Menntamál - 01.04.1926, Blaðsíða 9

Menntamál - 01.04.1926, Blaðsíða 9
MENTAMÁL 103 Þaö var einnig nýung hjer á landi. En umfram alt lá honum þaö ríkt á hjarta, aö námsfólk í skóla sínum yröi fyrir 'hollum áhrif-um einurn til lifsskoöunar og siögæöa. Hann treysti ekki neinni þekkingu nje skilningi þar til leiösagnar út af fyrir sig. Ef þau eiga aö vera þar ein um hituna, keraur aö því er skákl- ið segir: „Þar ristir máttug hönd á veginn varnaö : án vega- Ijrjefs vors hjarta er leiöin töpuö.“ Frá allri framkomu sjálfs hans viö námsfólkiö stöfuðu holl áhrif til siðgæða. Hann var mjög laginn kennari, og sýnt um að stjórna. Hann kunni lag á.því, að gera það svo, að hlýðnin var Ijúf og af fúsu geði látin í tje, því aö nemendur unn'u honum og virtu hann. Þeir fundu í senn til yfirburða hans og góðvilja í hverju boði og banni, og framgangan öll sköruleg og prúðmarinleg, svo að ])ar fanst hvergi blettur nje hrukka. Hann var frjálslyndur og nærgætinn i stjórn sinni, en rjettvís um leiö og óvilhallur. Það þurfti enginn aö efa, að leiöin til aö þóknast honum var sú, að gera skyldu sína og verða aö manni. Eiris og alkunnugt er var það eitt mál annað en fræöslu- málin, sem hann bar sjerstaklega fyrir brjósti til æfiloka og var ]iar löngum íorgöngumaöur. Þaö var dýraverndunarmál- ið. En það eru tengsl á milli þessara tveggja mála meir en virðast kann i fljótu bragði. Auðvitað var harin svo hjarta- góður maður, að hann vorkendi öllum, sem áttu bágt, hvort sem voru menn eða málleysingjar, öllum smælingjum, og allir, sem þektu hann vita, aö hanri var skepnuvinur hinn mesti. Þaö var ósvikin vinátta með honum og hestunum hans. En hjer l)jó einnig meira undir. Harin talaöi ekki máli skepnanna ein- göngu þeirra vegna, heldur lika vegna mannanna sjálfra, og þá einkum harna og unglinga. í hans augum, eins og líklega flestra manna, sem um þau efni hugsa, er höfuðþáttur upp- eldisins siðferðisáhrifin og s a m ú ð með öllu, sem lifir, meg- inatriði þeirra. „Sá sem vekur hjá oss samúð, gerir oss betri menn og dygðugri." Börnum er sjerstaklega eðilegt að þykja vænt um skepriur, og eitthvert hezta ráð til að innræta þeim mannúð og mildi, að venja ]rau á að vera góð við þær. —-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.