Vikan - 27.05.1943, Qupperneq 1
Shirley Temple er ekki
lengur barn!
Shirley Temple 15 ára.
Grein eltir Sheilah Graham.
Um allan heim, þar sem kvikmyndir hafa
verið sýndar, hafa börn og fullorðnir verið
hrifnir af leikkonúnni litlu — SHIRLEY
TEMPLE. En nú er hún komin af barns-
aldrinum og þegar hún byrjar aftur, verð-
ur hún að leika sjálfa sig — unga stúlku!
Fötin hennar eru saumuð hjá bezta dömuklæðskera Holly-
wood, Adrian! Hælarnir á skónum hennar eru þeir hæstu,
sem hún getur fengið! Varir hennar eru blóðrjóðar! Negl-
urnar á fingrum hennar eru engu styttri heldur en á Marlene
Dietrich eða Paulette Goddard! Komið og sjáið hina nýju
Shirley Temple!
Undanfarnar vikur hefi ég séð Shirley bregða fyrir, í kvik-
myndahúsum, matsölubúð hermannanna, eða úti á götu, en ég
var ekki alveg viss um að þetta væri sú sama Shirley, er fyrir
fjórum, fimm, sex, sjö árum töfraði og skemmti milljónum kvik-
myndahúsagesta. Þess vegna hringdi ég til mömmu hennar og
sagði: ,,Má ég koma og drekka te hjá yður?“ Frú Temple svaraði
játandi, og ég mætti klukkan f jögur, í hinu yndislega heimili henn-
ar á Brentwood hæðinni. Framhaid á bis. 3.