Vikan - 25.06.1992, Blaðsíða 34
f@*df
„Við höfum mjög mikinn
áhuga á að koma til Islands í
því skyni að reyna að upp-
götva ný andlit. Ég hef heim-
sótt landið einu sinni og fegurð
þess hefur ekki liðið mér úr
minni síðan. Því miður er ég
enginn náttúrufræðingur en ég
er karlmaður og það sem vakti
mesta athygli mina voru þær
fjölmörgu fallegu konur sem
ég sá. Ef tekið er mið af höfða-
tölu hljóta fleiri fagrar konur að
vera á íslandi en annars stað-
ar í heiminum. Karlmennirnir
hljóta einnig að vera afar
þokkafullur og myndarlegir því
að annars hefðu konurnar
þegar yfirgefið landið."
Námskeiðið stendur yfir í
einn dag og verða allir þátttak-
endurnir farðaðir, klæddir upp
og Ijósmyndaðir um leið og
þeim verður leiðbeint á allra
handa máta. Þátttökugjaldið er
16000 krónur og innifalið í því
er allur búnaður, hárgreiðsla
og förðun auk hádegisverðar á
Holiday Inn. Myndirnar, sem
teknar verða af þátttakendum,
verða sendar innan 21 dags.
„Við munum reyna að gefa
þátttakendum eins góð svör
og við framast getum um
reynslu okkar af tískuheimin-
um og varðandi lífið og tilver-
una á þessu sviði mannlífsins.
Á bak við fágað yfirborðið býr
oft og tíðum erfitt hlutskipti,
mikil vinna, feiknarleg sam-
keppni og einmanaleiki. Margt
ungt fólk sér þetta í hillingum
og heldur að starfið sé jafn-
yndislegt og forsíðumyndin
utan á tískublöðunum.
Við munum af fullri hrein-
skilni gera hverjum og einum
þátttakanda grein fyrir því
hvort hann eða hún hafi hæfi-
leika til að leggja fyrirsætustörf
fyrir sig eða ekki. Við leitumst
síðan við að greiða götu þeirra
sem kæmu til greina og kynna
þá fyrir þeim aðilum sem gætu
komið þeim á sporið úti í hin-
um harða heimi tískunnar."
Linda Pétursdóttir, fyrrum
alheimsfegurðardrottning, er
fulltrúi Fashion Bureau hér á
landi og hefur hún jafnframt
starfað á vegum fyrirtækisins
eins og margar af þekktustu
fyrirsætum í Evrópu. Hún
starfar jafnframt fyrir Elite
Premier í London og þess skal
getið að lokum að þeir sem
Fashion Bureau telur koma til
greina komast á samning hjá
einhverjum hinna stærstu um-
boðsskrifstofa Lundúna.
Þeir sem áhuga hafa geta
fengið nánari upplýsingar um
námskeiðið og skráð sig í
síma 91-670672. □
34 VIKAN 13. TBL. 1992