Vikan - 05.06.1947, Page 2
2
PÓSTURINN
Paul Robeson.
1 síðasta blaði vorum við spurð
um heimilisfang söngvarans Paul
Robeson, en þar eð við vissum það
ekki spurðum við, hvort einhver
lesandanna gæti frætt okkur um
það. Fljótt var brugðið við. Rétt
eftir að blaðið var komið út hringdi
lesandi og gaf upp þetta heimilis-
fang: Paul Robeson, c/o Robert
Rockmore, 10 E. 40th St. New York,
New York.
Kæra Vika!
Eg hefi spurt þig svo margra
spurninga áður en þú hefir aldrei
svarað mér. Hér finst það dálítið
skrýtið að þú skulir aldrei svara mér,
en mér finnst þú alltaf svara öllum
öðrum sem leita ráða hjá þér.
Jæja, ekki þýðir að vera að kvarta
og kveina, en það sem ég ætlaði að
spyrja þig er: getur þú sagt mér
hvort nýji leikarinn ameríski Rony
Colhony komi hingað bráðum í
kvikmynd ? Ég vona að þú svarir
mér þá að þú hafir aldrei svarað mér
áður. Hvernig finnst þér skriftin?
Fyrirfram þökk.
Helena Ölafsson.
Svar: Þér kvartið mjög yfir því,
að yður sé ekki svarað hér í blaðinu.
Ekki er það af neinum óliðlegheit-
um eða fjandskap í yðar garð, held-
ur er sannleikurinn sá, að við get-
um ekki svarað nema litlum hluta
þeirra bréfa, sem til okkar berast.
Um þessa síðustu spurningu yðar er
það að segja, að við höfum ekki
hugmynd um, hvort þessi leikari
kemur hingað bráðum í kvikmynd
eða ekki. — Þá hefir yður verið
svarað að þessu sinni, en vonandi
tekst betur til næst, þegar þér skrif-
ið okkur — þvi aldrei erum við á
móti því að fá bréf. — Skriftin er
góð. ----
Kæra Vika!
Viltu gefa mér einhverja .upp-
lýsingar um eftirtalda leikara:
Dorothy McGuire, Diana Lynn og
John Loder. Svaraðu mér fljótt, ég
er svo óþolinmóð. Stelpa.
Svar: Dorothy McGuire er fædd 14.
júlí 1918 i Omaha Nebraska i Banda-
ríkjunum. Hún er ljóshærð og blá-
eygð og er gift John Swope. Síðustu
kvikmyndir hennar eru þessar: „Till
the End of Time,“ „Spiral Staircase,"
„Tree Grows in Brooklyn," „Claudia
and David.“
Diana Lynn er fædd 7. október 1926
í Los Angeles í Kaliforniu. Hún er
Ijóshærð og bláeygð og áður en hún
gerðist leikkona hafði hún það að
atvinnu að leika undir á pianó. Hún
er ógift og heitir réttu nafni Dolly
Loehr. Siðustu kvikmyndir hennar
eru þessar: „Easy Come, Easy Go,“
„Bride Wore Boots,“ „Out of This
World,“ „Our Hearts Were Grov-
ing Up.“
John Loder er fæddur 3. jan 1898
í London; kvæntur Hedy Lamar og
á tvö böm og eitt fósturbarn.
Hann hefir brúnt hár og brún
augu og hefir þrisvar sinnum hlotið
heiðurspening fyrir hugprýði. Síð-
Framh. á bls. 15.
Brunabótafélag
íslands
vátryggir allt lausafé
(nema verzlunarbirgðir). i
Upplýsingar í aðalskrif- |
stofu, Alþýðuhúsi (sími i
4915) og hjá umboðsmönn- i
um, sem eru í hverjum f
hreppi og kaupstað. i
JMIIIIBBIIIIItllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
VIKAN, nr. 23, 1947
Bréfasambönd.
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Vikunni hafa borist mjög margar
beiðnir um bréfasambönd á undan-
fömum árum og hefir hún birt þó
nokkuð mikið af þeim. Margir hafa
sent greiðslu fyrir birtinguna, en upp-
hæðirnar hafa verið mjög á reiki, frá
1 kr. upp í 10 kr. Blaðið hefir því
ákveðið að skapa fasta venju um.
þetta, að greiddar verði framvegis
fimm krónur fyrir birtingu á nafni,
aldri og heimilisfangi, og séu þær
sendar með beiðninni.
Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem óska
að komast í bréfasamband:
Hrafnhildur Helgadóttir (15—17 ára)
Heiðarveg 40, Vestmannaeyjum.
Þorgerður Bogadóttir (16—20 ára)
Háteigi 6, Akranesi.
Adda Sigurðardóttir (16—20 ára)
Vesturgötu 17, Akranesi.
Guðrún Jónasdóttir (18—22 ára)
Súðavík Áltafirði N-Is.
Sigríður Benjamínsdóttir (18—22:
ára) Súðavík Álftafirði N-Is.
Lalla Soffaníusdóttir (18—22 ára)
Vesturgötu 83 Akranesi.
Hernám Islands
Eftir Gunnar M. Magnúss
Bók, sem vekja mun alþjóöar athygli,
er komin í bókaverzlanir.
1 ritinu er skýrt frá flestu því, sem lýsir ástandstímabilinu. Bindið nær yfir fyrsta árið, að undanteknum annálunum, sem
ná yfir allt hernámstímabilið. Á ýmsum stöðum er brugðið upp stuttum frásögnum af daglegum viðburðum og einstökum
fyripbærum, er mörgu fremur varpa ljósi yfir hið almenna líf í landinu á tvíbýlisárunum. Heimildir um sögulega við-
burði eru í mörgum tilfellum sóttar persónulega til þeirra manna, er við sögu koma. Þá eru og heimildir fengnar frá blaða-
mönnum, starfsmönnum opinberra fyrirtækja og öðrum einstaklingum. Sumt er sótt í skýrslur, bréf og ritgerðir. —
Myndimar í ritinu hafa fæstar komið áður fyrir almenningssjónir. — I bókinni eru margir stórathyglisverðir kaflar og
fjöldi fólks, sem kemur við sögu, og mun þó verða meira í næsta bindi. — Þessi bók á erindi til allra landsmanna. Hún
geymir sögulegasta þáttinn í sögu íslenzku þjóðarinnar.
*
Bókaverzlun Isafoldar og útibúin Laugaveg 12 og Leifsgötu 4
I
Virkið
nordri
Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður; Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, simi 5004, pósthólf 365.