Menntamál - 01.04.1926, Síða 4
MENTAMÁL
98
Jón Þórarinsson
fræðslumála.stjóri.
F. 24. febrúar 1854. — D. 12. júní 1926.
Jón Þórarinsson fræðslumálastjóri varð bráðkvaddur laug-
ardaginn 12. júní, sifidegis. Dauðann bar ekki óvænt að dyr-
um. Hann hafði verið lasburða síðasta árið og lojóst við dauða
sínum á hverri stundu. Mátti aðdáanlegt heita, hversu lítiÞ
varð vart lasleika hans, er maður hitti hann, og hnignun var
enga að finna í viðtali. Jón Þórarinsson var fæddur á Melstað
24. febrúar 1854. Faðir hans var Þórarinn prófastur Böövars-
son Þorvaldssonar sálmaskálds, og móðir Þórunn Jónsdóttir,
systir síra Halldórs á Hofi i Vopnafiröi. Jón var á fyrsta
ári, þegar fööur hans var veittur Vatnsfjörður, og ólst hann
])ar upp ])angað til 1868, er faöir hans fjckk Garða á Álfta-
nesi. Hann útskrifaöist úr latínuskólanum 1877, tók heim-
spekipróf viö Hafnarháskóla 1878. Þar lagði hann um skeiö
stund á guðfræöi, en vjek frá ])ví ráöi og tók aö kynna sjer
uppeldisfræði og skóla'mál. 1882 gerðist hann forstööumaði-i1'
Flensborgarskólans, sem þá var stofnaður. Var það eingöngu
verk þeirra feðga, síra Þórarins og Jóns sonar hans, aö sa
skóli komst á fót. Þeir fegðar voru einkar samhentir um af-
skifti af opinberum málum og brautryöjendur í fræöslu- °S
vegamálum. Sat Jón á þingi fyrir Gullbringu- og Kjósar-
sýslur frá 1886—1899. 30. maí 1908 var Jón Þórarinsson skip"
aður fræðslumálastjóri, samkvæmt lögum um fræöslu barna
frá 1907. Átti hann við mikla ‘örðugleika að stríða og skiln-
ingsleysi, við bæði þau höfuðviöfangsefni, sem lífið fjekk hon-
um í hendur, eöa rjettara sagt, sem hann kaus sjer aö lífs"
starfi; ])ví hann rak ekki á reiðanum upp aö þessum lönd-
um, heldur kaus hann sjer þessi lífsstörí, þrátt fyrir hina örð-
ugu aðstöðu, sem honum var ljóst, aö brautryðjendur 1
fræöslumálum myndu eiga við að búa. Verður beggja ])eás-
ara höfuöverkefna hans minst nánar í þessu riti síðar. Áð