Vikan - 30.11.1944, Page 1
íslenzkar
Hjúkrunarkvennastéttin ís-
lenzka er ekki gömul. Fyrsta
lærða íslenzka hjúkrunarkon-
an tekur ekki til starfa hér á
landi fyrr en árið 1907. Félag
íslenzkra hjúkrunarkvenna var
stofnað árið 1919 og hefir unn-
ið mikið og gott starf á sínu
sviði, enda lagt ríka áherzlu á
menntun stéttarinnar og berst
nú mjög fyrir endurskipun
hjúkrunarfræðslunnar.
að má lengi deila um, hver stéttin sé
nauðsynlegri en önnur í þjóðfélag-
ínu og sjálfsagt ekki hollt að fara út í
slíkan meting í neinni alvöru, en ekki er
nokkur vafi á því, að þær stéttir, sem
vinna að bættu heilbrigðisástandi í land-
inu, starfa að einu lífsnauðsynlegasta mál-
inu, er þjóðfélag hefir með höndum.
í „Skipun heilbrigðismála á Islandi", er
Vilmundur Jónsson landlæknir hefir samið
og út kom árið 1942, segir m. a.: „Árið
1919 stofna íslenzkar hjúkrunarkonur fé-
lag með sér, sem síðan hefur komið mjög
við sögu íslenzkra heilbrigðismála. Til
þess tíma höfðu hjúkrunarkonur orðið að
sækja sérmenntun sína út úr landinu, en
eftir því sem sjúkrahúsum f jölgaði og þau
gerðu ákveðnari kröfur til að hafa kunn-
andi hjúkrunarkonum á að skipa, varð æ
tilfinnanlegri skortur lærðra hjúkrunar-
kvenna í landinu. Lét hjúkrunarkvennafé-
lagið það vera sitt fyrsta verk — og bætti
með því úr brýnni þörf — að skipuleggja
hjúkrunarfræðsluna. Var það með því að
ráðstafa nemendum til náms á innlendum
sjúkrahúsum, en sjá þeim síðan fyrir fram-
haldsnámi erlendis. Hafði Félag íslenzkra
hjúkrunarkvenna allan vanda af þessu,
unz Hjúkrunarkvennaskólinn tók til starfa
á, vegum Landsspítalans". í nýútkomnu
Hjúkrunarkvennablaði er birt greinar-
gerð landlæknis „um endurskipun hjúkr-
Framhald á bls. 3. Sigríður Eiriksdóttir, form. Félags ísl. hjúkrunarkvenna.
hjúkrunarkonur
.. ******