Vikan - 07.08.1947, Síða 2
2
VIKAN, nr. 32, 194T
PÓSTURINN •
Vika mín góð!
Þú ert alltaf svo þolinmóð að svara
öllu kvabbi, en mig langar nú samt
að spyrja þig um kvikmyndaleikar-
ann Turhan Bey. Hvað er hann gam-
all ? Er hann gif tur ? Er hann
Tyrki ? Hvað gerði hann áður en
hann byrjaði að leika?
Hefir hann leikið lengi?
Þakka svarið fyrirfram.
Forvitin.
Svar: Turhan Bey er fæddur 30.
marz 1919 í Vín. Hann erókvænturog
var faðir hans Tyrki. Skömmu fyrir
stríð fór hann til Hollywood og gerð-
ist kvikmyndaleikari, en áður hafði
hann ferðast víða um heiminn.
Kæra Vika!
Af því þú ræður fram úr öllum
mínum vandræðum, ætla ég að biðja
þig að gera svo vel að segja mér
hvað kvikmyndaleikkonan Judy Gar-
land er gömul og hvort hún er gift ?
Vonast eftir svari í næsta blaði.
Þín 'Nanna.
Svar: Judy Garland er fædd 10.
jan. 1923. Hún er tvigift, var fyrri
maður hennar Dave Rose, sá núver-
andi Vincente Minnelli.
Kæra Vika!
Vilt þú ekki vera svo góð, að svara
okkur eftirfarandi spurningum:
1. Hvaða bóklegar námsgreinar
eru kenndar í Loftskeytaskólanum ?
2. Þarf nokkurn vissan aldur, til
þess að fá þar kennslu?
3. Er hægt að komast þar að til
náms næsta vetur?
Með fyrirfram þakklæti.
Nonni og Manni.
Svar: 1. Póst- og símamálastjóm-
in starfrækir skólann og gefur hún
allar upplýsingar um námstilhögun.
— 2. Umsækjendur þurfa að vera
18 ára og hafa lokið gagnfræðaprófi
eða hlotið hliðstæða menntun. Skól-
inn hefst í oktober í haust og munu
enginn vandkvæði á að fá inngöngu.
Kæra Vika!
Getur þú sagt mér hvort kvenfólk
getur orðið loftskeytamenn. Og hve
langan tíma það tekur að læra það
og hvar það er kennt. Vonast eftir
svari í næsta blaði.
E. K.
Svar: Já, kvenfólk getur orðið loft-
skeytamenn og hafa tvær stúlkur
þegar lokið prófi með prýði. Náms-
tíminn er ca. 9 mánuðir. Að öðru
leyti vísast til bréfsins hér á undan.
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð að leysa úr
þessum spurningum fyrir mig:
1. Hvað kostar fæði og húsnæði
á hóteli í Rvík um viku tíma?
2. Hvemig á ég að komast í
bréfasamband við einhvem í Cali-
forníu ?
3. Er það virkilega satt að leik-
arablöðin séu hætt að koma?
Með ástarþökk fyrir svarið, sem
ég vonast eftir hið fyrsta.
Tiger-lily.
Svar: 1. Eins manns herbergi kosta
samkvæmt úrskurði verðlagsstjóra
kr. 27,50 á dag. Minni herbergi 21
krónu. Fæði er aðeins selt í ein-
stökum máltíðum og kosta misjafn-
lega mikið.
2. Við höfum engin ráð til að koma
þér I bréfasamband við „einhvem í
Califomíu.“
3..Leikarablöðin munu að heita má
alveg hætt að koma.
Kæra Vika!
Getur þú sagt mér hvort hægt er
að fá að lærá tannsmíði hér í bæn-
um (Reykjavík) ? Ef svo er, hvað
Framh. á bls. 15.
Þeir, sem nýlega hafa gerzt
bifreiða-eigendur,
og aðrir, sem bifreiðar eiga, þurfa að
eignast Bifreiðabókina, — nauðsyn-
lega handbók, — sem jafnan ætti að
liggjá í hverri bifreið.
tJtgefandi.
Bréfasambönd
Blrtlng á nafni, aldri og heimilie-
fangi kostar 5 krónur.
Hér fara á eftir nöfn þeirra, sem
óska að komaat í bréfasamband:
Irskur maður, Gerald Monaghan,
óskar að komast í bréfasamband við
íslenzka frímerkjasafnara. Heimilis-
fang hans er: 6 Vernon St. S. C. Rd.,
Dublin, Eire.
Miss Goyce Dale, 10 Circular
Drive, Lache Lane, Chester, Cheshire,
England (15—16 ára pilt eða stúlku,
bréfin séu á ensku).
Judith Nilssen (17—19 ára), Saup-
stad, Mærvoll, Lofoten, Norge.
Vilborg Vilmundardóttir (16—18 ára)
(Helzt á Norður- eða Austurlandi),
Króki, Garðahverfi, við Hafnar-
fjörð.
Fjóla Sigurbjörnsdóttir (16—18 ára)
(Helzt á Norður- eða Austurlandi),
Hlíð, Garðahverfi, við Hafnarfjörð.
Hjördís Albertsdóttir (16—21 ára),
Krossi, Berufjarðarströnd, Djúpa-
vogi.
Gunnar Einarsson (16—25 ára),
Núpi, Berufjarðarströnd, Djúpa-
vogi.
Guðmundur Ingvarsson (16—18 ára),
Síldarverksmiðjunni, Ingólfsfirði.
Magnús Jónsson (16—18 ára), Síld-
arverksmiðjtmni Ihgólfsfirði.
^MIMMMIMHMMMMIIMMMMMMIMMMIMMHMMMMIIMMHMIMI,^
i
t
| Tækifærisgjafir
I fjölbreyttu úrvali
Gottsveinn Oddsson I
úrsmiður. - Laugavegi 10. I
(Genglð inn frá Bergstaðastr.) :
WINDS ORKASTALI
Þessi mjmd sýnir morgunguðsþjónustu í Kapellu hins heilaga Georgs.
TAKGÐ
Snorra Snorrason,
nýútkomnu skáldsöguna eftir Jón H. Guðmundsson,
með yður í sumarfríið.
Sagan gerist í Reykjavík fyrir síðasta stríð og á
hemámsárunum. Hún fjallar um ástir og baráttu
ungs Vestfirðings í höfuðborginni.
VterÖV I vönðuðu bandi kr. 19,50, heft kr. 12,50.
Kaupíð og lesið skáldsöguna
Snorri Snorrason
TJtgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.