Menntamál - 01.03.1932, Side 18
64
MENNTAMÁL
Bókin er mjög álitleg. ÆfintýriíS er fjörlega og skemmti-
lega skrifað, og myndirnar eru skýrar og fallegar. En óneit-
anlega er Ijókin dýr eftir lesmáli því, sem í henni er, og mun
það vera vegna myndanna, sem fylla mikinn meiri hluta bók-
arinnar. J. S.
Skinfaxi,
blað „U. M. F. í.“ MeÖ byrjun þessa árs hóf Skinfaxi um-
ræður um uppeldismál. Birtist í i. tölublaðinu grein eftir Sig-
urS Thorlacius skólastjóra í Reykjavík, sem hann nefndi: „Hvert
stefnir í uppeldismálum samtíðarinnar ?“ Greinin fjallar um
tilraun, sem Washburnes skólastjóri í Winnetka í Ameríku hef-
ir gert í því skyni, að fá merkustu hugsjónamenn heimsins til
að láta uppi álit sitt á því, hvert stefna beri með framtíðarupp-
eldi þjóðanna. Kennarar ættu að kynna sér grein þessa.
/. ó\
Námsstjórar
munu flestir fara eftirlitsför um héruð sín í þessum mánuði. Eftirtaldir
kennarar hafa verið skipaðir námsstjórar: Steingrímur Arason, í Reykja-
vik. Helgi Hjörvar, í kaupstöðum utan Rvíkur. Bjarni M. Jdnsson, í
Gullbfingu- og Kjósarsýslu. Hervald Björnsson, í Borgarfjarðarsýslu.
Sveinbjörn Jónsson, i Snæfellsnessýslu. Jóhannes B. Jónsson úr Kötlum,
í Dalasýslu. Hjörtur Hjálmarsson, í A.-Barðastrandarsýslu. Jónas Magn-
ú'sson, í V.-Barðastrandarsýslu. Friðrik Hjartar, í V.-ísafjarðarsýslu.
Björn H. Jónsson og Gunnar A. Jóhannesson, í N.-ísafjarðarsýslu. Guð-
mundur Þ. Guðmundsson og Bjarni Þorsteinsson, í Strandasýslu. Guð-
mundur Björnsson, í V.-H'únavatnssýslu. Kristján Sigurðsson, í A.-Húna-
vatnssýslu. Friðrik Hansen, í Skagafjarðarsýslu. Snorri Sigfússon og
Einar M. Þorvaldssion, í Eyjafjarðarsýslu. Egill Þorláksson, í S.-Þing-
eyjarsýslu. Dagur Sigurjónsson, í N.-Þingeyjarsýslu. Lúðvík Þorgrims-
son, í N.-Múlasýslu. Sigdór Brekkan og Eiður Albertsson, í S.-Múlasýslu.
,Óli Kr. Guðbrandsson, i A.-Skaftafellssýslu. Halldór Sölvason, í V.-
Skaftafellssýslu. Sigfús Sigurðsson, í Rangárvallasýslu. Ingimar Jóhanns-
son og Þorvaldur Sigurðsson, í Árnessýslu.
Menntamál. Verð 5 ltr. árg. Afgr. i Arnarhvoli. Sími Arnarhvoll.
Félagsprentsmiðj an.