Vikan


Vikan - 20.01.1995, Side 46

Vikan - 20.01.1995, Side 46
Sporðdrekinn 24. október - 23. nóvember HEPPNI OG HAMINGJA FINNAST Á ÓTRÚLEGUSTU STÖÐUM Þú átt að hafa náð heilmiklu undanfarið ár. Að minnsta kosti voru afstöðurnar þannig að þú áttir að geta þroskast og notað sköpunarmáttinn af meira metnaði. Komandi ár býður einnig upp á möguleika hægrar og rólegrar framfarar. Hvað sem þú tekur þér fyrir hendur, sýnist geta gengið upp eins og áformað var. Hafir þú ekki aukið við áhugasvið þitt á árinu sem var að líða, geturðu með öðrum orðum náð því ennþá. Margt bendir til þess að þú munir leggja þig sérlega fram frá ársbyrjun fram í maílok. Orkuplánetan Mars er að vísu í spennuafstöðu við Sporð- drekann mestan hluta þess tímabils en það sýnir einmitt að það verður mikið að gera hjá þér og að þú verður að reikna með álagstoppum á límabilinu frá janúarlokum til maíloka. Metn- aður þinn eykst og þú munt krefjast mikils af sjálfum þér - eða aðrir munu vænta mikils af þér. Atvinna og skyldur liggja þér sterkt á hjarta. Og þar eð Mars fer yfir 10. húsið þitt, geturðu komist lengra á framabrautinni með því að auka framlagið og láta þér fátt um álagið finnast. Þetta er þó svolítil jafnvægislist vegna þess að þú getur lagt of hart að þér og það komið niður á vellíðan og heilsu. Árið í 44 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.