Menntamál - 01.12.1951, Side 5

Menntamál - 01.12.1951, Side 5
menntamál 123 til engar bækur. Ég sagði nemendunum þetta fyrir fram, en þeir létu það sízt á sig fá. Ein ástæðan til þess, að ég gerði þessa tilraun, var sú, að ég minntist ykkar á íslandi og þess skorts á handbókum, sem þið eigið við að etja. Ég man, að þú, Jónas, talaðir oft um það atriði. Þess vegna ákvað ég að leggja út í eitt verkefni bókalaust. Og mér til mikillar undrunar tókst þetta og tókst vel. Þegar við ræddum verkefnið í fyrstu, sögðu nokkurir drengir: „Við getum farið út og skoðað það, sem við eig- um að skýra frá.“ Báðu margir flokkar um ,,útgönguleyfi“. Sumir kváðust mundu skoða Hallarskóginn, aðrir Gathen- hjelmshúsið, enn aðrir norðurbæinn o. s. frv. Ég sat eftir í skólastofunni og spurði og spáði, hversu þetta mundi takast. En þegar drengir áttu að gera grein fyrir því, sem þeim hafði tekizt að viða að sér, varð ég, eins og ég áður sagði, öldungis forviða. Greinargerð þeirra var ágæt, reglulega skemmtileg. Og sem sagt bókalaust! Þetta er líka hægt. Það þarf aðeins að vekja löngun hjá börnunum til þess að leita, þá finna þau margt athyglisvert, sem þau geta skipað saman í heild, þegar þau eiga að skýra sam- bekkingum og kennara frá niðurstöðum. Ég man, að ég var sjálfur að hugsa um, hvað þau mundu geta sagt um verkefni eins og Hallargarðinn. Mér þótti ekki líklegt, að þar yrði „um auðugan garð að gresja.“ En þetta reyndist á annan veg. Ég hef aldrei heyrt jafngóða og skipulega lýsingu á því, sem garður sá hefur á boð- stólum! Sem sé: vekið rannsóknarlöngun barnanna — og leyfið þeim að vinna verkið eins og þeim er eðlilegt. M. a. gerðu þeir grein fyrir trjágróðrinum, spendýrunum, fugl- unum o. s. frv. Þeir lýstu hverju dýri um sig, nefndu nafn þess, ræddu, hvaða fæða hæfði bezt hverju og einu. Þeir höfðu leitað í dýramyndasafni skólans og sýndu myndir af dýrunum, um leið og þeir lýstu þeim. — Þeir lýstu ýms- um gömlum byggingum, tjörnum o. fl. o. fl. Það vgeri freistandi að segja nákvæmlega frá því, hvern-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.