Vikan


Vikan - 01.02.1945, Side 8

Vikan - 01.02.1945, Side 8
8 VIKAN, nr. 5, 1945 Rasmína vill fá nýtt húsnæði Teikning eftir George McManus. Rasmína: Við flytjum héðan, innréttingin • er ómöguleg! Ég fer í dag að leita að nýju húsnæði. Gissur: En hvar fáum við aðra íbúð, Rasmína? Rasmína: Við finnum eitthvað — við förum bæði út og leitum — annars kaupum við hús, ef í harð- bakka slær! Kláus: Þér eruð heppnar, frú Rasmína, það eru ekki færri en níu, sem vilja fá þessa íbúð! Rasmina: Þetta er einmitt það, sem ég hefi alltaf verið að leita að — ég skrifa strax undir samning- ana og borga fyrirfram tveggja mánaða leigu! Jósafat: Það var maður héma í morgun, sem vildi fá þessa íbúð leigða, en þér fáið hana, Gissur, því að hann vildi ekki taka hana nema til eins árs. Gissur: Mér þótti reglulega vænt um að sjá þessa íbúð — ég tek hana til tveggja ára og borga tvo mánuði fyrirfram. Rasmína: Ég er að reyna að gera yður það skilj- aniegt, að ég er búin að taka á leigu nýja íbúð og að við flytjum í dag. — Húseigandinn: Verið ekki reiðar, frú Rasmína, ég skil þetta allt mæta vel, það er fjölskylda reiðu- búin að flytja í íbúðina strax í dag. — Páll: Óska þér til hamingju, Gissur! Var að frétta, að konan þín væri búin að taka á leigu íbúð við hliðina á minni. — Gissur: Þú segir, að hún sé búin að skrifa undir samninginn! Frú Varman: Hvemig líður yður, frú Rasmína? Maðurinn minn hringdi og sagði, að Gissur væri nýbúinn að skrifa undir húsaleigusamning. — Rasmína: Er það satt! 1 sama húsi og þið eruð í! Rasmína: Ég ætla að rifta samningnum, maður- inn minn var búinn að skrifa undir annan — Gissur: Heldurðu að hún mamma þln lofi okkur ekki að sofa í eldhúsinu — okkur verður að minnsta. kosti ekki kalt þar — R.asmína: Þegiðu! Hvað eigum við að gera? — Rasmína: Ég er svo glöð — flutningsmennimir koma eftir hálftíma — ég er viss um, að ég verð ánægð með nýju íbúðina — það er ekki sama innan um hvaða fólk maður er — Gissur: Fínt — ég hitti Pál og hann sagði’mér, að þú værir búin að skrifa undir samninginn, svo að ég rifti mínum — Rasmína: Asni! Ég heyrði, að þú værir búinn að skrifa undir samning og rifti því mínum — og og ég sagði húseigandanum, að við færum í dag og nýtt fólk kemur því á hverri stundu — Gissur: Æ!

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.