Vikan - 07.06.1945, Síða 3
VIKAN, nr. 23, 1945
3
Frá. vinstri: Parker, bæjarfulltrúi (Gestur Pálsson), Soppitt (Ævar R. Kvar-
an), Helliwell, bæjarfulltrúi (Haraldur Björnsson), frú Northrop (Emilía
Borg), Maria Helliwell (Anna Guðmundsdóttir), Annie Parker (Regína Þórð-
ardóttir), Clara Soppitt (Soffía Guðlaugsdóttir).
T EIKFÉLAG REYKJAVlK-
UR hefir að undanförnu
verið að sýna gamanleikinn
„Gift eða ógift“, eftir enska
höfundinn J. B. Priestley. Leik-
stjóri er Lárus Pálsson, en Bogi
Ólafsson hefir þýtt leikinn. Á
undan sýningunni lék hljóm-
sveit undir stjórn Þórarins Guð-
mundssonar forleik úr óperett-
unni Galathé hin fagra, eftir
Franz v. Suppé.
Það var verulega skemmtilegt
að sjá þennan leik, hressandi að
hlæja að hnittnum setningum
og kátbroslegri flækju leikrits-
ins. Leikendurnir stóðu sig yfir-
leitt ágætlega, svo að heildar-
svipurinn varð góður, enda voru
þetta nærri allt þaulvanir og
hæfir leikarar. Það var gaman
að sjá Ævar R. Kvaran leika
aldraðan mann; ég minnist þess
ekki að hafa séð hann í slíku
hlutverki áður. Gerfi hans var
sérlega gott og meðferð hans
á hlutverkinu prýðileg, svo að
auðséð er, að hann þarf ekki að
„kvíða“ því er hann verður að
hætta að leika unga menn! Ung
stúlka vakti þarna eftirtekt á
sér með smekklegum leik. Það
er Jóhanna Lárusdóttir, sem lék
Nancy Holmes. Og ekki var það
að sjá á Ingu Laxness (Lottie
Grady), að hún hefði orðið að
taka að sér hlutverkið á síðustu
stundu, vegna forfalla annarar.
Sigrún Magnúdóttir lék þjón-
ustustúlkuna (Ruby Birtle) ör-
uggt og f jörlega og Emilía Borg
(frú Northrop) fór ágætlega
með sitt hlutverk.
En mest mæðir á blessuðum
hjónunum þremur, sem ætla að
gera sér sameiginlega gleði á
silfurbrúðkaupsdaginn þeirra
allra. Frúrnar voru aðdáanlega
skemmtilegar, einkum þó Soffía
Guðlaugsdóttir (frú Soppit).
Hinar voru Anna Guðmunds-
dóttir (Maria Helliwell) og
Regína Þórðardóttir (Annie
Parker). Þær réðu allar mjög
vel við hlutverk sín og gerðu
þeim prýðileg skil. Sama má
segja um þá, sem léku menn
þeirra, einkum þó Harald
Bjömsson (Joseph Helliwell
bæjarfulltrúi) og Ævar R. Kvar-
an (Herbert Soppitt), en þriðja
eiginmanninn lék Gestur Páls-
son (Albert Parker bæjarfull-
trúi). Láms Pálsson lék ungan
mann (Gerald Forbes), ekki
mikið hlutverk, en fór með það,
eins og hans var von og vísa,
ágætlega. Brynjólfur Jóhannes-
son lék drukkinn ljósmyndara,
nokkuð sterkt á köflum, en
komst prýðilega út öllu saman,
eins og hann er vanur.
Þessi leikur kemur manni í
prýðilegt skap, svo gott skap,
að maður gleymdi því stundum
alveg, hve erfitt var að teygja
sig sitt á hvað til þess að sjá
nægilega stóran hlut af leiksvið-
inu. Sætin standast svo ónota-
lega á sumstaðar í leikhúsinu,
að það eru hreinustu vandræði,
ef ekki er því minna fólk fyrir
framan mann. Ekki veit ég,
hvort hægt er að ráða bót á
þessu í Iðnó, en slæmt er það
I leikskránni segir, að J. B.
Priestley, höfundur þessa gam-
anleiks, sé fæddur í iðnaðarbæn-
um Bradford í Yorkshire á
Norður-Englandi árið 1898. —
Hann hefir fengizt við marg-
vísleg ritstörf, verið bóka- og
leikritagagnrýnandi við ensk
blöð og skrifað skáldsögur og
hve sú nýjasta fjalla um líf
Framhald á bls. 7.
Frá vinstri: Albert Parker, bæjarfulltrúi (Gestur Pálsson), Herbert Soppitt
(Ævar R. Kvaran), Joseph Helliwell, bæjarfulltrúi (Haraldur Björnsson))
frú Northrop (Emilía Borg), Ruby Birtle (Sigrún Magnúsdóttir), Maríe
Helliwell (Anna Guðmundsdóttir), Annie Parker (Regína Þórðardóttir),
Clara Soppitt (Soffía Guðlaugsdóttir).
„Gift eða ógift"
Helliwell, bæjarfulltrúi og frú, Lottie Cracy (Inga Laxness), Henry
Soppitt og frú, Parker og frú. Ormonroyd (Brynjólfur Jóhannes- Frá vinstri: Parker, Soppitt, Helliwell, Ormonroyd, Lottie Crady, Maria
son) Helliwell, Annie Parker og Clara Soppitt.