Vikan


Vikan - 14.12.1939, Blaðsíða 19

Vikan - 14.12.1939, Blaðsíða 19
Nr. 50, 1939 YIKAN 19 KRÁKAN. ^ Y 7agn hafði setið í þungum þönkum síð- ’ an Kristján kennari hafði sagt börn- unum frá verðlaunasamkeppninni, sem skólablaðið ætlaði að gangast fyrir. Rit- stjórnin hafði lofað 100 krónum fyrir beztu dýrasöguna, og þar sem Vagn var bæði náttúrufræðingur og rithöfundur ætlaði hann auðvitað að taka þátt í sam- keppninni. Ef hann ynni nú 100 krónur! Þá gæti hann keypt sér hjólið, sem hann hafði svo lengi langað til að eiga. Hann var sendisveinn á sumrin, svo að það var engin furða, þó að honum léki hugur á að eignast hjól. En um hvað átti hann að skrifa. Auð- vitað tækju mörg börn þátt í samkeppn- inni, og flest skrifuðu þau um hunda, ketti, kýr og hesta. Væri ekki meiri von um að vinna, ef hann skrifaði um'eitthvað annað? Hann starði hugsandi út um gluggann. TJti sveimuðu spörfuglar. Ætti ég ekki að skrifa um spörfugla? hugsaði hann. Nei, hann hlaut að geta fundið eitthvað betra og skemmtilegra. Að lokum kom hann auga á kirkjuturninn og sá stóra, svarta fugla vera þar á sveimi. Krákurnar! hugs- aði hann. Það dytti engum öðrum í hug að skrifa um þær. — Þú hefir mikið að gera, Vagn, sagði reikningskennarinn ásakandi, og Vagn sökkti sér niður í dæmin sín.------ Um kvöldið fór Vagn til Óla gamla, hringjara. Hann var sá eini, sem þurfti nokkuð um þetta að vita, því að Vagn ætl- aði að fá kirkjulykilinn hjá honum til þess 'að komast upp í turninn til að rannsaka krákurnar. Hann varð að vita, hvernig hreiðrin þeirra voru, hve marga unga þær ættu, hvernig þær mötuðu þá og miklu fleira. En Óli var tregur að lána lykilinn. — Ég ber ábyrgð á öllu í kirkjunni, Vagn litli, sagði hann. — Og þar að auki finnst mér ekkert vit í því að skrifa um krákur. Mér leiðist hávaðinn í þeim. Hver heldurðu að nenni að lesa um þessa óþrifa- blesa ? Vagn hætti samt ekki að biðja Óla gamla, fyrr en hann lét undan. Um fjögurleytið næsta morgun gekk Vagn yfir kirkjugarðinn. Venjulega þurfti Óli ekki annað en að fara inn um lágu dyrnar á turninum til að hringja, en á hátíðum varð hann að fara upp að klukkunum — upp brattan stiga. Þetta varð Vagn líka að gera. Hann opnaði kirkjudyrnar með lyklinum og var ekki fyrr kominn inn í kirkjuna en hann heyrði í krákunum. Hvað skyldu hreiðrin vera mörg þarna uppi? Gaman yrði að at- huga þetta allt, en gætilega varð hann að fara til þess að hræða þá ekki. Loksins komst hann að kirkjuklukkunni. En hvað klukkan var þung. Hugsið ykk- ur, ef hún dytti? Vagn hrökk allt í einu við og hafði nærri rekið upp undrunaróp. Hann heyrði í einhverjum niðri í kirkjunni. Hann kallaði ekki, því að hann vissi, að þetta væru grunsamlegir menn, sem stæðu inni í kirkju um fjögurleytið á morgnana. Hann reyndi að heyra, hvað þeir sögðu. Vagn starði hugsandi út um gluggann. — Kannske hann setti að skrifa um spörfuglana ? — Það þýðir ekkert að hika, Valdi, sagði karlmannsrödd. — Við kveikjum í hlöðunni, og þá koma allir hlaupandi til að horfa á brunann og á meðan förum við í húsin og tökum það, sem okkur sýn- ist. Þetta er stórsniðugt. — Ég vil ekki kveikja í, sagði önnur rödd. — Ég held, að við ættum að fara hægt í sakirnar, því að lögreglan er áreið- anlega á hælunum á okkur. — Þvaður! Erum við vinir eða ekki? Við kveikjum í hlöðunni, en ekki íbúðar- húsinu. Þú þekkir mig og veizt, að ég er ekki morðingi. Komdu nú! Vagn var þrumu lostinn. Hvað var þetta? Nei, þetta mátti ekki verða! Hann hafði gleymt krákunum. Ut varð hann að komast til þess að vara íbúana við þjóf- unum. Hann hraðaði sér niður, en þegar hann kom að dyrunum, voru þær læstar. Glæpa- mennina hafði auðvitað grunað, að einhver væri inni í kirkjunni, fyrst hún var ólokuð. Vagn braut heilann um, hvað hann ætti til bragðs að taka. Eftir langa stund datt honum í hug að hringja kirkjuklukkunum. Ding! Dang! Ding! Dang! heyrðist um allt. Allir þorpsbúar vöknuðu við hring- inguna og þutu út til að sjá, hvað á seyði væri. Óli gamli kom fyrstur inn í kirkjuna og hundskammaði Vagn. Vagn sagði nú frá því, sem hann hafði heyrt. Allir urðu ótta slegnir og hröðuðu sér heim til að gæta búsins, en Vagn fór með nokkrum mönnum í hlöðuna og þar voru glæpamennirnir handsamaðir. Þeir játuðu allt og sögðust hafa búizt við því, að þeir væru óhultir í kirkjunni, en þá hefðu kirkjuklukkurnar vakið þorps- búa, þegar þeir hefðu ætlað að fara að kveikja í. Vagni var hælt fyrir hugrekki sitt og snarræði. Bezt var samt, að maðurinn, sem átti hlöðuna, gaf Vagni fallegan hjólhest. — Þú átt hann sannarlega skilið, sagði hann þegar drengurinn þakkaði honum. Vagni þótti auðvitað ógurlega vænt um ,,Krákuna“ sína — eins og hann hafði skírt hjólhestinn. Þegar hann hjólaði heim til sín um kvöldið, kinkaði hann vingjarn- lega kolli til krákanna í kirkjuturninum, því að í raun og veru átti hann þeim hjól- hestinn að þakka, þó að það hefði verið öðru vísi en hann bjóst við. HINN NÝI FORINGI „RAUÐSTAKK- ANNA“ I KANADA. Frh. af bls. 7. skaut Alikomiak hann. — Alikomiak var á meðal eskimóa þeirra, sem Wood og menn hans tóku á sleðann. Fangarnir og vitnin voru flutt á lögreglustöðina hétt hjá Three River, en Doak, einn af „Rauðstökk- unum“, var skilinn eftir í kofa einum til að gæta Alikomiak. Doak iét fanga sinn hafa mikið frelsi, því að hann hafði losað þjóðfélagið við glæpamann. En morðingi er morðingi í augum laganna, og Alikomiak vissi, að hann gat ekki sloppið við hegningu. Eina nóttina tók hann riffil Doaks og skaut hann sofandi. Nokkrum tímum síðar sá hann til Ottos Binder og hann varð einnig að skjóta hann til þess að komast hjá hegn- ingu. Kona Binders sá þetta. En hún gekk fljótlega í lið með Alikomiak og hjálpaði honum að bera líkið af veiðimanninum inn í kofann. Síðan lagði Alikomiak leið sína niður að Three River og ætlaði að drepa alla þá hvítu menn, sem hann rækist á á leiðinni. Til allrar hamingju hittu nokkrir eski- móar hann, tóku vopnin af honum með valdi og færðu lögreglunni hann í hendur. Áður en langt um leið hafði Wood náð í alla þá fanga og vitni, sem hann þurfti á að halda. Hann og menn hans fluttu eskimóana og f jölskyldur þeirra á sleðum til Baille-eyjunnar. Þaðan var farið til Herschel-eyjunnar, og fyrir réttinum þar var Alikomiak dæmdur til dauða. Þannig kynntist Wood eskimóunum. Síðar komst hann í tæri við íbúana á Kyrrahafsströndinni út af smyglun deyfi- lyfja, — en honum tókst að koma í veg fyrir það. Árið 1935 fór Wood, sem þá var orðinn aðallögreglustjóri, til Englands til þess að kynna sér nýjustu aðferðir ensku lögregl- unnar. Og í hinni stóru skrúðgöngu í Lundún- um, þegar George VI. var krýndur, var Wood í broddi fylkingar kanadisku deild- arinnar, sem vakti svo mikla hrifningu áhorfenda.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.