Vikan - 25.06.1992, Side 9
hver ein formúla fyrir hlutunum og ég held þar
aö auki aö viö höfum ekki efni á því aö loka fyr-
ir neina möguleika."
DAVÍÐS SAGA ODDSSONAR
Hvað finnst þér um frammistöðu Davíðs í nýja
starfinu?
„Mér finnst Davíð standa sig alveg frábær-
lega vel. Ég á vissulega mjög góöar minningar
af samstarfi viö hann: fyrst og fremst vegna
þess hve samkvæmur hann er sjálfum sér og
gengur hreint til verks. Hann leggur spilin á
boröiö og reynir aldrei aö fegra fyrir sér stöö-
una. Það hlýtur aö vera meginforsenda þess
aö byggja upp aö gefa sér ekki falska for-
sendu.
Ég trúi því aö Davíð breyti miðstýringu
fjármagns, alla vega er hann búinn aö gefa út
yfirlýsingar um aö hann vilji leggja niöur á-
kveöna sjóöi og ég treysti honum manna best
til aö leiða slíkar breytingar í krafti síns raun-
sæis og trúar á einstaklingsframtakiö. Þessi
miöstýröa skömmtun hefur reynst þannig aö
fjármagniö leitaöi í allt of einhæfan farveg.
Davíö er mjög öruggur og hringlar ekki meö
hlutina en ég hef séö allt of mikiö af því aö fólk
hlaupi út undan sér og einnig of mikiö af því aö
slíkt sé liöiö. Hann er trúr sinni sannfæringu og
stendur og fellur meö gjöröum sínum. Svo
skemmir húmorinn aldrei.“
Kanntu jafnvel viö nýja borgarstjórann?
„Já, ég kann mjög vel viö hann. Hann vinnur
upþi á boröum eins og forveri hans og hans
vinnubrögð eru hrein. Hann er mjög kraftmikill
og líka skemmtilegur."
Helduröu aö við sjáum kvenborgarstjóra hér
á næstu árum?
„Þaö er náttúrlega undir konum komiö. Þvi
ekki, en af hverju endilega? Ég held ekki aö
þaö sé óeðlilegt aö konur taki svolítiö aöra
stefnu en karlmenn. Viö konur höfum mikla
þörf fyrir aö gefa börnum okkar tíma, kannski á
annan hátt en karlmenn."
Gætir þú hugsaö þér aö veröa borgarstjóri?
Sþurningin vekur hlátur. „Viö i borgarstjórn-
arflokknum ættum öll aö geta annað því
starfi. . . Ég get vel hugsað mér að vera borg-
arstjóri, já, já, en ég geng ekki meö þaö í
maganum, langt því frá. Hins vegar er ég
reiöubúin til þess aö taka á mig allar slíkar
skyldur.
Ég hef tekiö þau störf aö mér meö ánægju
sem mér hafa verið falin en ekki sótt mikiö
fram persónulega. Ég er lítiö fyrir hávaöasam-
an tillöguflutning og þaö hefur veriö sagt viö
mig aö ég vinni meira meö veggjurh. Ég lit á
mig sem kjörna til ákveðinna verka sem fyrst
og fremst ganga út á þaö aö fara sem best
meö sameiginlega sjóöi borgaranna. Númer
eitt, tvö og þrjú er verið aö taka ábyrgö á ann-
arra manna eigum og maður getur ekki verið í
eigin gæluverkum nema vera sannfærður um
aö þaö sé rétt gagnvart þeim sem hafa kjöriö
mann til starfsins."
AÐ LÝSA UPP MANNLÍFIÐ
En ef þú mættir nú huga aö eigin gæluverkum
í einn dag?
„Ég tel afskaplega mikilvægt aö borgin sé lif-
andi og fyrir ibúana en ekki byggö á einhverri
teikniboröshugmyndafræöi sem kannski hent-
ar ekki fólkinu. Ég hef oft sagt í því samhengi
aö lýsa eigi borgina upp í eiginlegum og óeig-
inlegum skilningi. Ég held aö þar séu mjög
margir vannýttir möguleikar og viö eigum svo
mikiö til af rafmagni og höfum svo mikið
skammdegi. Þaö mætti hugsa sér aö lýsa upp
mannvirki, Ijósaskúlptúra og skreytingar,
ásamt vatnslistaverkum. Þetta gæti gert um-
hverfi okkar mun skemmtilegra og meira gef-
andi.
Svo vil ég gjarna skapa börnum ákveðin
skilyrði svo þau nái sem viðtækustum þroska.
Nú erum við öll fylgjandi þvi aö börn fari í leik-
skóla þvi þaö er dýrmætt fyrir börnin aö kom-
ast í slíkan skóla, sérstaklega þegar um ein-
birni er aö ræöa. Viö höfum svokallaöan fjög-
urra ára forgang sem þýöir aö viö viljum aö öll
börn komist inn á leikskóla frá fjögurra ára
aldri. Um þessar mundir eru um áttatíu prósent
barna á aldrinum þriggja til fimm ára í vistun á
leikskóla. Viö tryggjum aö öll börn komist aö í
lágmark fjórar stundir og reynum svo aö lengja
tímann þegar þess er kostur. Viö heföum get-
aö farið út i aö bjóöa þrjátiu prósent barna
heilsdagsvist en þá heföu hin aldrei komist í
slíkan skóla.
Eitt af því sem ég barðist fyrir pólitiskt var
leikskólaverkefnið. Þar tókum viö þá stefnu aö
sex tíma vistun barna gæti sameinaö okkar
gamla íslenska leikskóla - sem var aðeins
fjögurra stunda vistun - og heilsdagsvistun
sem fram aö því haföi verið álitin hin eina
lausn. Þarna var farið út í tvísetið rekstrarform
sem þýöir aö vísu aö skólinn er bókstaflega
tvísetinn í tvær klukkustundir. í sambandi viö
þetta fórum viö út í alútboð á hönnun og bygg-
ingu leikskóla og allt var þetta nýmæli. Viö höf-
um byggt fjóra slíka leikskóla og þetta er enn í
þróun en allar skoöanakannanir sýna aö þetta
sé sá vistunartími sem fólk helst óski sér. Þetta
rekstrarform hefur vakiö eftirtekt á Noröur-
löndunum, þar sem leikskólar eru einsetnir.
einmitt meö tilliti til þess aö fólk fari meira aö
skipta meö sér störfum þar sem atvinnuleysi er
mest.
Svo hef ég óskaplega gaman af uppbygg-
ingu borgarinnar og hef mjög mótaðar skoöan-
ir í sambandi viö hana. Mér finnst mikið atriöi
aö viö búum okkur til skemmtilegt umhverfi og
stilum þaö upp á daginn í dag.
Sögulaus erum viö einskis virði og þvi verö-
um viö aö geyma ákveöna sögu en viö megum
heldur ekki gleyma því aö viö erum nútímafólk
og höfum möguleika á aö skapa hér mjög
skemmtilega nútimaborg. Ég er verndunar-
sinni svo lengi sem mér finnst þaö hafa ein-
hverja þýöingu. Ég held viö getum gert enn
meira aö þvi aö láta gamla og nýja tíma spila
saman. Sumir segja aö hitt og þetta svæöið
hafi verið geymt til framtíöarinnar en ef viö
sjáum aö viö getum gert eitthvað skemmtilegt
úr eldri svæöum finnst mér viö ekkert síöur
vera framtiöin en næsta kynslóð á eftir okkur.
Ég vil einnig aö borgurunum veröi falið aö
taka þátt í þvi aö gefa okkur skemmtilega
umgjörö: sem sé aö borgaryfirvöld séu ekki aö
miöstýra því heldur veiti ákveöna þjónustu. Þá
er ég aö tala um aö treysta borgarbúum sjálf-
um fyrir sínu eigin lífi. Við höfum unniö mikiö
aö þessu aö undanförnu en getum kannski
gert enn betur. Kannski ættum viö aö leyfa
næturklúbba og gefa allan opnunartíma
frjálsan."
Á VIT FRAMTÍÐAR
Fylgiröu stefnu flokksins aö málum í einu og
öllu?
„Einstaklingsfrelsi. réttlæti og sjálfsvirðing
veröur aö fara saman til aö hver einstakur fái
notið sín. Ég tel Sjálfstæöisflokkinn standa
vörö um einstaklinginn og aö stjórnmálamenn
þurfi í raun og veru ekki aö gera einhver a-
kveðin kraftaverk sjálfir heldur standa vörö um
aö aðrir fái aö gera þaö sem hugur þeirra
stendur til. Sumir misskilja þetta. jafnvel fólk í
mínum flokki. Þaö er nefnilega „fulltime job"
aö passa þaö aö fólk fái aö vera til, vegna yfir-
gangs þeirra sem vilja gjörsamlega ráöa rikj-
um og miöstýra öllum hlutum. Ég hef aldrei tal-
iö það löst á sjálfstæðismanni aö láta ekki mik-
iö eftir sig liggja. hafi hann hvergi verið fyrir
neinum. heldur frekar greitt leiö.
Við náum völdum meö samstööu. Þrátt fyrir
mjög ólíkar skoöanir og ólík áhugamál virö-
umst viö öll eiga þaö sameiginlegt aö finna aö
viö vinnum málunum fylgi meö samvinnu. Þaö
er náttúrlega alveg Ijóst að maöur gengur í
stjórnmálaflokk til aö hafa áhrif og aöalbaráttu-
mál okkar hefur veriö aö tryggja sjálfstæöi og
frelsi einstaklingsins og standa vörö gegn for-
sjárhyggju og miðstýringu. Þetta starf er þaö
sem tengir okkur fyrst og fremst og vissulega
falla öll höfuömarkmiö Sjálfstæöisflokksins
mér vel í geö.
Viö þurfum svolítiö aö móta okkar eigin
stefnu í borgarstjórn því viö erum í svo mikilli
nálægö viö okkar umbjóðendur. En sannar-
lega er ég i þessum flokki vegna þess aö ég
fylgi hans stefnu, annars væri ég ekki þar. Ég
er ekki í þessum flokki bara til aö vera i honum
og fara svo alfariö minar eigin leiöir."
Þegar viö ræöum saman hefur fréttin um
hrun bolfiskstofnsins nýlega borist til þjóöar-
innar. Hvaö segir Anna um framtíöarhorfur
næstu árin i Ijósi þess aö málum er enginn
gaumur gefinn fyrr en eftir aö vandinn er skoll-
inn á?
„Mér finnst viö vera aö reyna aö horfast í
augu viö vandann, hvort sem aöferðirnar eru
réttar eöa ekki. Þaö vaknar ekki hjá mér
hræösla nema ég finni fyrir einhverjum blekk-
ingavef en nú finnst mér eins og allir séu aö
horfast í augu viö raunveruleikann og þá líður
mér vel. hvort sem allt gengur upp á stundinni
eöa ekki.
Ég held til dæmis aö stööugleikinn núna eigi
eftir aö skila sér í þvi samhengi. Þaö tókst aö
stööva ákveöin hjól, með því aö tala saman og
semja og síðustu kjarasamningar eru dæmi
um þetta.
Raunsæi þarf aö rikja til þess aö bjartsýni
geti átt rétt á sér. Viö íslendingar búum yfir
mikilli þekkingu sem viö getum nýtt okkur i
samskiptum viö umheiminn, hvort sem um er
að ræöa i austur. vestur eöa yfir pólinn."
Nálægöin viö stjórnmálin hefur ekki gert
hana haröa, heldur þvert á móti. Traust.
húmor, lífsgleöi og bjartsýni eru þeir eiginleikar
sem hún metur mest. Kannski er það vegna
þess aö sjálf býr hún yfir sömu eiginleikum í
ríkum mæli. Hvert ætlar hún í framhaldinu?
„Ég hef stööugt meira gaman af fólki og er
sjálf ófeimnari eftir því sem ég kynnist fleirum.
Ég verö mannelskari eftir þvi sem ég hitti fleiri
manngeröir og fólk hrífur mig æ meir. Ég lifi
fyrir liöandi stund en ég gæti vel hugsað mér
aö læra meira. Ég hef fiktað við hagfræöi í
Háskólanum og gæti hugsaö mér aö gera
meira aö því og jafnvel aö bæta viö nám mitt í
lyfjafræði. Annars hef ég enga stóra drauma.
finnst gaman aö láta hlutina koma svolitiö á
óvart. Eg hef aldrei skipulagt líf mitt langt fram
í timann og finnst skemmtilegra aö vita ekki
allt, láta hlutina ráöast. Þaö er líka nákvæm-
lega þaö sem hefur gerst.
Ég ætlaði mér aldrei i pólitik en ég ætlaði
heldur ekki aö vera áhrifalaus. Þaö eru tilviljan-
irnar sem keyra mig áfram og kannski er ég
opin. Eg grip tækifærið og er fljót aö taka a-
kvaröanir. Þanmg held eg aö þetta spinnist
áfram. Eg sækist ekki eftir frama en ég sækist
eftir aö hafa áhrif a málin af þvi aö ég hef skýra
skoöun á þeim. Ég hef ekki séö eftir minútu í
þessu starfi mínu því þaö hefur frá upphafi
veriö spennandi skóli og er þaö enn þann dag
i dag."
13. TBL 1902 VIKAN 9