Vikan


Vikan - 19.10.1950, Blaðsíða 5

Vikan - 19.10.1950, Blaðsíða 5
VIKAN, nr. 40, 1950 5 Framhaldssaga: 'JÞ§jgJf fþ 9 -------Eftir JENNIFER AMES -------------------------------------- Hún hló. „Ef til vill er það þannig, að við ensku konurnar og amerísku (síðasta orðið sagði hún lágt) metum meir aðra eiginleika hjá eiginmönn- um okkar en ástleitnina." „Það getið þér talið yður trú um eins og þér viljið, en þá eruð þér ekki heiðarleg gagnvart sjálfri yður.“ Nú var rödd hans allt í einu orðin alvarleg. „Kona blekkir sjálfa sig, ef hún heldur, að aðrir eiginleikar séu mikilvægari hjá eigin- manni hennar en hæfileikar hans til þess að gera hana hamingjusama i ástum. Því að ástin er það lífsseyði, sem fær konuna til að blómstra. Ástin getur gert gamla konu unga aftur og breytt ungri konu í gyðju. Hálfvolg ást er eins og matur, sem ekki er vel til búinn — hún veitir enga ánægju — og brátt nennir maður ekki að borða hann lengur. Innst inni vitið þér, að ég hef rétt fyrir mér.“ Hún minntist allt í einu þess, sem Bruce hafði sagt við hana í flugvélinni um þögula, sterka menn. Hún hafði varið þá, af þvi að Michael var einn af þeim. Enrico hafði sleppt hönd hennar aftur, var stað- inn upp og farinn að frönsku dyrunum. Smágola flutti með sér raddir. Karlmannsrödd og kven- mannsrödd, sem greinilega var rödd Hortense. „Nú er hægt að útskýra f jarveru konu minnar,“ sagði Enrico og rödd hans var gjörbreytt. Hann dró tjöldin til hliðar og gekk út í dimman garð- inn. En Bruce og Hortense voru greinilega ná- lægt dyrunum, því að nokkrum stundum siðar heyrði Alys Hortense segja: „Enrico, segðu nú ekki, að þú viljir líka fara og horfa á tunglið — og auk þess aleinn! Eg fór út til þess að biðja Bruce að koma inn og tala við okkur.“ Þegar þau höfðu fengið sér í staupinu, kom Hortense til Alys og stakk handleggnum undir hennar. „Eigum við ekki að ganga til hvíldar nú og láta mennina eina um að drekkja sorgum sínum. Þegar Enrico er búinn að fá eitt glas, langar hann í annað. Ég verð að fá fegurðarsvefninn minn, því að hvaða kona getur án hans verið? Karlmennirnir mega vera með stóra bauga undir augunum og okkur konunum finnst þeir bara miklu fallegri fyrir það. En karlmennirnir vilja að konur þeirra hafi andlit eins og kornungar stúlicur, en hjarta eins og blóösugu!" Hún hló glaðlega og fór með Alys út úr stofunni inn gang- inn þangað til þær komu að hennar dyrum. Hún þrýsti handlegg hennar áður en hún sleppti honum. „Sofið vel,“ sagði hún. „Og hugs- ið nú ekki alltof mikið urn þetta allt. Þér skuluð sjá, að það fer allt vel.“ Alys var mjög róleg, þegar hún háttaði sig. Hún fullvissaði sjálfa sig um, að hún hefði aldrei verið rólegri. Þetta var hlægilegt ástand. Mjög hlægilegt. Hún endurtók orðið, eins og það hugg- aði hana. Það var engin ástæða til þess að vera hrædd -— að minnsta kosti ekki i bráð. Bruce var heimsmaður. Hann mundi áreiðanlega finna upp á einhverju, til að segja Enrico, hversvegna hann var ekki i sama herbergi og konan hans. Enrico mundi þá halda, að grunurinn um, að Bruce svæfi ekki hjá konu sinni væri á rökum reistur og mundi leitast við að útvega Bruce herbergi. Það voru margar ástæður til að halda, að hún sæi Bruce ekki fyrr en á morgun . . . Þegar hún var komin hingað í hugsunum sínum, varð henni lit- ið á náttfötin, sem voru í rúminu. Bruce og Enrico mundu áreiðanlega vera lengi á fótum, sitja yfir glösunum og Bruce mundi þá ef til vill segja, að hann vildi síður vekja konu sina svona seint. Já, það var ágætis afsökun, og Alys hresstist við þetta. Já, auðvitað hlaut hann að segja þetta. Hann hafði vit í kollinum, það hafði hann sýnt greinilega í dag, þegar Jensman höfuðsmaður var að tala við þau. En enda þótt hún yrði stöðugt öruggari um, að allt gengi að óskum, var hún samt svo varkár, þegar hún fór inn í baðherbergið, að hún fór í Ijósbláan taftslopp, sem Myra hafði verið svo hugsunarsöm að skilja eftir . . . Þegar hún kom út úr baðherberginu aftur, var Bruce þar. Já, meira segja sat hann uppi í rúminu í náttföt- unum. Hendurnar voru krosslagðar á bi-jóstinu og hann hló. „Jæja, kona góð," sagði hann. „Ertu tilbúin að sofa hér við hlið mér?“ Hún hefði getað kyrkt hann með köldu blóði. Þetta var hræðilegt, algjörlega ómögulegt ástand, og hvernig vogaði hann sér að tala við hana á þennan hátt. Hann hélt þó ekki í alvöru, að hann gæti sofið þarna? Og ef hann hélt það, hvar átti hún þá að sofa? „Hættu nú þessari vitleysu." Hún sagði þetta hranalegar en hún hafði ætlað sér. En hún var taugaóstyrk og reið. „Ég var viss um, að þú hefð- ir einhvern veginn getað bjargað þessu við . . . hefðir getað fundið afsökun fyrir því, að þú gæt- ir ekki verið i sama herbergi og ég.“ Hann hætti allt i einu að brosa. 1 stað þess varð svipurinn harður. „Ertu i raun og veru svo mikill kjáni, að þér dytti það í hug?“ „Ég veit ekki, hvað þú átt við með þessu. Hversvegna er það svo heimskulegt? Þú hlýtur að viðurkenna, að það er eina lausnin. Við get- um ekki búið í þessu herbergi saman — sofið hér?“ „Ekki? Ég er viss urn, að ég get sofið vel. Og ég þarfnast góðrar hvildar eftir alla þessa hrakn- inga. Ef þú vilt vera svo elskuleg að fara upp í rúmið, svo að ég geti fengið frið, skal ég ekki láta sitja við orðin tóm.“ „En skilurðu ekki . . . .“ Hún var að þvi kom- in að bresta í gi'át. „Alls ekki. Ég hef sagt þér, að þetta er ekki farnskur skrípaleikur, heldur kaldur veru- leikinn. Og ef þú vildir bara líta skynsamlega á þetta, mundirðu áreiðanlega geta skilið, að þetta er ekki eins hræðilegt, og þú heldur." Nú streymdu tárin niður kinnar hennar. „Þú hefðir vel getað fundið upp á einhverju . . . já, pú liefðir átt að finna upp á einhverju . . . .“ Langur, erfiður dagurinn hafði verið of mikið fyrir hana. Hún vissi ekki lengur, hvað hún sagði eða gei'ði. „Heyrðu nú,“ sagði hann reiður. „Það getur allt verið gott, og ég mundi ekki vera hér, væri það ekki alveg nauðsynlegt. En ég ætla ekki að stofna þinu eða mínu lífi í hættu. Ef ég hefði beðið um að fá einn herbergi — dettur þér þá annað í hug, en að þau mundi strax gruna eitthvað? Og svo ert þú ensk, og þá mundu þau brátt geta lagt tvo og tvo saman. Við erum engin börn, Alys, og þetta er enginn leikur. Og farðu svo í rúmið og sofnaðu--------og leyfðu mér að sofna!" Meðan hann talaði, hafði hann snúið sér á hina hliðina. Og allt i einu fannst henni hún vera eins og óþekkur krakki. Eftir allt, sem þau höfðu upplifað saman, tók varla að hafa oi’ð á þessu. Hann hafði bjargað lífi hennar og hafði hætt lífi sínu fyrir hana. „Fyrirgefðu," sagði hún lágt. „Svona nú. Og vertu svo góð stúlka," rödd hans var hlýleg, næstum föðurleg. „Snýttu þér og þurrkaðu augun. Hér er vasaklútur." Hann rétti henni vasaklút. „Góða nótt og sofðu vel.“ Hann bætti við: „Og þú getur treyst mér fullkomlega — var þér það kannske ljóst?" Hún fór úr sloppnum og fór upp í rúmið. Hún þorði varla að anda, hún var svo gagntekin af nærveru hans. Hún sagði við sjálfa sig, að hún ætlaði ekki að sofna. En þegar hún heyrði á reglulegum andadrætti hans, að hann var sofn- aður, langaði hana allt í einu til þess að hlæja hátt. Ef til vill var það eðlilegt vegna þessa ástands. En smám saman færðist ró yfir hana. Fimm mínútum síðar var hún sofnuð. Fimm dögum síðar, þegar Enrico settist við hádegisverðarborðið, sagði hann: „Ég hef heyrt, að breskur stríðsfangi hafi strokið. Ég veit ekkert nánar um það, en ég vona að ekkert ykkar hafi átt þátt í því!“ Hann sneri sér skyndilega við og horfði fast á Jennifer. 10. KAFLI. Jennifer mætti augnaráði hans án þess að líta undan. „Hversvegna horfið þér svona á mig, Enrico? Það hljóta að vera hundruð brezkra stríðsfanga hér, og það er víst ekki svo óal- gengt að einn strjúki öðru hverju." „Auðvitað kemur það fyrir . . . en mér datt bara í hug, að einn af vinum yðar var tekirm til fanga, Jennifer." „Ha? . . . ó •— ég sagði víst eitthvað kjána- legt, þegar ég sá Michael í Catania! En ég var alveg utan við mig. Ég viðurkenni, að ég vildi gjarnan hjálpa honum að strjúka, en hvernig í ósköpunum átti ég að fara að því? Þér gætuð næstum því eins ásakað mig fyrir að sökkva flot- anum í Toronto." Hún fann, að þetta kom óþægilega við Enrico og brosti. Enrico sagði aðeins: „Að minnsta kosti verður ekki langt þangað til þeir ná hon- um. Það er ómögulegt að strjúka héðan frá eynni." Alys var búin að missa matarlystina. Hún horfði stöðugt á Jennifer. Ef hún hafði logið, hafði hún að minnsta kosti gert það trúlega. En ekkert var hægt að sjá af svip Jennifer, og hún borðaði augsýnilega matinn með góðri lyst. Þetta smáatvik kom fyrir á fimmtudeginum. Næsta dag fóru þau öll af stað til búgarðs Enrico. Stóra hvíta húsið var enn aðdáunarverðara en Alys hafði ímyndaö sér. Herbergin voru stór og rúmgóð, og þau voru hlýleg eins og herbergi geta orðið í gömlum húsum. Yndisleg’ handunnin teppi voru á gólfunum og alls staðar voru blóm í háum vösum. Fullorðin kona, sem hafði verið alla sína ævi hjá fjölskyldunni, kom til Alys og Bruce og sýndi þeim, hvar þeirra herbergi voru. Þau fengu tvö samliggjandi. Alys létti ótrúlega mikið. Það hafði ekki verið eins erfitt og hún hafði haldið, að búa með Bruce. En það hafði verið bæði erfitt og ruglandi. Bruce átti engan þátt i þvi. Hún hugsaði þakklát um, hve góður hann hafði verið við hana. Hann gerði allt til að hlífa henni. Hann klæddi sig í baðherberginu löngu áður en hún sjálf fór á fætur. Og hann háttaði sig þar, eftir að hún var komin í rúmið. Hann talaði alltaf eðlilega við hana og aðeins um hvers-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.