Vikan


Vikan - 19.10.1950, Page 14

Vikan - 19.10.1950, Page 14
14 VIKAN, nr. 40, 1950 Kara Yussef snýr aftur Framhald af hls. 10. þessu yfir höfuðið á einhverjum, vefði það fast að hálsinum og herti að, væri maðurinn samstund- is meðvitundarlaus. Kara Yussef brosti. Hann rétti úr sér og hlust- aði. Hann heyrði, að einhver gekk léttum skref- um eftir götunni — þetta var Jehanna. — Hann hljóp á eftir henni, og áður en hún gat gefið frá sér nokkurt hljóð, féll túrbaninn yfir höfuð henn- ar, og hún vissi ekki lengur af sér.------ Hellirinn var þar skammt frá. Þegar hún kom til meðvitundar, fann hún, að hún var bundin, og við hlið hennar sat Kara Yussef. Hann hafði kynt bál í hellinum, og það var notalegt þar irini. Hann beygði sig yfir hana. „Nei, Kara Yussef!" sagði hún biðjandi. „Ég er eiginkona bróður þíns------“ „Ekki ennþá! Þú hefur ekki stigið fæti þínum inn fyrir dyrnar á húsi hans.“ „En ég elska hann — ekki þig!" „Þú munt elska mig, þegar fram líða stundir og gleyma honum--------ég er svo sterkur — •—“ „Þú með alla þína krafta!" hvæsti hún fram- an í hann. „Sterkur! sterkur! sterkur! Naut er sterkt. Heldur þú, að ég geti elskað naut?“ „Pyrsta kossinn tek ég með valdi," svaraði hann. „En næsta kossinn munt þú biðja mig um!“ Og hann ætlaði að fara að framkvæma hótun stna, þegar rödd í hellismunnanum hróp- aði: „Kara Yussef!" Hann spratt á fætur. Þarna stóð Hajji Goor, og hið fyrsta, sem Kara Yussef veitti athygli var, að bróðir hans bar langt sverð í hægri hendi! Grannri, beinaberri hendi, sem var vön að sveifla penna en ekki sverði! „Ég beið eftir Jehanna," sagði Hajji Goor þreyttri, hljómlausri röddu. „Ég varð órólegur, þegar hún kom ekki, og fór þvi að leita hennar, en fann þá þetta." Hann sýndi þeim enska stríðs- orðu, sem Jehanna hafði rifið úr jakka Kara Yussefs, þegar hún var að berjast um til að reyna að komast undan, ,,þá vissi ég, hvað hafði skeð, þvi að Jehanna hafði sagt mér, að þú hafir leit- að ástar hennar, og ég vissi jafnframt, að ég myndi finna ykkur hér.“ „Og þú komst — án þess að biðja um aðstoð ættingja okkar?" „Þú lézt mig sverja þess eið, þegar við vorum börn, að segja aldrei neinum frá hellinum." „Þú ert býsna heiðarlegur," sagði Kara Yussef hæðnislega. „Já, ég held loforð mín,“ svaraði Hajji Goor. „Og ég elska þig, bróðir minn." „Prestakreddur! Hvernig getur þú elskað mig, fyrst ég hef gert þetta?" „Láttu mig fá Jehanna aftur. Þú segist elska hana, og það gerir þú ef til vill, — en þú elskar meira mátt þinn og megin. Þú hefur ekki breytzt. Ég vissi að þú mundir ekki vilja láta mig fá Jehanna af fúsum vilja, og þess vegna tók ég þetta sverð með mér.“ „Vilt þú þá skylmast við mig?“ „Nei, það máttu ekki, ástin mín!“ hrópaði Je- hanna. „Það eru engin önnur ráð! Við höfum þegar talað of lengi! Reyndu að verja þig!“ Og presturinn réðist gegn bróður sínum. Hvað gat Kara Yussef gert annað en að draga sverð sitt úr slíðrum? Hann brosti og sveiflaði sverð- inu. Þannig stóðu bræðurnir tveir hvor frammi fyrir öðrum í rauðum bjarmanum frá bálinu. Annar hár og sterkur, hinn lægri og grennri. En báðir bræðurnir hugsuðu eins: „Ég verð að gæta mín að drepa hann ekki, því að hann er þó bróðir minn." Á meðan sat Jehanna og horfði hrædd á þennan hættulega leik, sem var háður hennar vegna. 545. KROSSGÁTA VIKUNNAR Lárétt skýring: 1. Frásagnir. — 13. býlum. — 14. spil. — 15. eins. — 17. biblíun. — 19. gróð- ur. — 20. samtenging. — 21. fugls. — 23. veina. — 25. versna. — 27. atv.o. — 28. á litinn. — 30. ullar. — 31. kona. — 32. hljóð. — 33. forsetn. — 35. skel. — 36. titill. — 37. op. — 38. mann. — 40. ending. — 41. eignast. — 42. verk- færi. -—• 44. vífið. — 46. eins. — 47. eins. — 49. kyrrð. — 51. ófróður. — 54. kv.n. — 56. dýramál. — 57. ómerkir. — 59. tónn. — 60. líkamshl. — 61. látbragð. — 62. fullkomins. — 64. skarði. — 67. dægur. — 68. hryggðar. — 70. snjó. — 71. önd- uðu. — 72. hreyfing. — 73. fara. — 75. ílát. — 76. óskyldir. — 77. ófreskja. — 79. fóli. — 81. helgiathafnir. Lóðrétt skýring: 1. Slöngu. — 2. samhl. — 3. staldrar. — 4. fjær. — 5. flaustur. — 6. hljóm. — 7. sk.st. — 8. merki. — 9. ein. — 10. gjöful. — 11. frúmefni. — 12. sjómanninn. — 16. kyrrlátur. — 18. líknarsystir. — 20. þaut. — 22. var kyrr. — 23. húsdýr. — 24. ending. — 26. fara. — 28. farartæki. — 29. tjón. — 32. tónn. — 34. þögul. — 37. fuglar. — 39. fiskur. — 41. skemmd. — 43. tónar. — 45. hljómar. — 48. óþýður. — 50. ill yfirferð. — 52. band. — 53. lofttegund. — 54. nærðust. — 55. fornafn. — 56. lagast. — 58. hugsunarleysi. — 61. líkamshluta. — 63. iðja. — 65. sk.st. — 66. fer. — 67. gisti. — 69. hleypi af. — 71. frjáls. — 74. verkfæri (fornt). — 75. skip. — 77. stafur. — 78. tvíhl. — 79. tónn. — 80. samtenging. Lausn á 544. krossgátu Vikunnar. Lárétt: 1. Álfa. — 4. smára. — 8. móts. — 12. sei. — 13. KEA. — 14. auð. — 15. ljá. — 16. jaka. — 18. knáum. — 20. áset. — 21. trú. — 23. nin. — 24. ótt. — 26. krufningu. — 30. hás. — 32. slá. — 33. níu. — 34. lán. — 36. örkumla. — 38. auðséða. -—- 40. ani. — 41. löt. -—- 42. náðaðir. — 46. kreminu. —>49. una. — 50. ina. — 51. eyg. — 52. rár. — 53. annmarkar. -—■ 57. ýfa. — 58. mig. — 59. raf. — 62. rísa. — 64. minja. — 66. kalt. — 68. Ása. — 69. nón. — 70. ull. — 71. lúi. — 72. sand. — 73. innra. — 74. farg. Lóðrétt: 1. Ásjá. — 2. lea. — 3. fikt. — 4. sek. — 5. mannfáa. — 6. raunina. — 7. aum. — 9. ólst. — 10. tje. — 11. sáta. — 17. ark. — 19. áin. — 20. átu. — 22. úrsmiðina. — 24. óguðlegar. — 25. már. — 27. ull. — 28. níu. — 29. dáð. — 30. Hönnu. — 31. skaða. — 34. létir. — 35. napur. —- 37. una. — 39. söm. — 43. ána. — 44. inn. — 45. ramminn. — 46. kergjur. — 47. ryk. — 48. náð. — 53. afa. — 54. ain. — 55. rak. — 56. krás. — 57. ýsan. — 60. fala. — 61. stig. — 63. ísa. — 64. Mói. — 65. ala. —■ 67. lúr. Hræðsla hennar vék fyrir trylltri gleði — var hún ekki dóttir f jallanna og hinna herskáu ætta ? — Og hún hrópaði uppörvandi til mannsins sins. Þá skeði dálítið undarlegt í huga Kara Yussefs, sem hann sagði Chandravati í Peshawar: „Það var vegna stúlkunnar, Jehanna, sem við börðumst, og allt í einu var hún mér einskis virði! — Aðeins bróðir minn, litli, granni presturinn var einhvers virði fyrir mig. Ég gat ekki haldið áfram að skylmast við hann. Hvað átti ég að gera? Ég gat ekki sigrað hann, þvi að það hefði verið ærumeiðandi fyrir hann — en þá gaf ég hon- um færi á mér — ég brá handleggnum fyrir sverð bróður míns-------“ Blóðið fossaði úr sári á handlegg Kara Yussefs, og hann lét sverðið detta, og á sama augnabliki kastaði Hajji Goor einnig frá sér sverðinu. „Fyrirgefðu mér! Ó, fyrirgefðu mér, bróðir rninn!" hrópaði hann. „Það er ekkert að fyrirgefa. Við höfum barizt og þú hefur borið sigur af hólmi. Þinn er heið- urinn!" Stundarkorni síðar, þegar Hajji Goor var far- inn að sækja vatn, til þess að þvo sárið úr, sagði Jehanna: „Ég hef góð augu.“ „Og hvað hafa augu þín séð? „Þau sáu hraustan mann láta sigra sig af ásettu ráði.“ „Þá biður sá hinn sami hrausti maður þig um að geyma þá sjón hjá sjálfri þér, en aldrei að Svör við „Yeiztu —?“ á bls. 4: 1. Það er getið um hrísgrjón í biblíunni og í elztu bókum Grikkja og Rómverja. 2. Straumey. 3. Stífkrampi. 4. Rússnesk dýrlingamynd. 5. Það er franska og þýðir fylgd. 6. Veltivigtarhnefaleikamaður er þyngri en léttavigtarhnefaleikamaður. 7. Holger Drachmann (danskur). 8. Le Bourget. 9. Já. 10. 1 belgisku Kongó. láta bróður minn vita um það! Því þú verður að taka tillit til æru hans----“ „Þetta þarftu ekki að segja mér!“ sagði Je- hanna æst. „Heldurðu að ég skilji það ekki? Ég elska hann!" Það varð augnabliks þögn. „Jehanna — viltu gefa mér einn koss — í vin- áttuskyni ?“ „Já, í vináttuskyni!" Og varir þeirra mættust. Daginn eftir yfirgaf Kara Yussef fjöllin. Hann verkjaði í handlegginn. En — hann var sterkur! Nú beið Chandravati hans — fögur og trygg. Hann ætlaði að muna eftir að kaupa handa henni armbandið, sem hún dáðist svo að — —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.