Vikan - 20.08.1995, Blaðsíða 58
PERSÓNULEIKAPRÓF
SÖNNÁSTEDA
STUNDARHRIFNING?
Hér er ofurlítið próf fyrir ungar stúlkur,
sem eru í giftingarhugleiðingum. Svarið
spurningunum, leggið saman stigin og
fáið síðan úr því skoriö hvort heppilegt
sé að giftast elskhuganum eða ekki.
Sumarást heitir það. Þú
verður skyndilega ástfangin
af einhverjum manni, sem
þú hefur kynnst, og þér
finnst að þú getir ekki án
hans verið í svo mikið sem
eina viku. Sumar rjúka í að
gifta sig í þannig tilfellum;
stundum blessast það og
stundum ekki.
Áður en þú tekur svo ör-
lagaríka ákvörðun skaltu
gera þér fyllilega grein fyrir
því hvort þú vilt vera með
þessum manni það sem eftir
er ævinnar - honum og eng-
um öðrum. Þetta litla próf
getur ef til vill hjálpað þér að
taka þá miklu ákvörðun.
1. Hve lengi hefur þú þekkt
hann?
a) Eina eða tvær vikur.
b) Um það bil eitt ár.
c) Nokkra mánuði.
d) Tvö ár eða meira.
2. Hvernig smekk hefur
hann? (Gerðu kross við
það sem þú veist um.)
a) Vill hann hafa kaffið með
eða án rjóma?
b) Notar hann rafmagnsra-
kvél eða venjulega?
c) Tekur hann steypibað
fram yfir venjulegt bað-
karsbað?
3. Hvers konar húsdýr á
hann?
a) Páfagauk eða kanarífugl.
b) Kött.
c) Hund.
d) Hest.
e) Gullfiska.
f) Ekkert.
4. Hvaða hugmyndir hefur
hann um stærð væntan-
legrar fjölskyldu?
a) Eitt barn.
b) Tvö börn.
c) Ekkert barn.
d) Sex börn.
e) Son og erfingja framar
öðru.
5. Þegar þú heimsækir
hann, hefur þú tekið eftir
hvort hann...
a) Hjálpar til við uppþvott-
inn?
b) Býr um sig sjálfur?
c) Dregur gluggatjöldin fyrir
þegar dimmir?
d) Þurrkar af og ryksugar?
e) Setur í þvottavélina?
f) Hefur þú nokkurn tíma
komið heim til hans?
6. Hefur þú nokkru sinni
séð hann við svo óróman-
tískar aðstæður sem. . .
a) Órakaðan?
b) Óhreinan eftir viðgerðir
eða þess háttar?
c) Veikan í rúminu?
d) í gömlum, tilfallandi
klæðnaði?
7. Hvernig gengur hann frá
baðherberginu?
a) Handklæðið er nærri sót-
svart.
b) Tappinn er óskrúfaður á
tannkremstúpuna en
annars allt i lagi.
c) Allt er hreint og fágað fyrir
þann næsta.
d) Veit ekki.
8. Kyssir hann þig:
a) í hvert skipti sem þið hitt-
ist?
b) Oft - óþarflega oft?
c) Bara góða nótt?
d) Næstum aldrei?
9. Hve oft átt þú frum-
kvæðið að kossi?
a) Einu sinni eða tvisvar í
viku.
b) Einu sinni eða tvisvar
þegar þið eruð saman.
c) Aldrei.
10. Veistu til þess að hann
hafi nokkru sinni:
a) Keypt blóm handa móður
sinni?
b) Boðið föður sínum upp á
glas?
c) Gefið peninga til góð-
gerðarstarfsemi?
d) Hjálpað gamalli konu,
blindum eða litlu barni yfir
götu?
11. Hvaða skoðanir hefur
hann á útivinnu giftra
kvenna? Vill hann að þú:
a) Vinnir alls ekki úti eftir að
þið eruð gift?
b) Haldir áfram að vinna
eins og ekkert hafi ískor-
ist?
c) Vinnir aðeins hálfan dag-
inn?
12. Hve oft heldur þú, að
hann vilji fara út með
strákunum eftir að þið er-
uð gift?
a) Einu sinni í viku.
b) Til að spila eða horfa á
fótbolta þrisvar - fjórum
sinnum í viku.
c) Aðeins er þú getur farið
með.
d) Aldrei.
13. Hefur hann sagt þér:
a) Að hann hafi verið ást-
fanginn áður?
b) Að þú sért fyrsta stúlkan
sem hann hafi verið
með?
14. Man hann eftir:
a) Deginum sem þið kynnt-
ust?
b) Afmælisdeginum þínum?
c) Uppáhaldssúkkulaðinu
þínu?
d) Að gefa þér blóm?
15. Manst þú eftir:
a) Augnalitnum hans?
b) Seinna nafninu hans;
(t.d. Jón Pétur Jónsson?)
c) Bílnúmerinu hans?
d) Þegar þið hittust í fyrsta
skipti?
16. Þegar þið eruð úti
ásamt fleira fólki, ertu þá:
a) Stolt af honum?
b) Afbrýðisöm yfir hvernig
aðrar stúlkur horfa á
hann?
c) Hrifin af hnyttni hans?
d) Þreytt á endaleysunni í
honum?
17. Ef vinna hans krefst
þess að hann þurfi að
dvelja úti á landi í nokkurn
tíma, hvað ætlar þú þá að
gera á meðan?
a) Nota tímann til hreingem-
inga og fyrir sjálfa þig.
b) Fara heim til mömmu.
c) Skemmta þér með gömlu
vinkonunum.
d) Fara út með gömlum vini.
18. Hefur þú nokkurn tíma:
a) Æft þig í að skrifa nafnið
hans?
b) Bakað uppáhaldskökuna
hans?
c) Prjónað handa honum
vettlinga eða sokka?
d) Eldað mat handa hon-
um?
19. Taktu vel eftir hvort:
a) Hann hefur kímnigáfu.
b) Hann hefur allt á hornum
sér gangi eitthvað úr-
skeiðis.
c) Hann talar of hátt og mik-
ið.
d) Hann er algjörlega galla-
laus.
20. Að lokum - svaraðu nú
af bestu samvisku - hvers
vegna viitu gifta þig?
a) Til að sýna stöðu þína í
þjóðfélaginu.
b) Öðlast öryggi.
c) Eignast börn.
d) Fá félagsskap.
e) Af ást.
Leggið nú saman stigin:
1. a-6, b-4, c-2, d-1.
2. Gefðu þér eitt stig fyrir
hvert rétt, og tvö fyrir hvert
rangt eða „veit ekki“.
3. a-1, b-3, c-3, d-1, e-1, f-4.
4. a-4, b-3, c-6, d-5, e-1.
5. a-2, b-1, c-2, d-1, e-1, f-6.
6. Eitt stig fyrir hvert já.
7. a-4, b-3, c-2, d-1.
8. a-3, b-2, c-1, d-4.
9. a-3, b-6, c-0.
58 VIKAN 8. TBL. 1995