Menntamál - 01.02.1973, Side 8

Menntamál - 01.02.1973, Side 8
og sýnikennsla nægir ekki í þessu efni. Nemend- ur verða að fá lækifæri lil beinnar þátttöku í þessum störfum á raunverulegum vettvangi. 4. Grunnskólinn er, eins og áður segir, sú stofn- un þjóðfélagsins, sem ætlað er að búa alla undir líf og starf i þjóðfélaginu. Það varðar j)ví miklu, að hann reynist Jtessu mikilvæga hlut- verki trúr. Grunnskólinn er vafalaust fjölmenn- asti vinnuvettvangur i landinu. Sú hætta er jafn- an fyrir hendi, að á slíkum stöðum gleymist ein- staklingurinn og að hann hverfi í fjöldann. Það verður að gera grunnskólanum kleift að sinna þörfum hvers einstaklings, hvað sent það kann að kosta. Múgræn vinnubrögð við mótun og menntun ungmenna er alvarleg hætta, sem grunnskólinn verður að varast. Þjóðfélaginu er vissulega mikil hætta búin, ef fjöklaframleiðslu hugsunin markar störf skólanna. Vissuega er margt í jressu grunnskólafrumvarpi, sem hamlar gegn jtessari jsróun. S.Í.B. viil jtó leggja áherzlu á, að ýrnis skipulagsatriði skólastarfsins svo sem fjöldi nemenda í deild, skipulag sérkennslu, svig- rúm kennarans til einstaklingshjálpar, félagsráð- gjöf og tómstunda- og félagsmálastarf verður að framkvæma án nokkurrar tilslökunar, ef vel á að fara. Tillögur S. í. B. um breytingar á frumvarpi til laga um grunnskóla 2. gr Á eftir mótist af komi: en jafnframt festu og stjórn- semi. 3. gr. Fella niður: og skiptist í 1,—9. bekk. 4. gr. í stað 7 og 8 ára börn komi: 7—10 ára. 5. gr. f jíriðju síðustu línu í stað orðsins getur komi: skal. 7. gr. Sleppa lið a). 9. gr. Liður 1. á eftir — Sambandi ísl. sveitarfélaga komi: og tveim fulltrúum frá kennarasamtökunum. MENNTAMÁL 6 11. gr. Á eftir 5 mönnum komi: — Jrar af 4 kjörnum af við- komandi landshlutasamtökum og 1 kjörnum af kenn- .arasamtökum viðkomandi fræðsluumdæmis. Síðasta setning falli niður. 12. gr. Við 3. lið bætist: — kallar formenn skólanefndanna saman lil fundar a.m.k. einu sinni á ári, og boðar skólastjóra fræðsluumdæmisins til fundar a.m.k. tvisv- ar á ári. 13. gr. 3. málsgr. 3. lína: sleppa orðunum: — umdæmis og Jíörfum Jress. A eftir orðinu — skólamálum — í 3. línu komi: — og skulu jjeir umsækjendur einir hlutgengir, sem hafa rétt lil Jtess að vera skipaðir skólastjórar við grunnskóla og hafa gegnt starfi kennara eða skóla- stjóra í a.m.k. jrrjú ár. í staðinn fyrir: heimilt er að greiða komi: skylt er að greiða. 14. gr. Niður falli úr 1. mgr.: . . og skal búsettur J)ar, sem fræðsluskrifstoía umdæmisins er. 4. liður á eftir orðinu — nemenda — í 2. línu skal sleppa: — livort tveggja í samráði við skólarannsókna- deild menntamálaráðuneytisins. 16. gr. I síðustu málsgrein, 3. llnu á eftir orðinu — fræðslu- ráð — bætist við: — og viðkomandi skólanefndir. 17. gr. Á eftir orðinu — erindisbréf — í 3. málsgr. komi: Urn embættisgengi skólafulltrúa skulu gilda sömu reglur og um fræðslustjóra, sbr. 13. gr. 18. gr. 3. málsgrein á bls. 6 orðist svo: Skólastjóri hefur rétt til setu á skólanefndarfundum með mállrelsi og tillögurétti, Jjegar fjallað er um mál, sem varða skóla hans sérstaklega. 19. gr. 3. málsgr. I stað getur komi skal. 20. gr. 1 lok 2. málsgr. komi: Yfirkennari á sæti á fundum skólastjórnar með málfrelsi og tillögurétti. I 3. málsgr. breytist orðið — lokaúrskurður — í úr- skurð. 5. og síðasta málsgr. orðist svo: Skólastjóri boðar lil kennarafundar svo oft sem ]>urfa Jiykir og eigi sjaldn- ar en einu sinni í mánuði. Ennfremur er skólastjóra skylt að halda almennan kennarafund, ef þriðjungur fastráðinna kennara æskir jjess.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.