Vikan - 25.11.1948, Side 2
2
VIKAN, nr. 48, 1948
PÓSTURINN •
Háttvirta Vika!
Við höfum fengið blað yðar dag-
sett 11/11 ’48 og þökkum fyrir. Og
óskum þess að þér birtið bréf þetta
í póstinum í næsta blaði. Þar sem
við sáum í fyrrnefndu blaði að þér
birtið nöfn okkar með óskum um
bréfasambönd við stúlkur á aldri
19—40 ára, en við höfum ekki beðið
um það, enda nógar stúlkur á okkar
snærum, þá krefjumst við þess að
þér leiðréttið þetta, þar sem nöfnum
okkar hefur verið stolið, og við
óskum ekki eftir neinum bréfasam-
böndum. Hvað Stefáni Helgasyni
viðkemur, viljum við taka það fram
að hann er ekki skipsverji á m/s
Helga VE. 333 og því okkur óvið-
komandi, og viljum við sízt verða
til þess að letja kvenfólkið að skrifa
honum, ef einhverjar vildu.
Virðingarfyllst.
Gústaf Adólf Runólfsson
Sævaldur Runólfsson
Sigurður Gíslason
Skipsverjar á m/s Helgi VE 333
Vestmannaeyjum.
P.s. Vinsamlega annaðhvort birtið
nafn mannsins, sem kom með aug-
lýsingtma, eða sendið okkur það i
bréfi, ef þið hafið það.
Svar: Okkur þykir þessi mistök
leiðinleg, en getum því miður ekkert
að þeim gert. Þessi beiðni um bréfa-
samband kom til okkar í bréfi ásamt
greiðslu, eins og aðrar slíkar beiðnir,
og höfum við ekki hugmynd um,
hver sendi bréfið.
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja þig að
birta fyrir mig texta, sem byrjar á:
„Ein ég sit við arinn auðan.“
Hvernig lýst þér á skriftina?
Með fyrirfram þökk.
Daisý.
Svar: Því miður þekkjum við ekki
þennan texta. Skriftin er veí læsi-
leg, en alltof margar villur í bréfinu!
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel að svara nokkr-
um spumingum fyrir mig.
1. Hvemig er utanáskriftin til Roy
Rogers ?
2. Hvað er Tom Drake gamall?
3. Hvað er Mickey Rooney gamall?'
4. Hvað er Ginger Rogers gömul?
5. Er Nelson Eddy dáinn. Hvenær
dó hann ?
6. Hvað er Eleanor Powell gömul?
Er hún gift. Þá hverjum?
7. Er Bob Crosby bróðir Bing Cros-
by ?
Með fyrirfram þökk fyrir svarið.
Anna Bolla.
E.S. Hvemig er skriftin?
Svar: 1. Repúblic Studios, 4024
Radford Ave., N. Holllywood, Cali-
fomia.
2. Tom Drake er fæddur 5. ágúst
1918.
3. Mickey Rooney er fæddur 23.
sept. 1920.
4. Ginger Rogers er fædd 16. júlí
1911.
5. Ekki vitum við annað en að
hann sé lifandi.
6. Eleanor Powell er fædd 21. nóv.
1915 og er gift Glenn Ford.
7. Já, þeir em bræður.
Skriftin er ekki fallag; vandaðu
þig betur.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
John Moes (við stúlku 21—26 ára,
mynd fylgi bréfi),
Henry Robert (við stúlku 21—26
ára, mynd fylgi bréfi),
báðir á Kristneshæli, pr. Akureyri.
Adólf Sigurgeirsson (við stúlku 15—
18 ára), Víðisveg 7, Vestmanna-
eyjum.
Haukur Þorsteinsson (við stúlku 16
18 ára, mynd fylgi), Freyjugötu
46, Sauðárkróki.
Bragi Björnsson (við stúlkur 16—
18 ára, mynd fylgi), Þverhúsi,
Sauðárkróki.
Aðalsteinn Valdimarsson (við stúlkur
16—18 ára, mynd fylgi), "Freyju-
götu 10, Sauðárkróki.
Svana Helgadóttir (við 17—-20 ára),
Krók 1, Isafirði.
Didda Sigurðardóttir (við 17—20
ára), Seljalandsveg 14, tsafirði.
Haukur Stefánsson (við pilt eða
stúlku 14—16 ára), Skagfirðinga-
braut 5, Sauðárkróki.
Laufey Jónsdóttir (18—24 ára),
Dúna Þorsteinsdóttir (18—24 ára),
báðar á Húsmæðraskóla Borg-
firðinga, Varmalandi, Mýrasýslu.
Esther Guðmundsdóttir (við pilt 18
—20 ára, mynd fylgi), Hverfis-
götu 13, Hafnarfirði.
Eyrún Sæmundsdóttir (við pilt 14
-—16 ára), Sólheimahjáleigu, Mýr-
dal, V-Skaft.
Stella Guðmundsdóttir (við pilt eða
stúlku 16—25 ára), Eyrardal,
Álftafirði.
Hulda Jónsdóttir (við pilt eða stúlku
16—25 ára), Minnihlíð, Seljalands-
veg, Isafirði.
Erla Steinsdóttir (við pilt eða stúlku
16—25 ára), Hlíðarveg 20, Isafiröi.
Nanna Söriadóttir (við pilt eða
stúlku 16—25 ára), Mánagötu 5,
ísafirði.
Ásdís Sörladóttir (við pilt eða
stúlku 16—25 ára), Mánagötu 5,
ísafirði.
Sigmundur Friði’iksson (við stúlku
Framh. á bls. 15.
*uiiiiiiiiiHiMiiiiiiiiiiiil|||iiiliimsimmiiiiiimmiiuiiu,ll,,
Tímaritið SAMTÍÐIN j
Flytur snjallar sögur, fróðlegar I
ritgerðir og bráðsmellnar skop- =
sögur.
10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr. =
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. I
Áskriftarsimi 2526. Pós1' Oif 75. í
Jólabók HeIgafells:
LANDNÁMABÓK ÍSLANDS
merkilegasta heimildarrit í veröldinni um landnám heils lands,
kemur út 1. desember í útgáíu Einars Arnórssonar prófessors.
Þessi útgáfa af Landnámabók Islands er viðhafnarútgáfa, prentuð i 1500 tölusettum eintökum einungis til áskrifenda.
Þetta er fyrsta útgáfa, sem gerð hefir verið af Landnámabók Islands, sem er verulega aðgengileg alþýðu manna. —
Þannig er lesandanum gert kleift að lesa efni allra bókanna, sem um landnámið fjalla, í samfeldu lesmáli. Munu
áreiðanlega margir undrast, hve landnámssagan er orðin heillandi lestur.
Þessari útgáfu fylgja 12 litprentuð kort, allt landið í stærð 1:1250000 gerð af Ágúst Böðvarssyni eftir fyrirsögn
Einars Arnórssonar, hvað snertir skiptingu landsins í landnám. — Eru nöfn allra landnámsmanna prentuð inn á
kortin. — Kortin eru öll í sérstakri handhægri möppu.
Athugið að aðeins 1500 eintök, öll tölusett, verða seld af landnámabók Islands. og verða þeir, sem ætla að tryggja
sér bókina, að hafa sent okkur áskrift fyrir 1. desember eða komið henni á framfæri hjá bóksala.
Þetta verður áreiðanlega innan fárra ára dýrmætasta bók á Islandi.
Kostar aðeins 195,00 í skinnbandi og fylgja kortin þá með
liggja frammi í
BÆKUR OG RITFÖNG H.F.
Austurstræti 1.
Bókaverzlun Guðmundar
Laugavegi 100. (Bækur og ritföng h.f.) Lækjargötu 6A.
Gamalíelssonar
Áskriftarkort
HELGAFELL
Garðastr. 17, Aðalstræti 18, Njálsgötu 64, Laugavegi
IJtgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.