vikan - 14.12.1939, Qupperneq 7

Vikan - 14.12.1939, Qupperneq 7
Nr. 50, 1939 VIKAN 7 Stuart Taylor Wood var starfsmaður hjá lögreglunni í Kanada, þegar hann ljóstr- aði hinu mikla morðmáli upp, árið 1921. l-Iinir frægu „Rauðstakkar", leynilögregl- * * an í Kanada, hafa nýlega fengið nýjan foringja — Stuart Taylor Wood. Foringjar „Rauðstakkanna“ eru aðenis valdir úr duglegustu starfsmönnum flokks- ins, og Wood er engin undantekning frá þeirri reglu. Hann gekk í þjónustu leyni- lögreglunnar í Kanada árið 1912. Hann hefir komið upp um marga bankaþjófa og tekið marga eskimóa, sem búa í nyrstu héruðum Kanada, fasta fyrir morð. Nú síðast aflaði Wood sér mikillar frægðar fyrir það, hvernig hann ljóstraði upp morðmáli í þessum héruðum. Og það atvikaðist þannig: 1 ágústmánuði, árið 1921, var Wood, sem þá var nýorðinn lögreglustjóri, staddur á Baille-eyjunni, við strönd Norður-Kanada, þegar hann komst í fyrsta skipti í kynni við hina frumlegu eskimóa með því, að hann komst að morðmáli einu. Nokkrum vikum áður höfðu fimm fullorðnir eskimó- ar og eitt barn verið myrt á næstu eyju. Tveir eskimóar, sem voru að leita sér að konum, voru valdir að þessum sorgarleik. Lífið er erfitt fyrir eskimóana. Eins er miklum erfiðleikum bundið fyrir þá að afla sér fæðu. Þess vegna tóku þeir iðulega ung stúlkubörn af lífi, þegar verst lét. Þau gátu aldrei farið á veiðar hvort eð var. En þar af leiðandi var fátt um kven- fólk á meðal eskimóanna. Ikialgagina var einn þess- ara konulausu, ungu manna. Hann hafði átt konu stuttan tíma, en hún hafði yfirgefið hann og gifzt hvítum loð- dýraveiðimanni, Otto Binder, Hanak, frændi Ikialgagina, sem bjó með honum og var kvæntur, vildi, að Ikialgagina fengi sér aðra konu, svo að hún gæti hjálpað þeim að bæta f öt þeirra og veiðarfæri. Og eitt kvöldið skaut hann kvæntan eskimóa, þar sem hann bjóst við, að ekkja hans giftist Ikialgagina. En tveir vinir hins myrta eskimóa, Pugnana og Tata- magana, ákváðu að hefna hans. Eina nóttina skriðu þeir inn í hreysi Hanaks og skutu bæði hann og Ikialga- gina. Þegar Pugnana sá konu Hanaks ráðast á vin sinn, Tatamagana, stakk hann hana með hnífi. Síðan drap hann hina 4 ára gömlu dóttur Hanaks, svo að hún dæi ekki úr hungri. Tatamagana dó af sárum þeim, sem kona Hanaks veitti honum. — Wood sendi skýrslu um þetta til aðalstöðvarinnar í Ottava. Þegar næsta skýrsla kom frá Wood til aðalstöðvarinnar hafði heilmikið gerzt. Wood og fjórir „Rauðstakkar“, sem með honum voru höfðu elt Pugnana í margar vikur á sleðum með hundum fyrir. Þeir höfðu náð í mörg vitni, en ekki í Pugnana, því að hann hafði verið myrtur. Pugnana hafði nefnilega, þegar hann flýði frá morðstaðnum, rænt með sér ungri stúlku. En nú greip hann löng- un til að myrða fleiri og hann reyndi að fá stúlk- una í lið með sér. Af ótta flýði hún á náðir eskimóa eins, Alikoniak að nafni, og næsta dag, þegar Pugna- na fór á veiðar, Frh. á bls. 19. Stuart Taylor Wood, foringi „Hauðstakkanna. Þessir eskimóar voru vitni í morðmáli, sem Wood ijóstraði upp árið 1921. Allur flutningur í Norður-Kanada fer fx-am á sleðum. — Það eru margir kilómetrar á miili nýlendnanna og lög- reglustöðvanna. Ferðin, sem Wood tókst á hendur 1921—22 stóð yfir í marga mánuði.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.