Vikan - 13.02.1947, Síða 1
Gömul ungmennafélagamynd.
Þessi mynd var tekin i Iðnó vorið 1914, er Ungmennafélag
Reykjavíkur og Ungmennafélagið Iðunn héldu kveðjusamsœti
aðalhvatamanni stofnunar ungmennafélaganna í Reykjavik.
17'YRSTA Ungmennafélagið var stofnað
á Akureyri í árslok 1905. Maður sem
gekk í þetta félag á öðrum fundi þess, og var
þar aðeins á tveim fundum, en fluttist
þá til Reykjavíkur, var ekki í rónni fyr
en hann var búinn að koma á fót samskon-
ar félagi í Reykjavík, og 3. október 1906
var Ungmennafélag Reykjavíkur stofnað,
en Ungmennafélagið Iðunn nokkur síðar.
Segja má að félög þessi settu nokkum
svip á bæinn allt fram að heimsstyrjöld-
inni fyrri.
En félögin settu einnig svip á félags-
mennina.
Merkur maður sagði síðar: „Maður á
ekki að halda upp á afmælisdaginn sinn.
Maður á að halda upp á daginn, sem mað-
ur gekk í Ungmennafélag Reykjavíkur."
Hvað voru Ungmennafélögin?
Hverskonar hreyfing var þetta, sem
áróðurslaust fór eins og eldur í sinu um
landið allt.
Hugsandi menn hafa oft um þetta spurt.
Framh. á bls. 3.
Magnús Ólafsson tók myndina. Sjá skýringu á bls. 3,