Vikan


Vikan - 07.06.1945, Blaðsíða 6

Vikan - 07.06.1945, Blaðsíða 6
6 „H-h-h-hvað eigum við að gera næst?" spurði hann. ? ; „Við ættum að taka okkur þægilega stöðu bak við þessa hurð,“ sagði Bobby. „Og þegar vinur okkar kemur aftur, sem ég held verði ekki alveg strax, þá. skulum við ráðast á hann að aftan, og fiá á nú vist ekki von á því. Hvemig lízt þér á það Badger? Ertu til I það?“ „Já, áreiðanlega.“ „Og það er bezt að þú, Frankie, þegar þú heyrir fótatak hans setjist aftur í stólinn þinn. Hann sér þig þá undir eins og hann opnar dyrnar og gengur alveg grunlaus inn.“ „Allt í lagi,“ sagði Frankie. „Og þegar þið Badger hafið fellt hann þá skerst ég líka í Jeik- inn og bít hann í öklann eða eitthvað þess háttar.“ „Þetta er hinn sanni, kvenlegi andi,“ sagði Bobby viðurkennandi. „En nú skulum við setjast hérna saman á gólfið og hcyra nánar um allt. Mig langar tii þess að vita hvaða dularfulli kraftui' færði okkur Badger hingað í gegnum þak- gluggann." „S-s-s-sjáið þið nú til,“ sagði Badger; þ-þ-þegai þlð voruð farin, 1-1-lenti ég í ýmsum vandræðum.“ Hann þagnaði. Smám saman fengu þau að heyra aila söguna, saga skulda, lánveitenda og fógeta — ósvikin Badgers vandræði. Bobby hafði farið í burtu án þess að skilja eftir nokkuð heim- ilisfang og aðeins tekið það fram, að hann ætlaði að aka Bentleynum til Staverley. Þess vegna kom Badger til Staverley. ,,Ég hélt, að þú mundir k-k-k-kannske geta hjálpað mér,“ sagði hann. Bobby fékk sting í hjartað. Hann hafði farið til London til þess að hjálpa Bobby, en svo hafði hann yfirgefið stöðu sína til þess að gerast leyni- lögregluniaður með Frankie. Og þrátt fyrir allt þá sagði Badger ekki eitt ásökunarorð. Badger langaði ekki til að stofna þessu leynd- ardómsfulla fyrirtæki Bobbys í hættu, en hann var þeirrar skoðunar að það værl ekki erfitt að finna bíl eins og Bentleyinn í litlu þorpi eins og Staverley. En hann sá bílinn áður en hann'kom til Staver- íey, þvl að hann stóð fyrir utan veitingahús mann- laus. ,,Þ-þ-þ-þá datt mér í hug,“ hélt Badger áfrain. ’.að eg skyldi leika á þ-þ-þig. Það voru t-t-teppi ög' ýmislegt dót í aftursætinu og enginn var n-n-n-nálægt. Ég f-f-f-för inn í bílinn og breiddi t-t-t-teppin yfir mig. Ég ætlaði nú aldeilis að gera þig hissa.“ En það sem svo gerðist var það, að bílstjóri í grænum einkennisbúningi kom út úr veitingahús- inu og Badger var þrumulostinn, þegar hami sá að bilstjórinn var ekki Bobby. Sá ókunnugi fór inn í bílinn og ók af stað. Badger var í mestu vandræðum. Hann vissi ekki, hvað hann átti að taka til bragðs næst. Útskýringar og afsakanir voru erfiðar, það var að minnsta kostí ekki auðvelt að útskýra fyrir manni, sém ók á aextíu iníina hraða á klukku- stund. Badger ákvað að liggja niðri og læðast út, þegar bíllinn stöðvaiðist. Bíllinn kom að lokum á áfangastaðinn Tudoi- Cottage. Bílstjórinn ók honum inn i bílskúr og skildi hann eftir þar, en áður en hann fór út, lokaði hann skúrdyrunum. Badger var fangi. Það var lítill gluggi á annari hlið skúrsins; og um hálfri klukkustund siðar hafði Badger séð Frankie nálgast, heyrt hana blístra og séð að henni var hleypt inn i húsið. Badger hafði hvorki skilið upp né niður í þessu öllu. Hann fór að gruna að eitthvað væri bogið við þetta. Hann ákvað nú að minnsta kosti að líta í kringum sig og grennslast eftir því, hvað gengi eiginlega á. Með hjálp nokkurra verkfæra, sem voru í bíl- skúmuin, þá gat hann opnað læsinguna á skúr- hurðinni og lagði síðan af stað í rannsóknarleið- angur. Gluggamir á fyrstu hæð vom allir lokaðir, en hann áleit að með því að komast upp á þakið gæti hann kíkt inn um efri gluggana. Það var ekkert erfitt að komast upp á þakið. Það var ( þægilegt rör, sem lá upp bílskúrinn og frá bíl- skúrsþakinu og upp á húsþakið var auðvelt að klifra. Á leið sinni hafði Badger komið á • þak- gluggann. Náttúran og þungi Badgers hafði séð um afganginn. Bobby dró andann djúpt, þegar frásögntnni var lokið. „En þrátt fyrir allt,“ sagði hann hátíðlegur, ,,þá ertu kraftaverk — alveg einstakt kraftaverk! /Ef þú hefðir ekki komið Badger, drengur minn, þá hefðum við Frankie verið liðin lík eftir klukkn- stund." Hann sagði Badger í fáum dráttum frá þvi, sem hafði komið fyrir þau Frankle. Þegar hann var MAGGI Kaggi: Er það satt, sem ég hefi heyrt, að það eigi að fara að auka við vasapeningana þína? Raggi: Ég hefi heyrt, að þú eigir að fá krónu meira á viku! Raggi: Er þetta satt eða ekki? Maggi: Það er bara orðrómur! Maggi: En ef þú vilt halda þessum orðrómi við, þá skal ég gefa þér helming af öllu, sem ég fæ í viðbót! VIKAN, ur. 23, 1945 kominn að þvi að ijúka frásögninni, þagnaði hann. „Einhver er að koma. Vertu á þínum stað, Frankie. Jæja, nú held ég að vinur okkar, leikar- inn, Basslngton-ffrench verði hissa.“ Frankie settist aftur á brotna stóiinn. Badger og Bobby stóðu reiðubúnir bak við hurðina. Fótatak heyrðist koma upp stigann, ljósglæta sást fyrir neðan hurðina. Lykli var stungið i skrána, hurðin var opnuð. Kertaljósið iýsti á Frankie, sem sat samanhnipruð á stólnum sínum, nú gekk fómardýr þeirra inn. Svo tóku Badger og Bobby undir sig stökk. Þetta gekk fljótt og vel. Maðuriim, sem átti sér einskis ills von, var sleginn niður, missti kertið, er Frankie greip, og nokkrum augnablikum siðar stóðu vinimir þrír og litu með illkvittnislegri ánægju á manninn, sem var rammlega bundinn með sömu böndunum og þau höfðu áður verið bundin með. „Gott kvöld, herra Bassington-ffrench," sagði Bobby —,og getum við álasað honum, þótt rödd hans væri fagfnandi? „Það er ágætt jarðarfarar- veður i kvöld.“ 30. KAFLX, Undankoma. Maðurinn á gólfinu horfði á þau. Gleraugun höfðu dottið af honum og einnig hatturinn. í>að þýddi nú ekkert að látast iengur. 1 kringum augnabrúnimar vom dauf merki þess, að' hann hafði málað sig, en að öðm leyti var andlitið hið skemmtilega, sviplitla andlit Roger Bassing- ton-ffrench. Hann talaði með sinni þægilegu, björtu tenór- rödd. „Mjög merkilegt," sagði hann. „Eg vissi það vel, að maður bundinn eins og þér, gæti ekki sparkað stígvélinu i gegnum þakgluggann. En af því að stígvélið var þarna í glerhrúgunni, þá áleit ég nú samt, að þetta hefði gerzt og það ómögu- lega reynst mögulegt. Þetta er merkileg stað- reynd um takmörk heiians." Enginn sagði neitt, hann hélt áfram með sömu íhugandi röddinni: „Nú hafið þið eftir allt unnið leikinn. Mjög óvænt og ákaflega sorglegt. Ég hélt að ég hefðl leikið sniðuglega á ykkur öll.“ „Svo var og,“ sagði Frankie. „Ég býst við að þú hafir falsað bréfið frá Bobby?“ „Ég hefi hæfileika í þá átt," sagði Roger hæversklega. „Og Bobby?“ Roger, sem lá á bakinu og brosti ánægjulega, virtist hafa mestu ánægju af því að gefa þeim upplýsingar. „Ég vissi að hann mundi fara til Herragarðsins. Ég þurfti ekki annað en að bíða á milli mnn- anna nálægt stignum. Ég var þama rétt fyrir aftan hann, þegar hann var á leiðinni tilbaka eftir að hafa dottið nokkuð klaufalega niður úr tré. Ég lét hann átta sig dálítið og sló hann svo laglega í hnakkann með sandpoka. Svo þurfti ég ekki að gera annað en að bera hann út í bilinn minn, sem beið, setja hann inn i bilinn og aka honum hingað. Ég var kominn heim aftur fyrir dögun.“ „Og Moira?“ spurði Bobby. „Lokkuðuð þér bana eitthvað í burtu?" ^ Roger skellihló. Þessi spumirig virtist,skemmta honum mjög. „Fölsun er mjög nytsamleg list, kæri Jones," sagði hann. „Bölvað svínið," hvæsti Bobby. Frankie tók til máls. Hún var ennþá full af forvitni, og fangi þeirra virtist vera í bezta skapi „Hvers vegna lézt þú vera Nicholson ?“ spurði hún. „Já, hvers vegna gerði ég það?“ Roger virtist leggja sömu spuminguna fyrir sjálfan sig. „Sum- part held ég af þvi, að ég hafði gaman af þvi. að vita, hvort ég gæti blekkt ykkur bæði. Þið vorað svo sannfærð um að veslings, gamli Nichol- son væri höfuðpaurinn." Hann hló og Frankie

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.