Vikan - 17.06.1943, Síða 10
10
VIKAN, nr. 24, 1943
upimii mn
n E IIII i l i u
áöAnunum garðyrkju
Eftir Garry Cleverland Myers
S..................
Matseðillinn.
Nautakjötssteik.
2 kg. nautakjöt, 2 tesk. salt,
1 1. vatn.
Kjötið er þvegið og þurrkað með
heitum klút, saltinu nuddað vel inní.
Þvi næst sett inn i vel heitan ofn,
og vatninu hellt yfir, þegar kjötið er
farið að brúnast. Hitinn verður að
vera mjög jafn og gætið þess aS
ausa yfir steikina á tiu mínútna
fresti. Þegar kjötið er soðið, en það
er eftir 2—2 y2 tíma, er soðið siað og
froðan tekin ofan af.
Sósan:
3% dl. soð, 25 gr. smjör eða
smjörl, 25 gr. hveiti.
Smjörið er brúnað, hveitið hrært
út i, þynnt út með heitu soðinu. Látið
sjóða 10—15 mín. Salt sett í, ef með
þarf.
Sveskjubúðingur.
250 gr. sveskjur, % 1. vatn,
25 gr. sykur, 2 d. rjómi.
Sveskjumar eru lagðar í bleyti i
vatninu og sykrinum yfir nóttina.
Soðnar þar til þær eru meyrar, en
þó heilar. Þá eru sveskjumar tekn-
ar upp úr og settar í skál, vökvinn
látinn sjóða lengur, og honum siðan
hellt út yfir. Látið kólna. Rjóminn
er þeyttur og settur yfir búðinginn,
þegar hann er orðinn kaldur.
Húsráð.
Húsmæður, sem hafa mikið að gera
ættu eftir morgunverð, að setjast
niður svo sem 10—15 mínútur, til
þess að raða niður störfum sinum, og
annara er þær stjóma, yfir daginn.
Við það sparast mikill tími, sem
annars fer til óþarfa.
Ef þér viljið halda þvottaklemm-
unum hreinum, skuluð þér öðru
hvom setja þær í kalt sódavatn og
Pils og blússur eru nú sem fyrr
mjög í tízku, enda líka afar hentug-
ar flíkur. Þetta pils er úr brúnu, gulu
og grænköflóttu ullarefni, og blúss-
an úr brúnu „ullarjersey".
láta koma upp á þeim suðu, láta
þær síðan liggja í vatninu ca. hálf-
tíma, að því búnu skola þær vel og
þurrka.
1 hinum þéttbýlu stórborgum er
óviða nokkurt rúm fyrir garða, og
enda þótt svo væri, þá nær sólin
ekki að skína á þá, og þeir yrðu
þar af leiðandi til lítils gagns. En
í kringum hús þau, er standa í út-
jaðri borganna, er víða allmikið land-
rými og nægilegt sólskin. Á undan-
fömum ámm hefir verið unnið að
því að örfa menn til þess að skreyta
og fegra kringum heimili sín.
Síðast liðna átta mánuði höfum
við, ég og konan min, ferðast um
landið þvert og endilangt. Hvar sem
við fómm svipuðumst við eftir mat-
jurta- og blómagörðum, og okkur til
mikillar ánægju sáum við, að þeir
vom víðast hvar i kringum húsin,
í smærri borgum og þorpum. Þar
sem ég ólzt upp, en það var i sveit,
vom víðast hvar matjurtagarðar, en
blómagarðar vom sjaldséðir í þann
tíð. Foreldrar mínir áttu geysistóran
matjurtagarð, og vann ég í honum
langan tíma á hverju ári, og hlaut
góða menntun af.
Ég hefi oft undrast það stórlega,
að almennir kennaraskólar og háskól-
ar, skuli ekki gera meira að því en
er að kenna nemendunum garðyrkju-
störf, og vekja áhuga þeirra fyrir
öllu, er þar að lýtur, jafnt blóma-
görðum sem matjurtagörðum.
Ég hefi oft haldið því fram, að
væri ég á ný orðinn kennari, ein-
hversstaðar úti á landi, þá mundi
ég leggja ríka áherzlu á það, að
glæða áhuga bamanna fyrir garð-
yrkjustörfum, Ég mundi vinna að
því, að foreldrar og böm yrðu hreyk-
in af heimilum sinum, og langaði til
að fegra og prýða í kringum þau. Ég
mundi berjast fyrir aukinni garðyrkju,
heilbrigðum lifnaðarháttum, en um
leið ódýrari. Hvert heimili á að hafa
það mikla garðrækt að það eigi
kartöflur og annað grænmeti, eftir
því sem er um þroska þess, allt árið.
Þetta er jafnvel hægt í stórborgum,
því allvíða em í úthverfum borganna
garðlönd, sem bæjarfélögin leigja
íbúunum. Annars á það, sem ég hér
segi, aðallega við um smærri borgir
og þorp. — Kýr og hænsni ætti hvert
heimili að hafa, svo börn og full-
orðnir geti fengið holla og góða
fæðu. Blómsturgarðar eiga að vera
við hvert hús, því fallegt umhverfi
getur haft mikil áhrif á sálarlíf
manna. Við þekkjum það öll, hversu
fagurt landslag getur lyft huga okk-
ar yfir dægurþras og leiðindi, og lát-
ið okkur gleyma öllu, sem á móti
blæs.
Þó grein þessi sé rituð fyrir ame-
riska lesendur, á hún engu að síður
erindi til okkar hér á Islandi. Hér
er einnig vaknaður mikill áhugi fyr-
ir því að fegra og prýða umhverfi
heimilanna, en mikið er þó ennþá
ógert í þeim efnum. — 1 sjávarþorp-
um og sveitum þessa lands er enn
sem komið er, alltof lítið um skraut-
garða kringum hús, en vonandi stend-
ur slíkt til bóta. Að heita má hvert
heimili hefir matjurtagarð, og er það
auðvitað laukrétt, að nytsemdin só
látin ganga fyrir fegurðinni. En bezt
fer á, að hvortveggja fylgist að. —
I höfuðstaðnum hefir orðið mikil
framför í þessum efnum síðast liðin
10—15 ár, og nú má svo heita, að
ekkert hús sé byggt, án þess því
fylgi allstór garðlóð. Hugmyndir dr.
Cleveland Myers, um að glæða áhuga
bama á garðyrkjustörfum, eru ágæt-
ar, og ættum við hér að taka þær
upp.
Yfirmaður stríðsfréttastofnunarinnar
óskar frú Eddie Rickenbaeker, konu
hins fræga flugkappa, til hamingju,
eftir að hún hafði haldið ræðu í út-
varp til hermanna.
STÍFELSI
Helldsölubirgðir:
GUOMUHDUR ÓLAFSSON > CO.
Austurstræti 14. — Sími 5904.
Swaw
rakkrem mýkir og
styrkir húðina og
gerir raksturinn að
ánægju.
HeildsölubirgBir:
Agnar Norðfjörð & Co.h.f.
Sími 3183.
Dömur!
Hjá okkur getið þér fengið
J A K K A
prjónaða eftir máli,
og valið sjálfar um
liti og snið.
PRJÓNASTOFAN
IOPI & GARIU
Skeggjagötu 23. Sími 5794.