Vikan - 25.06.1992, Síða 4
25. JÚNÍ 1992
13. TBL. 54. ÁRG.
VERÐ KR. 388
í áskrift kostar VIKAN kr. 310
eintakið ef greitt er með gíró en kr.
272 ef greitt er með VISA, EURO
eða SAMKORTI. Áskriftargjaldiö er
innheimt fjórum sinnum á ári, sex
blöð í senn. Athygli skal vakin á því
að greiða má áskriftina með EURO,
VISA eöa SAMKORTI og er það
raunar æskilegasti greiðslumátinn.
Tekið er á móti áskriftarbeiönum í
síma 91-813122.
Útgefandi:
Samútgáfan Korpus hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórarinn Jón Magnússon
Ritstjórnarfulltrúi:
Hjalti Jón Sveinsson
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Sveinsson
Markaðsstjóri:
Helgi Agnarsson
Innheimtu- og dreifingarstjóri:
Siguröur Fossan Þorleifsson
Framleiðslustjóri:
Siguröur Bjarnason
Sölustjóri:
Pétur Steinn Guömundsson
Auglysingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Aðsetur:
Ármúli 20-22, 108 Reykjavík
Sími: 813122
Útlitsteikning:
Þórarinn Jón Magnússon
Hildur Inga Björnsdóttir
Guðmundur Ragnar Steingrímsson
Setning, umbrot, litgreiningar
og filmuskeyting:
Samútgáfan Korpus hf.
Prentun og bókband:
Oddi hf.
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Helgi Rúnar Óskarsson
Þórdís Bachmann
Margrét Hrafnsdóttir
Einar Örn Stefánsson
Kristján Logason
Jónas Jónasson
Sigrún Siguröardóttir
Anna S. Björnsdóttir
Hjalti Jón Sveinsson
Þorsteinn Eggertsson
Hallgerður Hádal
Guöjón Baldvinsson
Gísli Ólafsson
Sigtryggur Jónsson
Jóna Rúna Kvaran
Loftur Atli Eiríksson
Jóhann Guöni Reynisson
Þórarinn Jón Magnússon
Þorsteinn Erlingsson
Gróa Ormsdóttir
Christof Wehmeier
Þórdís Lilja Jensdóttir
Myndir í þessu tölublaði:
Bragi Þ. Jósefsson
Friörik örn Jónsson
Kristján Logason
Sissa
Hjalti Jón Sveinsson
Þorsteinn Eggertsson
Þorsteinn Erlingsson
Loftur Atli Eiríksson
Magnús Hjörleifsson
Þórdís Lilja Jensdóttir
Binni o.m.fl.
Forsíðuna prýðir
Linda Pétursdóttir
lcelandic Models
Ljósm.: Douglas Bassett
Sjá frétt af módelnámskeiði sem
sýningasamtökin Elite Premier
standa fyrir hór á landi
í júli, en hjá þeim
samtökum starfar Linda.
■ Hljómsveitin Sálin hans
Jóns míns er nú að semja
og æfa efni fyrir nýja plötu.
Samkvæmt upplýsingum
Vikunnar er æft þrjá tfma á
dag en bandið spilar vítt og
breitt um landið allar helgar.
Reyndar ætlar Sálin að taka
sér frí ef frí skyldi kalla, og
skella sér til Mallorca i viku í
boði Samvinnuferða-Land-
sýnar. Þar á hljómsveitin að
troða upp og skemmta ís-
lenskum ferðalöngum. Sól-
brúnir Sálarmenn halda svo
heim og taka upp þráðinn í
spilamennskunni fyrir
landann. Nýja platan kemur
út fyrir jólin og má búast við
að hljómgæðin verði ekki af
verri endanum þar sem verk-
ið verður að hluta til unnið
erlendis. Fari svo að platan
verði tekin upp erlendis
gæti það orðið um mánaða-
mótin ágúst-september, en
Stefán Hilmarsson og Anna
Björk, kona hans, eiga von á
barni um svipað leyti. Það
gæti því farið svo að Stebbi
g yrði að skilja Önnu sína eftir
co heima í tvær vikur og hver
% veit nema Anna verði léttari
^ á meðan Stefán sönglar nýja
'O söngva Sálarinnar í hljóð-
c; veri úti í heimi.
2
■ Bubbi Morthens er kominn
q heim frá Kúbu þar sem hann
ixí hljóðritaði efni fyrir nýja plötu
^ sem er væntanleg seinna á ár-
inu. Meðal þeirra sem koma
fram á nýju plötunni er kúb-
anskur trompetleikari sem ku
hafa farið á kostum. Reyndar
var erfiðleikum bundið að ná
fram réttu hljómgæðunum við
upptöku þar sem sá innfæddi
tók ekki í mál að nota annað
en sinn gamla slitna trompet.
Sagan segir að eftir miklar
raunir hafi tekist að hljóðrita
trompetleikinn svo að allir voru
sáttir. Fljótlega eftir heimkom-
una gerði Bubbi mikinn samn-
ing við Visa (sland sem kemur
til með að styðja viö bakið á
honum á tónleikaferðalagi um
landið.
■ Reglulegt viðhald fer nú
fram á skemmtistaðnum
Casa en staðurinn verður
opinn í sumar og eru litlar
breytingar væntanlegar.
Plötusnúðarnir Arnold og
Lion hafa haldið uppi stuð-
inu en í sumar kemur gam-
alkunnur snúður fram í
dagsljósið, náungi sem
margir kannast við frá
blómaskeiði gamla Holly-
wood og er best þekktur
undir nafninu Daddi diskó.
■ Nú er verið að gera nýja til-
raun til að lífga skemmtistað-
inn Hollí við og hafa Bjarni
Haukur Þórsson, leiklistarnemi
og fyrrum útvarpsmaður, og
Sigurður Helgi Hlöðversson
(Siggi Hlö), útvarpsmaður á
Bylgjunni, tekið við skemmt-
anastjórninni. Eigandi staðar-
ins, Margeir Margeirsson, ku
binda miklar vonir við þá fé-
laga en þeir ætla að reyna að
ná til fólks á aldrinum 20 til 35
ára. Slagorð staðarins er:
„Hollí! Til háborinnar fyrir-
myndar." Segir í fréttatilkynn-
ingu að „svokölluð sýru- og
underground tónlist verði ekki
á boðstólum heldur ný og
gömul vinsældatónlist sem all-
ir þekkja.
Hátt í 100 bækur eru væntan-
legar frá Fjölvaútgáfunni í ár.
■ Hríngadrottinn eða Lord
of the Rings, eins og hún
nefnist á frummálinu, er ein
af þeim bókum sem koma út
fyrir jólin í ár. Reyndar er
þetta fyrsta bindi af þremur
og er það um 450 síður.
Heildarlengd verksins er um
1200 síður.
■ Bókin íslenskir liskar kom út
árið 1983 og er nú uppseld.
Önnur útgáfa er væntanleg á
þessu ári og hefur höfundur-
inn, Gunnar Jónsson fiski-
fræðingur, bætt inn hátt í
hundrað fisktegundum úr ís-
lensku fánunni. Nýja útgáfan
verður um 700 síður en sú
fyrsta var um 520 síður.
■ Nú þegar verið er að
senda fólk heim af sjúkra-
húsum landsins í stórum
stíl er þörf á bók sem kennir
heimahjúkrun. Hópur hjúkr-
unarfræðinga vinnur að
einni slíkri sem nefnist Leið-
beiningar um heimahjúkrun.
■ Ný skáldsaga eftir Þorvarð
Helgason er væntanleg á ár-
inu. Hún ber nafnið Svelgurinn
snýst og ku vera nútíma harm-
saga sem lýsir erfiðleikum fjár-
þrota og ráðþrota fólks.
■ Þriðja bindi Grimmsævin-
týra er væntanlegt seinna á
árinu en tvö fyrstu bindin
verða endurútgefin þar sem
þau voru uppseld. Ævintýrin
eru í þýðingu Þorsteins Ó.
Thorarensen og eru þetta
óstyttar og óbreyttar útgáf-
ur. Bókin kemur út í kilju-
formi og er skreytt svart-
hvítum teikningum. Hljóð-
snælda fylgir hverju bindi.
Einnig er væntanleg skraut-
útgáfa af Tíu fegurstu
Grimmsævintýrunum en þar
er að finna sögur eins og
Garðabrúðu, Mjallhvíti og
dvergana sjö, Rauðhettu og
fleiri þekktar sögur. Bókin er
skreytt með teikningum eftir
fræga rússneska listakonu.
Til viðbótar er væntanleg
bók sem kallast Átta
skemmtilegustu Grimms-
ævintýrin. Af öðrum ævin-
týrum er það að frétta að
fyrsta bindi af heildarsafni
ævintýra H.C. Andersen lít-
ur dagsins Ijós fyrir jól. Öll
ævintýrin eru með ítarlegum
skýringum.
4 VIKAN 13. TBL. 1992