Vikan - 03.12.1998, Page 26
Hjúpterta
Tertubotn:
3 stór egg
11/2 dl sykur
1 dl hveiti
3/4 dl kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
Aðferð: Þeytið egg og sykur þar
til það er orðið ljóst og létt. Sigtið
saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og
blandið varlega saman við eggjamassann.
26
Hitið ofninn í 175°C og
hellið deiginu í vel smurt
tertuform, 24 sm í þvermál.
Bakið í 25 - 30 mínútur eða
þar til botninn er orðinn
ljósbrúnn að lit. Kælið bo-
tninn í forminu og hvolfið
honum síðan á bökunarrist.
Lækkið hitann á ofninum í
140°C og bakið marengs-
botninn.
Marengsbotn:
3 meðalstórar eggjahvítur
11/2 dl sykur
Aðferð: Stífþeytið eggja-
hvítur og sykur. Sett í ter-
tuform, 24 sm í þvermál,
klætt með bökunarpappír.
Bakist í 1 klst. við 140°C.
Gott er að láta marengs-
botninn kólna í ofninum.
1/2 1 rjónii
Aðferð: Þeytið rjómann.
Setjið helminginn ofan á
tertubotninn og marengs-
botninn þar ofan á. Þá er
hinum helmingnum af rjó-
manum smurt yfir marengs-
inn og niður með hliðunum.
Knem:
3 eggjarauður
3 nisk. flórsykur
100 g brætt súkkulaði
2-3 insk. rjómi
Aðferð: Bræðið súkkulað-
ið yfir vatnsbaði. Stífþeytið
eggjarauður og flórsykur.
Hrærið brædda súkkulað-
inu varlega saman við. Þá
er kremið þynnt með rjóm-
anum. Ef kremið er ennþá
of þykkt þá bætið aðeins
meiri rjóma saman við.
Kreminu er síðan smurt yfir
alla tertuna og niður með
hliðunum. Best er að láta
tertuna standa yfir nótt, eða
lágmark 6 - 8 klst.
lil sknauts:
Bræddu súkkulaði er
penslað á smjörpappír
(stakar strokur). Látið
storkna og takið varlega af
pappírnum. Þá er kakan
skreytt með því.