Vikan - 20.08.1995, Page 29
Meg Ryan og Dennis Quaid
mæta til frumsýningar
myndarinnar Sleepless in
Seatle. Með þeim á mynd-
inni eru hjónin Tom Hanks
og Rita Wilson.
Móöir Meg Ryan. Ekki eru
miklar líkur á að samband
hennar við dótturina veröi
náiö í bráö . ..
yfirgefið fjölskylduna heldur
aðeins húsið en einhverra
hluta vegna hafi Meg fengið
þá flugu í höfuðið að móðir
hennar hafi yfirgefið hana.
Öll þessi leiðindi eru mikil
synd þar sem allt virðist
ganga Meg í haginn. Hún er
falleg, vel gefin, glaðvær og
mjög tilfinningarík - sem er
kannski ástæðan fyrir þess-
ari miklu viðkvæmni.
EIN AF TÍU VERST
KLÆDDU KONUM í
HEIMINUM
Meg er ekki ekki mjög
upptekin af útliti sínu og hún
gengur iðulega um götur
Beverly Hills í bolum og
krumpuðum gallabuxum eða
í einhverjum útsölukjólum og
finnst mörgum sem hún sé
að storka öllum ffnu frúnum
sem eyða fleiri klukkutímum
á dag í að farða sig, greiða
sér og velja föt úr fataskápn-
um.
Þessi klæðaburður hennar
varð til þess að árið 1988 var
hún valin á lista Blackwell's
sem ein af tíu verst klæddu
konum heims - og þá grét
móðir hennar.
Samband Meg og Dennis
er mjög gott og það er haft
eftir systur hans að þau séu
ástfangin, bæði andlega og
líkamlega, upp fyrir haus.
Þau eignuðust son, sem
heitir Jack Henry, og Meg er
svo sannarlega alsæl í móð-
urhlutverkinu. Hún segist
ekki trúa því að þetta sé
hennar barn og þegar hún
líti á það segi hún við sjálfa
sig: „Gerði ég þetta virki-
lega?“
KEVIN KLINE
Blaðamaður Vikunnar hitti
í einnig Kevin Kline á sama
tíma og Meg Ryan. Hann
hefur ekki náð að slá eins
rækilega í gegn og Meg en
þrátt fyrir það á hann mjög
góðan leikferil að baki.
Vinir Kevins og nánir sam-
starfsmenn kalla hann gjarn-
an Luc en hann fæddist í St.
Louis í Missouri þar sem
faðir hans rak hljómplötu-
verslun og ólst hann því upp
við stöðuga tónlist.
Þegar hann var hálfnaður
með menntskólanámið ákvað
hann að leggja stund á leik-
list og þar með var teningun-
um kastað og var hann tek-
inn inn í Juilliard leiklistar-
skólann og síðar lauk hann
háskólagráðu í tónlist. Eftir
það lék hann í mörgum
þekktum, sígildum leikhús-
verkum.
Vegna frábærrar frammi-
stöðu sem gamanleikari í
söngleiknum „On The Twent-
ieth Century" og einnig
vegna sönghæfileika sinna
fékk hann „Drama Desk“
verðlaunin og einnig fyrstu
tvö Tony verðlaunin sín.
Samskonar verðlaun fékk
hann síðar sem besti leikar-
inn í gamansöngleik.
Hann byrjaði ekki kvik-
myndaleikferil sinn af alvöru
fyrr en hann lék á móti Meryl
Streep í myndinni „Sophie’s
Choice" en fyrir leik sinn í
þeirri mynd var hann út-
nefndur til BAFTA og Golden
Giobe verðlaunanna. Síðan
hefur hann leikið í mörgum
myndum og má meðal ann-
arra nefna „The Big Chill" og
„A Fish Called Wanda" þar
sem hann lék meðal annars
á móti John Cleese, Jamie
Lee Curtis og Michael Palin.
Þessi mynd er sú sem hefur
halað inn einna mestar tekj-
ur af öllum breskum mynd-
um þangað til „Four Wed-
dings and a Funeral" kom
fram á sjónarsviðið.
Sem hinn brjálaði Otto
West fékk Kevin Kline Ósk-
arsverðlaunin árið 1988 sem
besti karlleikarinn í aðalhlut-
verki og svo síðar Golden
Globe verðlaunin fyrir leik
sinn í myndinni „Dave“. Nú
hefur hann nýlokið við að
leika í „French Kiss“ sem var
ekki fullgerð þegar undirrit-
aður hitti þau Kevin og Meg.
Það var létt yfir þeim báð-
um og þau léku við hvern
sinni fingur á meðan þau
sátu fyrir svörum og sneru
sér síðan á alla kanta fyrir
framan myndavélina. □
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
jejueA uuesse^ispd
•9 jSjAnjgg me J!ujej0|ije66nio g jbíuba u!p|ofie66n|o 'V 'bj6uq| je sujsind >jud '£ nujsejö
je epsAij uus^sph z 'BJjaeij je >!J9Apuuo l :epuÁiu !u;lu 9 ojqjo ejeq jeöujiÁejq jepiepjjj^
8. TBL. 1995 VIKAN 29
KVIKMYNDIR