Vikan - 03.12.1998, Blaðsíða 40
s
Idesemberbyrjun fara
margir að huga að
smákökubakstrinum og
gjarnan er það svo að
heimilisfólkið er íhaldsamt
og það vill sömu smákök-
urnar ár eftir ár. Þá er bara
að verða við ósk þess, en
ekki er vitlaust að prufa
eina nýja tegund um hver
jól. Möndlu/súkkulaði kök-
urnar eru nauðsynlegar á
smákökuborðinu hver jól
og svo er einnig um korn-
flexkökurnar en krakkarnir
elska þær. Kókostopparnir
eru bæði fallegir og þragð-
góðir og piparkökurnar
koma börnunum í jólaskap,
enda gaman að föndra við
þær. Að þessu sinni er til-
valið að prófa nýja köku-
tegund, ostakökur, en þær
eru upplagðar fyrir einstak-
linga sem þurfa sykurskert
fæði, eins og algengt er
með eldra fólk.
Qstakökup
150 g snijör
200 g ostur ( 26%)
250 g hveiti
2 dl rjómi
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 egg til penslunar
Osturinn er rifinn
með járni fremur
smátt. Smjörinu og
ostinum er hrært sam-
an, síðan er hveitinu
og kryddinu bætt út í
og að lokum rjóman-
um. Ath. að hræra
ekki of mikið!.
Setjið bökunarpapp-
ír á plötu. Hitið ofn-
inn 180 °C. Formið
flangar litlar lengjur
og raðið á plötuna,
penslið með egginu og
stráið e.t.v. niðurrifn-
um osti ofan á hverja
köku. Bakist í miðjum
ofni þar til kökurnar
eru orðnar aðeins lit-
aðar að ofan.