Vikan


Vikan - 19.09.1940, Side 2

Vikan - 19.09.1940, Side 2
2 VIKAN, nr. 38, 1940 Vasaorðabœkurnar w Islensk-ensk og Ensk-íslensk fást í öllum bókaverzlunum. Hver sá, sem þessar bœkur hefir í vasa, getur gert sig skiljanlegan vid Englendinga, án þess að kunna ensku. ökum síhækkandi verðlags á pappír og prentun og öðru því er viðkemur útgáfu blaðanna, sjáum vér oss nauðbeygða til að hækka verðlag blaðanna frá 1. október n. k. að telja, og verður það frá þeim tíma er hér segir: Áskriftaverð kr. 2,00 pr. mánuð. I lausasölu — 0,50 pr. blað. Reykjavík, 17. september 1940. Útgefendur Heimilisbladsins Vikan Útgefendur Vikublaðsins Fálkinn Sígarettur með rommi og lakkrís. I Ameríku eru nú reyktar 163 billjónir sígaretta á ári, en árið 1913 voru reyktar 4 billjónir. Að þessari gífurlegu aukningu liggja þrjár orsakir: stríðið, auglýsinga- starfsemin og tilbúningur hinna „blönd- uðu“ sígaretta. „Blended cigarettes“ voru fyrst framleiddar hjá Reynolds TobaccoCo. árið 1913 og juku strax neyzluna upp í 15 billjónir árið 1915. 1 venjulegri „bland- aðri“ sígarettu eru: 55% ljóst Virginía-, Georgía- og Caról- ínatóbak; 25% gróft Kentuckytóbak; 15% tyrkneskt tóbak og 5% Marylandtóbak. I þessa tóbaksblöndu er ennfremur sett: lakkrís, brúnn sykur, alls konar jurtir, mösurviður og hunang. Á eftir er sett til bragðbætis: romm, súkkulaði, vanille, cumarin, sherry, ferskjur, geranium og englajurt. Til þess að halda tóbakinu fersku, er sett í það ögn af glycerini. (Það er það, sem orsakar þurk í hálsi, þegar menn hafa reykt of mikið). American Tobacco Co. (Lucky Strike) Vi k a n HEIMIIISBLAÐ Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. Afgreiðsla og' innheimta: Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166. Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu. Steindórsprent h.f. notaði 12 milljónir dollara í auglýsingar árið 1935, Reynolds (Camel) 17 milljónir og Liggett (Chesterfield) 21 milljón. Þing- maður fær 1000 dollara fyrir að gefa ákveðnum sígarettum meðmæli sín og kvikmyndastjarna 6000 dollara. Bæjarstjórnin í enska bænum Great Yarmouth fékk fyrir nokkru áskorun, undirskrifaða af mörgum borgurum bæjar- ins, um það að skíra göturnar eftir helztu skáldum landsins eins og t. d. Shakespeare, Chaucer, Milton, Tennyson og Byron. — Áskoruninni var vísað frá með þeirri rök- semd, að bæjarstjórnin áliti, að siðferði áðurnefndra manna hefði í mörgu verið svo áfátt, að ekki væri verjandi að skíra götur bæjarins eftir þeim. Að því að sagt er hreyfast hræfareldar oft mjög hægt og stundum aðeins fá fet yfir jörðu, þangað til þeir rekast á ein- hverja hindrun og „springa“. — Fyrir skömmu sveif einn slíkur hræfareldur á stærð við kálhöfuð, eftir götu í Milano. Ferðin var svo lítil á honum, að nokkrir strákar, sem komu auga á hann, hlupu lengi samsíða honum, þangað til einhver vegfarandi benti þeim á hættuna, sem staf- að gæti af þessu. Þó að rottuhundurinn hafi lafandi eyru, heyrir hann sex sinnum betur en maður- inn. Þýzkur lífeðlisfræðingur, prófessor von Frisch, hefir sannprófað með tilraun- um, að hljóð, sem mannseyrað getur að- eins greint í sex metra fjarlægð, getur rottuhundurinn heyrt í 36 metra f jarlægð. * Brezka útvarpið útvarpar nú á þrettán mismunandi tungumálum. * Á átjándu öld fann Jean le Breton upp á því, að stofna hlutafélag með það fyrir Í Efni blaðsins, m. a.: I Eru Englendingar raunverulega aft- | urlialdssamir? eftir Kelvin Linde- \ \ mann. i i Bóndinn og rithöfundurinn, eftir Irving Stone. i Mannátið á Akureyri, smásaga í eftir Aq. i i Það er ekki dansað í Lambeth Walk. \ I Fiðurskikkjan, barnasaga. i Verra en Djöflaeyja. i i Heimilið. — Framlialdssaga. — Sigga \ litla. — ÓIi og Addi í Afríku. — i Skrítlusíða. — Krossgáta. — Skák § I — o. m. fl. | <Wimiiiimiimiimmiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|"""|ii"""""kvS augum, að kaupa allan heiminn og selja hann aftur með miklum hagnaði. Áður en hann var tekinn fastur, hafði umboðs- mönnum hans tekizt að selja nokkur hluta- bréf með því að nota falsaða kaupsamn- inga, sem sýndu, að margir af þjóðhöfð- ingjum heimsins hefðu selt le Breton lönd sín. Af öllum þeim bakteríum, sem vísindin hafa fundið og rannsakað, eru aðeins 3%, sem geta valdið sjúkdómum. # Ef kýr andar að sér lykt af hvítlauk í nokkrar mínútur, verður laukbragð af mjólkinni. Downing Street nr. 10, er hefir verið bú- staður allra enskra forsætisráðherra frá dögum Roberts Walpole, heitir í höfuðið á Sir George Downing, f jármálaráðherra Karls konungs II, sem seldi ríkinu það fyrir okurverð. TJTGEFANDI: VIKAN H.F., REYKJAVÍK. — Ritstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. — Abyrgðarmaður: Steindór Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Engilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.