Menntamál - 01.12.1951, Blaðsíða 17

Menntamál - 01.12.1951, Blaðsíða 17
menntamál 135 Á að gefa vitnisburð fyrir mannlegar dygðir? í síðasta hefti Menntamála ritar Guðmundur M. Þor- láksson kennari þarfa hugvekju, þar sem hann leggur ríka áherzlu á þá margumræddu skyldu skólanna að efla manndóm nemendanna engu síður en kenna þeim „fræð- in“. Þetta eru sannindi, sem verða aldrei um of brýnd fyrir okkur, sem að uppeldismálum störfum. Svo að skól- unum megi takast betur að rækja þessa skyldu, leggur hann til, að gefinn verði vitnisburður fyrir „iðkun þeirra mannlegu dyggða, sem þjóðfélagið ætti að meta mest.“ Ég er ekki eins trúaður á þetta úrræði og G. M. Þ. og vildi láta það koma fram, einkum þar sem mér er kunnugt um, að skoðun hans á nokkurt fylgi meðal kennara. Ég get þó ekki rætt þetta mál nema stuttlega, að minnsta kosti ekki að þessu sinni. Mig langaði aðallega að vara við einni hættu, sem slíkur vitnisburður hefur í för með sér: Þeir nemendur, sem yrðu fyrir því að fá lága einkunn í þess- um efnum, mundu snúast öndverðir gegn kennurum og skóla. Það er miklu viðkvæmara mál að fá lakan dóm um mannorð sitt en kunnáttu, auk þess sem það er stórum erfiðara að finna skynsamlegar forsendur fyrir slíkum dómi. Að minni hyggju er það afar erfitt cg jafnvel ókleift. Að minnsta kosti þarf til þess mikla þekkingu á eðli mann- legra athafna og nákvæma rannsókn á eðli og aðstæðum þess, sem dæmast skal. Ef slíkir dómar leiða til þess, að börn snúi reiði sinni gegn skóla og kennurum, tel ég illa farið. Börn bæta aldrei framferði sitt fyrir áhrif frá öðrum en þeim, sem þau telja vini sína. Vitnisburðurinn getur því hæglega leitt til þess, að skólinn missi tök á því mannbótastarfi, sem á að vera mark hans og mið. ófullkomleiki okkar mannanna er mikill, en ef til vill hvergi meiri en í því efni að dærna rétt hver um annan,

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.