Menntamál - 01.12.1951, Side 14

Menntamál - 01.12.1951, Side 14
132 MENNTAMÁL manna í Reykjavík hefur hann verið mjög starfsamur félagi. Og hann er hvarvetna góður félagi, áhugasamur og ósérhlífinn. Hann er jafnan hress í bragði, léttur í máli og hefur gaman af að láta fljúga í kviðlingum að góðum íslenzkum sið, enda mun hann einn hinna fáu íslenzkra kennara, sem lagt hefur stund á að kenna nemendum sín- um þá göfugu íþrótt. Menntamál hafa sérstaka ástæðu til að árna honum heilla og þakka honum sívakandi umhyggju í þeirra garð. Ingimar er kvæntur Solveigu Guðmundsdóttur frá Há- eyri, og eiga þau 4 uppkomin börn, 3 dætur og einn son. Á. H. Olaf Aasgaard skólaeftirlitsmaður í Þrándheimi hefur átt viðtöl við ýntis bliið þar í bæ um íerðalag sitt til íslands s. 1. haust. Lætur hann liið bezta af ferðum sínum. Verður honum tíðræddast um þá miklu áherzlu, sem lögð er hér á íþrótta- og söngkennslu í skólum. Einnig dáist ltann mjög að skólahúsunum nýju. Hann rómar og viðtökur allar. Um útgáfu Menntamála. Þetta síðasta hefti árgangsins 195) er tilbúið í síðara lagi. Stafar það af því, að varlegra þótti að gera sér grein fyrir afkomunni, áður en bætt yrði við einu hefti. Eins og kunnugt er, hefur útgáfukosnað- ur hækkað verulega s. I. ár, en áskriftagjöld staðið í stað. Af þeim ástæðum reyndist ókleift að gefa út jafnmikinn arkafjölda og í fyrra. Um útgáfuna 1952 er ýmislegt í óvissu enn, t. d. hvort um hana verður samvinna milli S. í. B. og L. S. F. K. eins og undanfarin tvö ár. En væntanlega koma Menntamál út á árinu, þótt eitthvað verði þau að draga saman seglin.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.