Vikan - 20.01.1995, Page 33
lega góður tími fyrir ástfangið fólk og félagslíf), 11. júní til 5.
júlí, 30. júlí til 23. ágúst, 17. september til 10. október, 4. lil 27.
nóvember og 22. til 31. desember.
Venus er tákngervingur alls sem auðgar og fegrar. Auður
getur verið í formi peninga og listir og ntenning geta gert til-
veru þína fegurri eða skemmtilegri. Þitt er að velja á hverju þú
hefur mestan áhuga en sviðsljósið beinist að félagslífi og
skemmtanalífi, veitingahúsferðum, leikhús- og bíóferðum.
Þetta ber ekki að skilja þannig að árið verði vandamálalaust.
Sambönd og samvinna geta verið flókin og vandasöm af og til
- sérstaklega hjá þeim sem eru fæddir eftir 10. apríl. Þeir aðilar
gætu upplifað að þrá breytingu bæði á vinnustað og í einkalíf-
inu en kviðið um leið sömu breytingum.
Tfmabilin, sem þú hefur mesta orku og kemur mestu í verk,
eru frá 23. janúar lil 25. maí og frá 21. október til 30. nóvember.
Á þessum tímabilum geturðu aukið atvinnumöguleika þína.
Hvað fjárhaginn varðar er hann beslur á áðurnefndum Venus-
arlímabilum.
VIKAN 31