Vikan - 07.06.1945, Side 2
I
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
VIKAN, nr. 23, 1945
Pósturinn | H
Kæra Vika!
Viltu nú leysa fyrir okkur úr
nokkrum spumingum ? Hvaða litir
okkur muni klæða bezt ? Hvernig
okkur fari bezt að greiða? Hvemig
skó við ættum að nota? Ég er 17
ára, með skollitað hár, breiðleit frek-
ar nefstór, blá augu, nærri meðal
kvenmaður á hæð, grönn, frekar
granna fótleggi, hjólbeinótt. — Vin-
stúlka mín er 15 ára. Skollitað hár,
breiðleit, freknótt, blágrá augu, ljósari
augabrúnir, meðal há, frekar grönn.l
svera fótleggi. Með fyrirfram þökk\
fyrir svörin. Tilhaldsrófur. '
Svar: Þú skalt skipta hárinu í
hiiðinni; ef þú hefir slétt hár þá
skaltu fá þér „permanent" og láta
leggja hárið í mjúkar bylgjur. Allir
bláir litir munu fara þér vel, einnig
rauðir. Vinstúlka þín ætti að greiða
svipað og þú, þið skulið báðar var-
ast að hafa hárið of sítt. Vinkonunni
fimu fara vel bláir og grænir litir.
Báðar ættuð þið að nota sem léttasta
skó og varið ykkur á hælunum að
þeir séu ekki of háir.
Kæra, ráðagóða Vika!
Mig langar til að vita hvort þú
getur hjálpað mér. Ég er með fallegt
hrokkið hár en er að byrja að
grána. Geturðu ráðlagt mér eitthvað
svo ég geti haldið minum rétta lit.
Ég er dökkhærð. En að lita það þýðir
ekki, þá fara krullumar úr, en þær
vil ég ekki missa. Kæra Vika! Ég
vona að þú getir hjálpað mér, ég er
ung þrátt fyrir hærumar, aðeins
þrítug. Lísa..
Svar:
Fyrst þú vilt ekki lita hárið, þá er
víst ekki hægt að gefa þér neitt ráð.
En það er alveg óþarfi að vera
óánægð með gráu hárin, því að þau
geta verið svo falieg. En það sem
gráhærðri konu ber að athuga vand-
lega er hárgreiðslan, því að ekkert
fer þeim eins illa eins og að hafa
lokkana lausa niður á bak. Grá-
hærðar konur ættu alltaf að vefja
hárið sem fastast upp að höfðinu.
Kæra Vika!
Ég undirrituð óska að komast í
bréfaviðskifti við pilta eða stúlkur á
aldrinum 15 til 17 ára, hvar sem er
á landinu. Með fyrirfram þökk. Erla
Lára Guðmundsdóttir, Stykkishólmi.
Héma sjást tvær myndir af sama hundinum, sem heitir „Fala“. A annarri
myndinni sést hann ásamt húsmóður sinni Betsy Porter.
Kæra Vika!
Viltu gera svo vel að birta fyrir
mig kvæðið: Tóta litla tindilfætt.
Ein af yngstu lesendunum.
Svar:
TÓTA LITLA TINDILFÆTT.
Hún var hýr og rjóð
hafði falleg hljóð.
Sveif með söng um bæinn
sumarlangan daginn.
Hún var hér og þar
á hoppi allsstaðar,
en saumaskap og lestri
sinnti hún ekki par.
Tóta litla tindiifætt
tók þann arf úr föðurætt
að vilja lifsins njóta.
Veslings litla Tóta.
öllum gaf hún undir fót
og umvandanir dugðu ei hót.
„Aðrar eru ekki betri ef að er
gætt,"
anzaði hún Tóta litla tindilfætt.
Mamma Tótu var
mesta ógnar skar
með andlit allt í hrukkum
og hún gekk á krukkum.
Eitt sinn upp hún stóð
og æpti: „Dóttir góð,
sæktu mér að lesa
sögur eða ljóð.“
Og Tóta litla tölti á stað
til að ná í Morgunblað.
„Seint ert þú á labbi,"
segir Fjólu-pabbi.
„Ekkert varðar þig um það,
ég þarf að fá eitt Morgunblað,
maður getur alltaf á sig blómum
bætt,“
svaraði hún Tóta litla tindilfætt.
Hesturinn við gluggann: Sá er
Ijótur þessi! Svona húðarbykkju vildi
ég ekki eiga!
Gefið böröunum
Pablum eda Paben
barnafæðu.
Hrærið PABLUM eða PABENA með gaffli út í volgri
mjólk eða vatni og rétturinn er tilbúinn. Hafið mjólk út
á eftir vild, PABLUM eða PABENA er vítamínrílit barna-
mjöl, sem ekki þarf að sjóða.
Fæst í apotekum og flestum matvöruverzlunum.
Heildsölubirgðir:
Fridrik Bertelssen & Co. h.f.
Hafnarhvoli. Símar 1858, 2872. Reykjavík.
Eftirlætishundur.