Vikan


Vikan - 25.01.1945, Síða 13

Vikan - 25.01.1945, Síða 13
VIKAN, nr. 4, 1945 13 .jtiiiiiiminiiiiiiiiiiiiiMiiiiimHiHiMiHnHiiHHiniiiiMiinMmiMiiMMiiiMMHmr »/^ | Dægrastytting 1 ^IIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMMIMIMIMIMIIIIi IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIMMt'' Felumynd. Faðirinn: Skelfing er að sjá, hvað drengurinn hefir fengið lágar einkunnir! Hvar er hann? Ég œtla svei mér að gefa honum ráðningu! Móðirin: Þú verður sjálfur að finna hann. Ekki kann ég við að koma upp um, hvar hann er. Hvar er drengurinn? Kóngsdóttirin og svarti kötturinn. BARNASAGA. Þú veizt líklega, að svartir kettir færa manni gæfu. Ef þú hefir ekki vitað það áður, þá færðu sannarlega að vita það, þegar þú lest þessa sögu, því að hún er um svartan kött, sem kom til kóngssonarins frá Bláfjöllum. Fljótt á litið var kötturinn mjög ljótur á að sjá, svo magur og aumingjalegur, að hirðmenn- imir hlógu að kóngssyninum og sögðu: „Skiljið köttinn heldur eftir hér úti í skóginum, hann getur aldrei lifað og þrifist!" Þetta var nefnilega langt inni í skóginum, og kóngssonurinn og fylgdarlið hans hafði séð kött- inn standa við rætur stórs trés. Hann hafði dott- ið niður úr amarhreiðri, sem var hátt uppi í trénu, örninn hafði náð í hann og ætlað að gefa ungunum sínum til þess að éta. En kóngssonurinn tók hann upp og batt um sár hans, hann gaf honum mjólk að drekka og tók hann með sér heim, og smám saman óx kött- urinn og varð heilbrigður og duglegur. Hann elti kóngssoninn um alit, hvert sem hann fór, alveg eins og tryggur hundur, og kóngssyninum þótti mjög vænt um hann. Dag nokkum fékk kóngssonurinn mynd af kóngsdótturinni á Perlueyjunni, og hún var svo falieg, að hann sagði: „Ég ætla að fara til Perlueyjar og reyna að fá yndislegu kóngsdóttui'iiia fyrir brúði!“ Og það gerði hann; hann lagði af stað með mikið og fritt fömneyti, en svarta kettinum gleymdi hann ekki, kötturinn fylgdi honum alltaf. Margir aðrir kóngssynir höfðu heyrt getið um fegurð kóngsdótturinnar og séð myndina af henni, það var þess vegna fullt af biðlum í konungs- höllinni. Kóngsdóttirin vissi ekki hvem hún átti að kjósa sér, af þvi að margir vom fallegir og myndarlegir kóngssynir, allir vom þeir rikmann- lega klæddir, og allir lofuðu að hún skyidi fá að lifa í dýrð og gleði. En allt i einu tók kóngsdóttirin eftir litla, svarta kettinum, sem fylgdi kóngssyninum frá Bláfjöllum. „Ó, sjáið litlu, fallegu kisuna!" sagði kóngs- dóttirin hrifin. „Kis, kis, kis! Komdu hingað til mín!“ Og kötturinn hljóp til hennar og malaði svo gæðalega og strauk sér upp að fínu silkisokk- unum hennar, og hún varð svo hrifin, að hún sagði: „Þetta er fallegasti köttur 4 heimi, og ég ætla að giftast kóngssyninum, sem á hann!“ Er það þá ekki satt, að svartir kettir færa manni gæfu ? Það fannst kóngssyninum að minnsta kosti. En þegar brúðkaupið stóð sem hæst, birtist allt í einu galdramaður í kolsvartiri hempu með mörgum undarlegum táknum á; hann var með háan oddmjóan hatt á höfðinu, og á honum voru líka ýmsar myndir. Galdramaðurinn sagði nokk- ur orð — og í því hvarf kóngsdóttirin! Vondi maðurinn var líka horfinn, og enginn vissi, hvar þau voru. Nú ríkti mikil sorg í landinu, allra mest syrgði veslings kóngssonurinn, hann reikaði um aleinn og leitaði alls staðar að brúði sinni. Hann þoldi ekki að hafa neinn nálægt sér nema litla, svarta köttinn. „Ef þú gætir hjálpað mér!“ andvarpaði hann og klappaði kettinum. Hann leit í kringum sig, mjálmaði lágt og tók svo að hlaupa eftir mjórri tröð í skóginum. Við og við nam hann staðar og beið eftir kóngssyn- inum, sem kom á eftir. „Kötturinn visar mér, ef til vill, leiðina!“ hugs- aði hann og ruddi sér leið í gegnum greinar og þyrna án þess að sltipta sér af því, að þeir rifu í sundur föt hans og rispuðu andlit hans og hendur. Svona héldu þeir áfram lengra og lengra inn i skóginn, og allt í einu stóðu þeir fyrir framan höll, sem kóngssonurinn þekkti alls ekki. En hurðin var harðlæst, og ekki sást nokkur maður, sem gæti opnað fyrir honum. Á meðan hann stóð þarna og hugsaði um, hvernig hann ætti að komast inn í höllina, fór kötturinn að klifra upp múrinn, hærra og hærra, þangað til hann var kominn að opnum glugga; þar stökk hann inn og hvarf inn í höllina. En ekki leið á löngu áður en kóngsdóttirin leit út um gluggann og sá kóngssoninn, sem stóð þar fyrir neðan. Hún veifaði til hans hendinni, og svo kastaði hún kaðli út um gluggann, eftir að hún hafði fyrst bundið hann vel fast. Kóngssonurinn klifr- aði upp á reipinu og stóð loks við hlið sinnar kæru kóngsdóttur. „Við verðum að vera mjög hljóð," hvíslaði hún, „galdramaðurinn sefur, en töfrahúfan liggur við hlið hans, og hann vaknar við minnsta hljóð, þrifur húfuna — og þá getum við ekkert gert!" Þá læddist kötturinn varlega út úr stofunní, fór inn í svefnherbergi galdramannsins og þar lá hann og svaf með húfuna við hlið sér. Hann læddist hljóðlega og gætilega, ýtti dálítið við hattinum, svo að hann velt dálítið frá — svo beit kisa í hattinn og hljóp í burtu með hann og geymdi hann inni í herbergi kóngsdótturinnar. Svo fór kisa inn i herbergið, þar sem kongs- dóttirin og kóngssonurinn voru, mjálmaði lágt og fór með þau inn, þar sem töfrahatturinn var. „Nú hefirðu hjálpað okkur aftur!" sagði kóngs- sonurinn glaður. Hann þreif töfrahattinn, setti hann á höfuð sitt og óskaði, að þau væru öll komin heim og að galdramaðurinn væri i hlekkjum. Á sömu stundinni, var hann kominn ásamt kóngsdóttur- inni og litla svarta kettinum heim í konungshöll- ina, og hjá þeim stóð galdramaðurinn i hlekkj- um, alveg eins og kóngssonurinn hafði óskað sér. „Nú höldum við brúðkaup, en galdramaðurinn á að fara í fangelsi," sagði hann, og svo varð líka. Finnst ykkur ekki svarti kötturinn hafa fært þeim gæfu? Spakmæli. Á veltandi steini vex ekki mosi. „Ærslafull er æskan," sagði kerling og stökk yfir sauðarlegginn.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.