Vikan


Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 10

Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 10
VIKAN, nr. 16, 1946 10 u ir i m ni i i i n HbLi i iii i LIU O MatseSillinn Tízkumynd Hamborgarskinke. Reykt svínslæri er afvatnað og síð- an soðið, að því loknu látið inn í heit- an ofn og brúnað. Ofurlitlu af sjóð- andi vatni bætt á; öðruhvoru þarf að ausa yfir steikina, og er hún soðin í 3 kl.st. Þegar steikin er tilbúin, er stráð yfir hana góðu lagi af flór- sykri og siðan látin i ofn með góðum yfirhita, til þess að sykurinn brúnist. Pramreidd með brúnni kjötkraftsósu, brúnuðum kartöflum og soðnu græn- meti. Hvít sagósúpa. iy2 1. vatn, 70 gr. sagógrjón, börkur af hálfri sítrónu, 2 egg, 50 gr. sykur, 1 teskeið sherry, 100 gr. sveskjur, 50 gr. rúsinur, safi úr hálfri sítrónu. Suðan er látin koma upp á vatn- inu, sagógrjónunum þá stráð út á og stöðugt hrært í þar til sýður. Soðin við mjög hægan eld i 10 min. Sítrónu- börkurinn er soðinn með í 5 mín., en tekinn upp úr áður en súpan er fram- reidd. Sveskjurnar og rúsínurnar eru soðnar sér í 10 min., siðan er súp- unni smátt og smátt hellt yfir á eggin, sem áður hafa verið hrærð hvít með sykrinum. Vatnið, sem rús- ínurnar og sveskjurnar voru soðnar í, er ekki notað. Sherry og sitrónusaf- anum er blandað í við framreiðsluna. (trr matreiðslubók Helgu Thorlacius). Hentugur búningur fyrir kornung- ar stúlkur. Svart, slétt pils og köflótt blússa. Blússan er sniðin út í eitt og erm- arnar mjög stuttar, fellingar að framan, undir beltinu, og i hálsmál- ið er hnýtt slaufa. á eftir úr. volgu vatni með ofurlitu af salmíakspiritus. Húsráð Kökudeig er hægt að geyma um tíma í kæliskáp, ef það er vandlega vafið inn í smjörpappír. Síðan er hægt að baka af því smám saman mismunandi kökur, eftir því hvort ávextir eða hnetur eru hafðar með því. Það er erfitt að hreinsa veggfóður. Ryksjúga má það gætilega eða bursta með linum bursta og strjúka það með mjúkum klút. Þegar olíu- málaðir veggir eru þvegnir er hægt að gera það úr kvillagaberki eða stelnolíu, en þvo verður vegginn vel Þurrkið aldrei ryk af með óhrein- um klút. Bezt er að hrista klútinn oft úti, þegar verið er að nota hann og þvo hann vikulega. Ryk á að þurrka af daglega með mjúkum klút, en gott er að nota einu sinni í viku þvottaskinn og á að vinda það upp úr volgu vatni. HUSMÆÐUK! MUNIÐ: REYKJ&VÍKUR. Enn um sojabaunir. ■■. Or „Nýjar leiðir“. —•••■>■ 1 síðasta biaði birtum við kafla úr grein Björns L. Jóns- sonar „Sojabaunauppskriftir" og fer annar hluti úr sömu grein hér á eftir: Sojabaunir sem sjúkrafæða. Þess er þegar getið, að sojabaunir eigi vel við sykursýki. Þær eru einnig góðar við blóðleysi, vegna þess að í þeim er allmikið járn og fjörefni. Sojamjólk (sjá síðar) þykir gefast vel við eks- emi, ekki sízt þeirri tegund þess, sem stafar af ofnæmi fyrir kúamjólk og algengt er á börnum. Þá reynist hún vel við niðurgangi í ungbörnum. Til þess að melta sojabaunir, þarf ekki nema litið af magasýru. Þær eru því góðar fyrir þá menn, sem hafa of miklar sýrur í maga, því að þær örva lítt til sýrumyndunar. Enn- fremur meltast þær fljótt og yfirgefa magann á 2—3 tímum, stundum á einum 80 mínútum. Fullkomnasta fæðutegundin. Það mun varla ofmælt, að sojabaunir séu hin fullkomnasta alira þekktra, nátt- úrlegra fæðutegunda. Þær innihalda öll helztu næringarefnin, sem manns- líkaminn þarfnast, og þau eru talin 34: aminósýrur, málmsölt, fjörefni o. s. frv. Til þess að þær geti talizt al- hæf fæða, vantar þær varla annað en kolvetni og C-fjörefni. En þetta fjör- efni má að vísu framleiða i þeim, á mjög einfaldan hátt, með því að láta þær spira. Úr kolvetnaskortinum er næsta auðvelt að bæta með því að neyta ásamt þeim náttúrlegra korn- tegunda, svo sem heilhveitis, rúg- mjöls, hafra, byggs. Ef sojabaunir eru notaðar óspíraðar, verður að sjá líkamanum fyrir nægum C-fjörefnum með því að borða mikið af nýju grænmeti eða nýjum aldinum. Ágæt aðferð til að sameina sojabaunir og kommat, er að búa til sojabrauð (sjá síðar). Sojamjöl. Úr sojabaunum er búið til sojamjöl. Til eru af því tvær teg- undir, feitt og magurt mjöl. Hið síð- ara er unnið úr baunum, sem hafa áður 'verið sviptar nokkru af fitu- magni sínu með þrýstingi eða kem- iskum aðferðum. Sojamjöl er að ýmsu leyti hentugra til matreiðslu en baunirnar sjálfar. M. a. má nota það' í brauð og kökur, búðinga o. fl. Á sjúkrahúsi einu í London kom það í Ijós, að ungböm, sem fengu sojamjöl til helminga á móti þurr- mjólk, þrifust vel og voru blóðmeiri en þau börn, sem fengu venjulega kúamjólk. Sojamjölk. Úr sojabaunum má með einföldu móti búa til sojamjólk. Hún líkist mjög kúamjólk að útliti og efnasamsetningu en hefir þó mun meira járn. Hún er auðmeltanlegri en kúamjólk, m. a. vegna þess, að hún hleypur ekki í eins stóra kekki í maganum. Því er það, að sumir sjúklingar, börn og fullorðnir, sem þola ekki kúamjólk, geta að ósekju neytt sojamjólkur. Talið er, að fimm- buramir' amerísku eigi sojamjólkinni lif sitt að launa. Þeir voru að veslast upp af meitingartruflunum, þegar dr. Kellogg ráðlagði vini sinum, dr. Dafoe, sem annaðist uppeldi fimm- buranna, að gefa þeim sojamjólk í stað kúamjólkur. Úr sojamjólk er hægt að búa til báeði smjör og osta. Spírun sojabauna. Baunimar em þvegnar vel og látnar liggja í bleyti í einn sólarhring (1 bolli af baunum í 3 bollum af vatni). Þá eru þær settar á grunnt fat eða bakka, að- eins 1 eða tvö lög, og látnar standa á hlýjum stað. Við og við þarf að bæta vatni á þær, en ekki meira en svo, að vatnið hylji botn ílátsins, þannig að baunimar haldist vel rakar. Eftir 4—5 sólarhringa eru baunimar orðnar nægilega spíraðar. Séu þær ekki notaðar þegar í stað, á að geyma þær í ísskáp eða á öðr- um köldum stað, eins og nýtt græn- meti. r 1 -4- ^ ýt- HBaiitúrat) Frúin (þegar hún er búin að máta alla hatta í verzluninni): Það var fallega gert af yður að sýna mér hattana, en ég kom nú annars í bæ- inn til þess að kaupa mér pels! Faðir við son sinn: Það er betra að þegja og láta menn halda, að maður sé kjáni heldur en að tala og láta menn ekki vera í neinum vafa um það.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.