Menntamál - 01.12.1951, Blaðsíða 22
140
MENNTAMÁL
„Það er rétt. Stjórnir lestrarfélaganna ráða vali bók-
anna, en senda sem fyrr var getið nákvæma skýrslu um
starfsemina, m. a. um bókakaup, hvaða bækur eru keypt-
ar o. s. frv. Yfirleitt virðist val bókanna sæmilegt og oft
gott. Frumsamdar íslenzkar bækur eru yfirleitt látnar
sitja í fyrirrúmi."
„Hver var úthlutunarupphæðin til lestrarfélaganna árið
sem leið?“
„Rúmlega 149 þús. krónur.“
„Eftir því má áætla, að varið hafi verið til bókakaupa
lestrarfélaganna um 300 þús. króna árið sem leið.“
„Telja menn þenna stuðning mikils virði?“
„Vissulega. Lestrarfélögunum er með fjárframlögum
úr styrktarsjóðnum veittur mikilvægur stuðningur. Eng-
inn vafi er á því, að mikill fjöldi lítt efnaðs fólks á þess
kost vegna starfsemi lestrarfélaganna að lesa margar
góðar bækur, sem menn ella myndu aldrei fara höndum
um, og við aukinn lestur góðbóka mun hollur lestraráhugi
aukast. — Að lokum vil ég vekja athygli á, að aukastyrk-
urinn, sem við vikum að, hefur þau áhrif, að félög sem
starfa vel, eiga meiri stuðning vísan en önnur.“
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA OG
LANDSAMBAND FRAMHALDSSKÓLAKENNARA
Ritstjóri: Ármann Halldórsson.
Útgáfustjórn: Arngrimur Kristjánsson, Guðmundur Þorláksson,
Pálmi Jósefsson og Steinþór Guðmundsson.
PRENTSMIÐJAN ODDI H.F.