Vikan - 04.05.1944, Blaðsíða 10
VTKAN, nr. 18, 1944
Um leikföng
10
t'
rimn in
n 11 m i l i u
Matseðillinn
Smásteik (gulach).
1500 gr. kjöt, 180 gr. laukur,
2 teskeiðar salt, hálf teskeið
pipar, % tesk. negull, 8 lár-
berjalauf, 100 gr. tólg, 100 gr.
hveiti.
Kjötiö er hreinsað vandiega og
skorið £ ferstrenda, hæfilega stóra
bita. Þeim er velt í hveitinu og brún-
ítðir í fitunni með lauknum við góð-
an hita, svo að þeir verði móbrúnir
að lit. Meðan verið er að brúna kjöt-
ÍO, þarf að hræra vandlega í, svo að
allir bitamir brúnist jafnt. Þegar
búið er að brúna, er allt kryddið og
saltiö látið i og svo miklu af heitu
vatni hellt á, að það fljóti yfir. Steik-
in er soðin 1—2 klst. Smásteik á að
vera vel soðin. Sé sósan ekki nógu
þykk, má bæta i hana dálitlu af
hveitijafningi og ennfremur sósulit
og kryddi eftir smekk.
í' '
Hrísblóm.
j- 1500 gr. mjólk, 150 gr. hris-
mjöl, 50 gr. sykur, 40 gr.
möndlur, 1 tesk. salt, 50 gr.
kúrennur.
, Hrísmjölið er hrært sundur með
ofurlitiu af kaldri mjólkinni. Hitt af
mjólkinni er sett í pott, og jafning-
urinn látinn út í og hrært vel í á
íneðan og soðið í 15—20 minútur við
•hægan hita. Þá eru möndlurnar flysj-
aðar, saxaðar smátt og látnar í,
ásamt sykrinum og saltinu. Kúrenn-
umar eru þvegnar úr mörgum vötn-
um, þar til þær eru vel hreinar, síð-
'an soðnar i vatni 30 mín. Þegar þær
eru soðnar er vatninu hellt af þeim
og svo sem 1—2 teskeiðar settar í
tóma bolla; svo er hrísmjölsgrautn-
um hellt í bollana og þeir látnir vera
hér um bil fullir. Renna þarf boll-
ana að innan með köldu vatni áður
en sett er í þá. Þegar hrísblómið er
orðið kalt og stíft er því hvolft á fat
og borin skeið með á fatinu. Borðað
með heitri saftsósu sem eftirmatur.
Ljós jakki og dökkt pils er alltaf
snotur búningur. Pilsið er úr svörtu
ullarefni, en blússan úr svörtu flaueli.
Jakkinn er úr ljósgráu ullarefni.
Ef þér haflð borðað lauk og viljið
ná bragðinu í burtu, þá er gott að
borða eina saltaða sneið af sítrónu.
Leikföng. Það kann að þykja
óþarfa afskiptasemi að gera leikföng
barna að umtalsefni. Þetta er þó ekki
þýðingarlaust atriði, og svo mikla
áherzlu leggja sumar útlendar þjóð-
ir á þetta mál, að i skólum, þar sem
stúlkum er kennd hjúkrun ungbarna,
er það eitt af verkefnunum, að bera
til einföld leikföng við hæfi barna á
ákveðnum aldri.
Það sem mestu máli skiptir um
val á leikföngum er að þau geti ekki
á neinn hátt skaðað barnið.
Hvitvoðungar hafa lítið við leik-
föng að gera, — valda þeim ekki, en
þegar barnið stækkar og fer að hafa
handastjórn, hefir það gaman af að
halda á einhverju. Nú láta börn á
óvitaaldri allt upp í sig, sem þau í
ná og má þvi ekki fá þeim neitt, sem
þeim geti orðið mein að, t. d. ekkcrt
úr blýi, ekki heldur málaða muni
(eitur í litum), ekkert mjög smálegt,
sem þau kynnu að gleypa eða troða
upp i nef eða eyru (kaffibaunir,
hnappar, smápeningar) og að sjálf-
sögðu ekkert, sem þau geta særzt á
(hnífar, skæri, prjónar, glcrbrot) og
ekki eldfæri. — Ekkert af þessu er
bamameðfæri. — Þá er enn ótalið
eitt atriði, ekki þýðingarlitið; leik-
föng ungbarna flækjast oft og einatt,
detta á gólfið og voiast margvíslega)
og þarf þvi að þvo þau oft og hclzt
sjóða. Leikföng ungbama ciga því
helzt að vera af þeirri gerð og úr
þeim efnum að þau þoii þvotta og
suðu. Á seinni árum hefir verið gert
alit of mikið að því að flytja hingað
inn tilbúin leikföng frá útlöndum,
mörg eflaust fögur á að iíta, en ekki
að sama skapi hentug, og skal þar
tilnefna hin og þessi dýralíki í loð-
feldum, birni, hunda, kindur o. fl.
þess háttar. Það gefur að skilja, að
óhemju ósköp af ryki getur safnast í
þessa loðfeldi og ekki ailt sem hoil-
ast (gerlar, sýklar), en ómögulegt
að þrífa þá. Þess háttar leikföng
skyldi því aldrei kaupa handa ung-
börnum. Þá eru okkar gömlu leikföng
ólikt hentugri: leggir, völur, kufung-
ar, skeljar, ,,ísubein“, „trjámenn",
hestar, kýr og kindur úr tré og m. fl.,
Gerber’s Cereal Food
er talið af læknum og
ljósmæðrum vera nær-
Ingarbezta barnafæða. -
Fæst í pökkum og dósum
I
Ný Ijóðabók:
Sönpr dalilluiinar
eftir
Guðrúnu Guðmundjdóttur
Þessi litla fallega ljóða-
bók, sem er bundin í mjúkt
skinnband, er tilvakn gjöf
við mörg tæk'færi.
Gefið stúlkum hana í
fermingargjöf.
Hún kostar 15 krónur.
Bókaverzlun Isafoldar.
tfiitituiiiMn iim itiuon tiiBttm t
og fleira —
því að allt þetta má sjóða, þegar vill
án þess að skemma það á nokkum
hátt, og hefir margur haft ánægju
af i æsku sinni, engu síður en útlenda
dótinu. Leikföng þurfa alls ekki að
vera verðmæt né margbrotin til þess
að börn hafi gaman af þeim, því að
„litið er ungs manns gaman“, og
„litið hugnast litla fólkinu",
„Leikur er barna yndi,“ eins og
allir vita og á því sízt að amast við
að þau leiki sér.
Útileikir eru náttúrlega hollastir,
þegar svo viðrar að þeim verði við
komið, en nú er vist að verða allt of
lítið um útiveru bama og útileiki, af
eintómri vorkunnsemi og ailt of mik-
illi hræðslu við kuldaun, „að kunni
að slá að barninu.“ Heilbrigð böm
þola vel að vera úti, þó frost sé og
vindur nokkur, og þá þessa helzt ef
þau hafa snemma vanizt á daglega
líkamsþvotta. hörundsstrokur og ein-
hverja fimleika. Hitatempmnar hör-
undsins gætir svo miklu betur, ef það-
er smávanið við loftið: börnunum
lofað að striplast inni, ýmist alls-
bemm eða fáklæddum og jafnvel lof--
að út lítt klæddum, t. d. með bera
handleggi, bert brjóst og beran háls,
berhöfðuðum og berfættum, þegar
svo ber undir og hlýtt er í veðri, og
þarf ekki endilega að vera sólskin.
Þetta er eiginlega nokkurskonar loft-
bað, enda er það kallað svo og öllum
talið hollt. Það er miklu betra en
ekki að taka það inni; hreyfa sig
eitthvað, litt klæddur eða allsber,
inni hjá sér, hlaupa fram og aftur
um herbergið eða iðka einhvcrja
fimleika og hafa húðstrolcur þess á
milli. Allt þetta má kcnna stálpuð-
um börnum snemma. Næsta stigið
er þá að leika þessa fimleiki fyrir
opnum glugga, og er alveg óhætt.
Er þá skemmst til þess að óhætt sé
að fara fáklæddur út, láta loftið
leika um sig stundarkorn, en standa
ekki kyrr (hlaup, fimleikar).
Það er bczt að hreinsa hárgreið-
ur með vatni, sem dálitlum salmíak-
spíritusi er hellt út í.
Búðingsduft
með súkkulaði- og
vanille-bragði.
EFNAGERÐIN STJAUNAN
Kemisk-tcknisk verksmiðja
Dorgartúni 4. Sími 5799.
_______________________________