Vikan


Vikan - 16.09.1943, Síða 3

Vikan - 16.09.1943, Síða 3
VIKAN, nr. 37, 1943 3 Frjálst er í fjallasal, fagurt í skógardal, heilnœmt er heiðloftið tœra — Nú eru sumarleyfin á enda. Þeir sem síðbúnastir urðu, eru að tínast heim, og setjast nú á sína skrif- stofuklakka, raulandi þetta ljóð Stein- gríms, rif jandi upp endurminningarnar um himininn bláan og stóran, sem „lyftist með Skógarmannaskálinn við Eyrarvatn. ljóshvolfið skæra,“ — hátt yfir hamra- kór.“ Og: ,,Hér, uppi’ í hamraþröng hefjum vér morgunsöng glatt fyrir góðvætta hörgum: Viður vor vökuljóð vakna þú sofin þjóð. Björt ljómar sól yfir björgum.“ Og ungu meyjarnar og ungu mennirnir, skóladrengirnir og sendisveinarnir, — allt þetta fólk, sem átt hefir þess kost að njóta hins heilnæma og tæra heiðlofts, er nú að bollaleggja um það, hversu lengi vetrar því muni geta enzt sá forði fjörs og hreysti, gleði og góðlyndis, sem það hefir sótt út í náttúruna og safnað í sjóðu, í líkama sinn og huga, — á þessum fáu dögum, sem það mátti njóta frelsis i fjallasal og fögrum skógardal. Vér mætum sendisveini á Austurstræti, á brunandi ferð á hjóli, hlöðnu varningi. — Langt til sjáum vér að andlitið á drengnum er ljómandi af ánægju, og vér heyrum að hann syngur: „fagurt í skógar- dal“, hástöfum. En þegar hann er að fara yfir hitaveituhrygginn í Pósthússtræti, hrökkva nokkrir bögglar af hjólinu. Hann verður að fara af baki, til þess að hirða bögglana. En hann fer sér að engu óðs- lega, því að nú er hann að syngja hend- inguna: „himininn blár og stór------.“ „Farðu þarna frá, strákur!“ hrópar önugur bílstjóri, sem ekki kemst yfir hrygginn, fyrir drengnum, sem er að hag- ræða bögglunum á hjólinu sínu, — hug- fanginn af því, að — „björt ljómar sól yfir björgum.“ Bílstjórar og vegfarendur atyrða hann miskunnarlaust og hann færir sig hógværlega út að moldarhrúg- Yngstu Skógarmennirnir baða sig. unni við hitaveitu-rennuna, og lítur um leið til hinna önugu vegfarenda brosandi, — góðlátlegu sólskinsbrosi. Og það er eins og lesa megi á svip hans: „Hvers vegna eruð þið svona önugir, allir! —- Þið ættuð að vita, hvað ég á mikið af sólskini til vetrarins. — Vesalingarnir!" Vér yrðum á drenginn, þar sem hann stendur við hjólið sitt, og bíður þess, að Skógarmenn vaktir til morgun- þvottar. bílarunan og vegfarendurnir, sem hann hefir stöðvað, komist leiðar sinnar, svo að hann komist sjálfur áfram líka. „Um hvað er þig að dreyma, karlinn!“ segjum vér. „Mig er ekki að dreyma,“ svarar hann og skellir á oss skjanna-sólskinsgeisla, úr sínum björtu „kastljósum“. „Ég er í sendi- ferð!“ „En eitthvað skemmtilegt hefir komið fyrir þig?“ „Já, mikið! Ég kom úr Vatnaskógi í gærkveldi, — og þar var gaman að vera, maður! Þú ættir að koma í Vatnaskóg og sjá skálann okkar og Eyrarvatn og Lind- ina og Kirkjuna, — já, maður! — þar er gaman að vera! Ég ætla að fara þangað aftur að sumri. Ég er Skógarmaður!“ Hann hendist á hjólið og þýtur vestur Austurstræti, syngjandi við raust, og byrjar nú á erindi eftir séra Friðrik, hinn elskaða foringja allra K. F. U. M. drengja og Skógarmanna: „Vér Skógarmenn skulum nú syngja, svo skerpist vor hugur og mund------.“ I sumar voru tuttugu ár liðin, síðan fyrsti drengjahópurinn fór til dvalar í Vatnaskógi á vegum K. F. U. M. í Reykja- vík. Síðan hafa sumarbúðir verið þar á hverju sumri, opnar drengjum um og inn- an fermingaraldurs. Sérstök deild innan K. F. U. M. hefir vaxið upp af þessu sumarstarfi, og er orðin ærið fjölmenn, en Framh. á bls. 13. Skógarmenn fagna nýjum gesti. ,Kirkja“ Skógarmanna í Vatnaskógi.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.