Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 16, 1946
Pósturínn
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð að svara nokkr-
um spurningum fyrir mig. Hvenær
og hvar eru eftirtaldir ieikarar fædd-
ir: Bette Davis, Marlene Dietrich,
Robert Donat, Deanne Durbin, Nel-
son Eddy.
Fyrirgefðu allar spurningamar
Snúlla.
Svar:
Bette Davis er fædd 5. april 1908, í
Boston, Marlene Dietrich 27. septem-
ber, 1902 í Berlín, Robert Donat 18.
marz 1905, í Manchester, Deanne
Durbin 4. desember 1922 og Nelson
Eddy 29. júni 1901.
Kæra Vika mín!
Hvort er Robert Taylor enskur eða
amerískur. Við veðjuðum um .það
tvær vinstúlkur.
Hvor hefir rétt fyrir sér?
Tvær ósáttar.
Svar: Robert Taylor er amerískur.
Kæra vika!
Af þvi ég hef oft séð, að ekki er
að fara í geitarhús að leit sér ullar,
að spyrja þig, þá sný ég mér til þín
í þeim tilgangi að fá upplýsingar um
það, hvort dagblöð taki þóknun fyrir
það að birta eftirmæli.
Óska eftir svari sem fyrst.
Þinn Fávís.
Svar: Eftir því sem við bezt vit-
um, þá er það ekki gert.
Kæra Vika!
Við undirritaðir. óskum eftir að
komast í bréfasamband við stúlkur á
aldrinum 17—25 ára einhverstaðar á
landinu.
Með kveðju og þakklæti.
Daði Magnússon, Þingeyri. Sveinn
Hafnfjörð, Þingeyri. Herbert ólafs-
son, Kúvíkum. S.t.s. Svavar Þor-
láksson, Veiðileysu. S, t. s.
Og nú staddir á m. b. Hörpu.
Flateyri.
Kæra Vika!
Ég kunni einu sinni fyrir löngu
kvæði, sem ég man nú ekki nema
fjórar línur úr og er ég ekki viss úm
að þær séu réttar, en þær eru svona:
Eg minnist þín er sé ég sjóinn glitra
við sólarhvel — ég heyri þig er þýt-
ur fjarlæg alda svo þungt og ótt. —
Ég hefi enga hugmynd um, hvar
Framhald á bls. 15.
1. Er sjöundi mánuðurinn kom, og
Israelsmenn voru í borgum sínum,
safnaðist allur lýðurinn saman eins
og einn maður á torginu fyrir fram-
an Vatnshliðið. Þá kom Esra prest-
ur, með lögpnálið fram fyrir söfnuð-
inn og las upp úr þvi.
2. Þegar Esra hafði lokið lestr-
inum, þá fór fólkið til þess að eta og
drekka og senda skamta og halda
mikla gleðihátíð, því að þeir höfðu
skilið þau orð, er menn höfðu kunn-
gjört þeim.
3. 32g vil lofa drottin af öllu hjartá
í félagi og söfnuði réttvísra.
Mikil eru verk drottins,
verð íhugunar öllum þeim, er
hafa unun af þeim.
Tign og vegsemd eru verk hang
og réttlæti hans stendur
stöðugt að eilífu.
4. Og daglega héldu postulamir
sig í helgidómnum og brutu brauð í
heimahúsum, og neyttu fæðu með
fögnuði og eínfaldleik hjartans og
lofuðu guð.
1. Á maðurinn að pretta guð, úr
því að þér prettið mig? Færið alla
tiundina í forðabúrið, til þess að
fræðsla sé til í húsi mínu, og reynið
mig einu sinni á þennan hátt, segir
drottinn hersveitanna, hvort ég lýk
ekki upp fyrir yður flóðgáttum him-
insins og úthelli yfir yður yfirgnæf-
anlegri blessun.
2. Einn af mannfjöldanum sagði
við hann: Meistari, seg þú bróður
mínum að skifta með mér arfi okkar.
En hann sagði við hann: Maður, hver
hefir sett mig dómara eða skiptaráð-
anda yfir ykkur ? Og hann sagði við
þá: Gætið þess að varast alla ágimd,
þvl að þótt einhver hafi allsnægtir,
þá er líf hans ekki trygt með eigum
hans.
3. Höfðingi nokkur sagði við
hann: Góði meistari, hvað á ég að
gjöra, til þess að ég erfi eilíft líf?
En Jesús sagði: Sel þú allar eigur
þínar og skipt þeim meðal fátækra,
og munt þú fjársjóð eiga í himnum;
og kom síðan og fylg mér. En er
hann heyrði þetta, varð hann mjög
hryggur, því að hann var auðugur
mjög. Þá sagði Jesús: Hversu torvelt
mun verða fyrir þá, sem auðæfi eiga
að ganga inn í guðsriki.
4. Því að auðveldara er fyrir úlf-
aldann að ganga gegnum nálarauga
en fyrir ríkan mann að ganga inn í
guðsríki.
Rafvélaverkstœði
Halidórs Ólafssonar
Njálsgötu 112. — Sími 4775.
Framkvæmir
allar viðgerðir á rafmagnsvélum
og tækjum.
Kafmagnslagnir í verksmiðjur
og hús.
Útgefandi: VIKAN H.P., Reykjavik. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.