Vikan - 20.08.1995, Side 59
10. Eitt stig fyrir hvert já.
Sex stig ef öll svörin eru nei-
kvæð.
11. a-4, b-6, c-2.
12. a-3, b-4, c-2, d-1.
13. a-1, b-6, c-3.
14. Eitt stig fyrir hvert já.
15. Eitt stig fyrir hvert já.
Sex stig ef öll svörin eru nei.
16. a-4, b-6, c-2, d-1.
17. a-3, b-4, c-2, d-1.
18. Tvö stig fyrir hvert já.
19. a-1, b-3, c-1, d-1, e-6.
20. a-5, b-1, c-1, d-3, e-4.
Og hér er svo útkoman:
91 stig eöa meira: Þú ert
svo ástfangin af honum að
þú getur með engu móti
komið auga á þá galla, sem
hann kann að hafa, eða þá
að hann er algjört ofurmenni
á öllum sviðum (sem er
heldur ósennilegt). Fyrsta ár
hjónabandsins svífur þú um
á nokkurs konar himna-
sæng, en þór er betra að
þekkja kosti hans og galla
og kunna að meta þá á
raunsæan hátt. Auðvitað
verður allt ákaflega spenn-
andi í byrjun en smátt og
smátt tekur við grár hvers-
dagsleikinn.
50-90 stig: Vertu nú ekki
leið yfir að þú skulir sjá galla
hans því það þýðir alls ekki
að þú elskir hann ekki. Þú
elskar hann mjög heitt en ert
kannski heldur smámuna-
söm. Þetta er sennilega al-
besti grundvöllurinn að vel-
heppnuðu hjónabandi.
25-50 stig: Sestu aðeins
niður og hugsaðu þig um. Þú
ert hrifin af honum, en þú
elskar hann ekki. Auðvitað
getur þessi hrifning þín þró-
ast í ást með tímanum, en þú
skalt ekki ana út í hjónaband
sem þú átt kannski síðar eftir
að harma. Bíddu heldur að-
eins, en ef þú vilt endilega
gifta þig þá skaltu gera það -
það er oft þess virði.
24 stig og minna: Þú ert
ástfangin af kærleikanum en
ekki honum, og ástæðan til
þess að þú vilt gifta þig er sú
að þig langar í gullhring.
Mundu að hjónaband er ekki
aðeins það að eiga fallegt
heimili og ala upp börn. Það
er félagsskapur sem á að
vara til staðar það sem eftir
er ævinnar. Reyndu að end-
urskoða afstöðu þína og sjá
hvort þú sérð ekki eitthvað
meira við hann en banka-
bókina hans og öryggið sem
hann veitir. □