Vikan


Vikan - 27.05.1943, Qupperneq 3

Vikan - 27.05.1943, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 21, 1943 3 Shirley Timple Framhald af forsíðu. „Shirley er ekki heima,“ var mér sagt, „hún er að láta snyrta neglur sínar, en það gerir hún einu sinni í viku, en hún kemur bráðlega.“ Á meðan við biðum drukkum við te og borðuðum kökur og töluðum um Shirley. „Hún hefir ekki leikið neitt undanfarin ár,“ segirmamma hennar. „En samt sem áður fær hún 12—14 þúsund bréf á viku.“ Síðasta myndin, sem Shirley lék í, hét „Ungfrú Annie Rooney.“ Árið þar áður lék hún í „Kathleen“. Hún fær jafn mörg bréf viku- lega eins og Mickey Rooney. „Hana langar til að halda áfram að leika,“ segir mamma hennar. „Hún elskar að starfa í myndatökuvinnustof- unum. En það verður að vera hlutverk ungrar stúlku. Shirley er ekkert barn lengur!“ Frú Temple brosir. „Þegar ég sagði henni, á afmælisdaginn hennar, er hún hélt sjálf, að hún væri 12 ára, að hún hefði orðið 13, fór hún að hágráta.“ „Núna,“ hélt frú Temple áfram, „er hún aftur á móti ánægðust, með að vera sem full- orðinslegust í útliti. Hún vildi helzt vera orðin tvítug! Hún á fjöldann allan af vinum, en ég hefi dálitlar áhyggjur út af því, að hún skuli ekki vilja vera með piltum á sínum aldri. Þeir eru flestir þetta 18 til 20 ára, sem hún umgengst.“ Shirley varð 15 ára þann 23. apríl síðastliðinn. „Henni er illa við föt, sem gera hána barna- lega í útliti, og henni þykir mjög gaman að sitja hjá klæðskeranum sínum, og tala um föt við hann. En sem betur fer, þá geðjast henni bezt að óbrotnum fötum, bara að hún sýnist eldri í þeim en hún er. Eða þá skórnir! Þeir eru aldrei of hæla- háir. Henni þykir ákaflega gaman að kaupa sér nýja skó. Hún elskar að dansa, og í hverri viku fer hún á einn eða tvo dansleiki. Eða þá neglurnar á henni! Mér finnst þær alveg voðalegar. Það kemur hér ekk’ svo nokkur af kunningjum hennar, að hún þurfi ekki að segja: „Ern mína neglur eins langar og þínar?“ Hún braut eina þeirra fyrir nokkr- um dögum og það var nú heldur en ekki sorg. Sem betur fer, þá er bannað að hafa rauðar neglur í skól- Shirley Temple 7 ára. Shirley Temple leikur munaðarlausa telpu. Framhald á bls. 7. Shirley Temple kennir afa að dansa

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.