Vikan - 25.03.1948, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 13, 1948
9
Fréttamyndir
Seif A1 Islam Abdullah prins, son-
ur konungsins í Yemen sést hér
á La Guardia-flugvellinum í New
York, en hann kom með flugvél
beint frá Kairo.
Elisabeth krónprinsessa Englands hafði leigt Sunninghill Park sem sveitasetur fyrir sig og
Phillip Mountbatten, áður en þau giftust
David Ben-Gurion (til vinstri), formaður „Jewish Agency“, sést hér '
í vinsamlegum viðræðum við Sir Abdur Rahman frá Indlandi á fundi
í Jerúsalem, sem haldinn var um Palestínu-málið.
Ernest D. Wallis, ljósmyndari í Chicago, var kserður fyrir að stela
mikilvægri ljósmynd frá kjamorkutilraunastöðinni Los Alamos í New
Mexico. Hér sést hann leiddur inn í réttarsalinn.
Gyðingastúlkan hér á myndinni er að ræða við lögfræðing um
möguleika til þess að fá frestun á aftöku bróður sins í Jerúsal-
em. 1 hefndarskyni fyrir dauðadóm piltsins höfðu hefndarverka-
menn Gyðinga í Palestínu rænt tveimur brezkum hermönnum til
að nota þá sem gisl.