Vikan - 20.08.1995, Blaðsíða 36
SJONVARP
Winfrey og Gra-
ham; spurning-
in er ekki hve-
nær þau muni
ganga í hjóna-
band heldur
hvort!
verið í mesta basli með að
gera upp við sig hvernig þeir
vilja hafa hana Opruh sína.
Á hún að vera glanspía eða
stelpan í næsta húsi? Blíð-
mælt eða kjaftfor? Á hún að
halda tryggð við viðtalsþátt-
inn sinn og þær milljónir
áhorfenda, sem á hann
horfa, eða dreifa kröftum
sínum og leika t.d. í kvik-
myndum? Og svo eru það
„h-in hræðilegu", „hjóna-
band“ og „heimili"! Oprah
hefur í ein átta ár leikið að-
alhlutverkið í sinni eigin
einkasápuóperu þar sem
plottið snýst eingöngu um
hvort hún ætli að giftast vini
sínum til langs tíma,
Steadman Graham, og eign-
ast með hon-
um börn. Það
er nú ekki lítið
hægt að gera
úr svona há-
alvarlegri
spurningu! Og
aðdáendur
hennar skipa
sér auðvitað í
tvær fylkingar
hvað þetta
varðar. En ná-
inn vinur Opr-
uh segir: „Ég
hef ekki hug-
mynd um hvað
verður úr þessu. Og ég efast
um að hún hafi hugmynd um
það sjálf!“
MEGRUN ER LAUSNIN!
Nú, ef allt ætlar um koll að
keyra í starfi og einkalífi, þá
kann Oprah við því óbrigðult
ráð: Hún fer í megrun. Sé
einhver á þessari jörðu
sannfærður um að það sé
ævinlega betra að vera
grannur heldur en feitur þá
er það Oprah Winfrey. Hún
stundar líkamsæfingar dag-
lega og hleypur langar vega-
lengdir. Hún segir að það sé
metnaðargirndin og sam-
keppnisþörfin sem haldi
henni gangandi í baráttunni
við aukakílóin. „Ef Bob, þjálf-
arinn minn, vill láta mig
leggja harðar að mér,“ segir
Oprah, „þá þarf hann ekki
annað en að benda mér á
einhverja konu í leikfimisaln-
um og segja: „Þú getur orðið
flottari en þessi þarna, er
það ekki?“ og þá puða ég
þar til það tekst eða dett nið-
ur dauð ella.“ Það var einmitt
Bob sem varð henni sam-
ferða þegar hún fór í ferða-
lag um Evrópu nýlega. En
ferðalagið var blásið af eftir
aðeins níu daga. „Þetta var
martröð!" segir Oprah. „Evr-
ópubúar virðast aldrei hafa
heyrt talað um fitusnauðan
mat!“ Oprah er með mat á
heilanum. „Þetta er bókstaf-
lega stórskrýtið,“ segir einn
vinur hennar. „í stúdíóinu,
þegar hún er að vinna, er
hún með mat út um allt,
virkilega girnilega rétti - og
mikið af þeim! En hún snertir
það ekki.“
Oprah virðist hafa breytt
matarfíkn fyrri tíma í megr-
unarfíkn. Og hefur aldrei
verið ánægðari. Linda Mat-
low, sem er Ijósmyndari og
hefur tekið ótal myndir af
Opruh gegnum árin, segir: „í
hvert skipti sem hún grennt-
ist jókst sjálfstraust hennar
og hún varð opnari og fé-
lagslyndari.“ Annar vinur
segir að Oprah hafi oft verið
erfið viðureignar á árum áð-
ur. „Ég þekki fólk, sem bjó í
sömu íbúðarbyggingu og
hún, og hún átti það víst til
að fá reiðiköst út af smá-
munum, rífast hástöfum við
fólk í anddyrinu og brjóta
hluti og bramla í íbúðinni
sinni. Hún var oft full reiði. í
dag er hún miklu elskulegri."
En Oprah sjálf lýsti þessu
líklega best sjálf nýlega: „Að
losa sig við öll þessi kíló var
eins og að losa sig við gríð-
arlega byrði, hvort sem er
líkamlega, andlega eða til-
finningalega."
BREYTTAR ÁHERSLUR
Jafnt aðdáendur sem
gagnrýnendur eru sammála
um að eftir megrunina hafi
Oprah öðlast það hugrekki
sem hún þurfti á að halda til
að takast á við breytingar í
einkalífi og starfi. Hún gat
horfst í augu við þá stað-
reynd að óánægja ríkti með-
al samstarfsfólks hennar og
tók þá erfiðu ákvörðun að
losa sig við framleiðanda
þáttanna, Debbie DiMaio,
sem hafði verið náin vinkona
hennar í mörg ár. Þetta var
stórt og erfitt skref en Oprah
mun hafa verið orðin ósátt
við vinnubrögð vinkonu sinn-
ar.
Þar næst var komið að því
stóra skrefi að breyta áhersl-
um þáttanna en slíkt er æv-
inlega mikil áhætta íyrir fólk í
sjónvarpsiðnaðinum. Oprah
tók áhættuna. Henni var far-
ið að leiðast tónninn f viðtöl-
unum. „Hver nennir að
hlusta á hverja manneskjuna
á fætur annarri ásaka mæð-
ur sfnar um að hafa eyðilagt
líf sitt?“
Ákvörðun Opruh um að
beina athyglinni frá sorprita-
málefnunum hefur fengið
misjafnar viðtökur. Fæstir
vilja spá um framtíð þáttar-
ins og segjast munu bíða og
fylgjast með. Það gætu liðið
nokkur ár þar til endanlega
verður Ijóst hvort þátturinn á
framtíð fyrir sér sem „alvar-
legur“ viðtalsþáttur eða hvort
Oprah ræður við starf stjórn-
anda slíks þáttar eftir mörg
ár í sorpmálefnunum. Oprah
er enn á toppnum en áhorf-
endatölur eru nú lægri en
þær hafa verið í átta ár. Og
Fticki Lake (leikkonan þétt-
holda úr myndum John Wat-
ers „Hairspray" og „Serial
Mom“) sækir óðum á með
viðtalsþátt sem einkum bein-
ir athyglinni að jafnháalvar-
legum málaflokkum eins og
„Er rétt að sofa hjá fyrrver-
andi kærastanum sínum?“
Sumir vilja meina að
vandamálið sé ekki málefnin
heldur Oprah sjálf. Hún sé
orðin of mjó, of glæsileg, of
ánægð með sjálfa sig.
Áhorfendur eigi erfitt með að
finna til samkenndar með
henni. Þegar hún átti við of-
fituvandamál að stríða var
hún mannleg, eins og áhorf-
endurnir sjálfir. En núna
gætu þeir fundið til minni-
máttarkenndar gagnvart
henni.
ERFIÐ ÆSKA
Oprah hefur aldrei reynt
að sýnast fullkomin, öðru
nær. En hún leggur áherslu
á að fólk eigi að berjast gegn
takmörkunum sínum og
setja sér takmörk. Gegnum
árin hafa áhorfendur fengið
að heyra allt um erfiða barn-
æsku hennar og hvernig hún
lærði af reynslunni að ekkert
væri lagt upp í hendurnar á
manni, að maður þyrfti að
berjast fyrir því sem maður
vildi. Oprah eyddi fyrstu ár-
um ævi sinnar á bóndabýli
móðurforeldra sinna í Missis-
ippi, þar sem móðir hennar
hafði farið til Milwaukee í leit
að vinnu og skilið barnið eft-
ir. Seinna sendi móðir henn-
ar eftir henni og Oprah óx
upp í harðneskjulegu borg-
arsamfélagi og lærði
snemma að bjarga sér. Þeg-
ar hún var níu ára varð hún
fyrir kynferðislegri misnotkun
af hálfu frænda síns og síðar
átti hið sama eftir að endur-
taka sig af hendi annars
frænda. Hún segir þessi at-
vik hafa gert sig að upp-
reisnargjarnri og lauslátri
unglingsstúlku fyrir aldur
fram og þegar hún var fjór-
tán ára sendi móðir hennar
hana til föður henna í Nash-
ville. Þar bjó hún við heraga
og strangt siðferði og nokkr-
um árum síðar var uppreisn-
argjarni unglingurinn fari að
taka þátt í fegurðarsam-
keppnum - og sigra þær -
og skapa sér ímynd út á við í
samfélaginu.
En gífurleg velgengni
hennar kom henni ekki á
óvart, að eigin sögn. „Innst
inni vissi ég alltaf að frægð
og frami ættu fyrir mér að
liggja," segir hún.
KONAÁ
KROSSGÖTUM
Eitthvað á þó Oprah, sem
er 41 árs gömul, enn eftir að
afreka. Hún og vinur hennar,
Stedmann, hafa enn ekki
ákveðið brúðkaupsdag en
þau líta svo á að þau séu
trúlofuð, þau búa saman og
samband þeirra virðist á
traustum grunni byggt þrátt
fyrir þær endalausu kjafta-
sögur sem þeir ríku og
frægu þurfa að búa við. í við-
tölum minnist Oprah gjarnan
á hljóðláta kvöldverði fyrir
tvo heimavið og róleg kvöld
fyrir framan sjónvarpið, fjarri
glaumi samkvæmislífsins.
Svo að hjónaband virðist
ekki vera svo fjarri lagi. En
hvað með barneignirnar?
Það virðist vera annað mál.
„Ég held ég geti fullyrt að ég
muni ekki eignast börn,“
segir Oprah. „Mig skortir það
sem til þarf til að ala upp
börn á réttan hátt. Mér þætti
það ósanngjarnt að ala barn
við þær kringumstæður sem
ég bý við, það er ekki hægt
að ætlast til þess að barn
falli inn í minn lífsstíl."
Þess í stað beinir Oprah
öllum sínum kröftum að
meginástríðunni í lífi sínu,
starfinu. Hún er aldeilis ekki
að draga saman seglin. í
miðborg Chicago rekur hún
Harpo tökuverið (nafnið er
hennar eigið, lesið aftur á
bak), þar sem er að finna
sjónvarpsupptökusali, sem
og þrjá kvikmyndatökusali,
auk þess sem hún er með -
nema hvað - fullkomna lík-
amsræktarstöð fyrir sig og
36 VIKAN 8. TBL. 1995