Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 19

Menntamál - 01.02.1973, Blaðsíða 19
•ið þeir þola enga l)ið, og er því nauðsynlegt, að lagaákvæði séu fyrir liendi uni tafarlausa fram- kvæntd. Öll sú starfsemi, sem um getur í greininni, fer nú frarn í skólunum, þó sennilega minnst starf- senti bókasafna. Ætti því ekki að þurfa að bíða með að hefjast handa og efla þessi störf, ef nægilegt fjármagn er fyrir hendi. í þessu efni vill S.Í.B. sérstaklega vekja athygli á, hversu stjórnvöld Iiafa að mestu vanrækt fram til þessa að veita fé til félagsstarfs með nemendum barna- skólanna. Eigi að síðnr hefur verið reynt að halda uppi félagsstarfsemi með þessum nemendum, en jrað Itefur að mestu leyti verið unnið af kennur- um endurgjaldslaust og í frítímum þeirra. Hér verður að breyta til skjótt, því að enginn vafi leikur á því, að þróttmikið félagsstarf er þrosk- andi og sennilega aldrei brýnni þörf en nú að leggja rækt við það í skólunum. Rétt er að benda á, að aukið félagsstarf í skólum krefst ekki meira húsnæðis en nú er fyrir hendi, því að þar sem hægt er að kenna er einnig unnt að halda uppi þróttmiklu félagslífi, ef fjármagn skortir ekki. Um 82. gr. Lagt er til, að ríkissjóður greiði einnig að sín- um hluta kostnað við endurnýjun kennslugagna. Þá telur S.Í.B. betra að setja reglugerð um bún- að skólabókasafna en binda það í lögum. Gera má ráð fyrir, að slíka reglugerð þurfi að endur- skoða, eftir því sem þessi starfsemi eykst og þró- ast. Um 84. gr. Vísast til uinsagnar um 53. gr. Um 85. gr. Breytingin miðar að því, að menntamálaráðu- neytið geri skólastjórum og skólanefndum skrif- lega grein fyrir þeim breytingum, sem það kynni að gera á áætluninni. Virðist hæfilegur frestur vera til 1. júní. Það er skoðun S.Í.B., að slík vinnubrögð séu nauðsynleg til þess að korna í veg fyrir ýmis konar ágreining og tortryggni. Um 88. gr. Gert er ráð fyrir allverulegri aukningu kennslu- stunda, sem heimilað er að nota til leiðbeinenda- starfs í kennslu og við það miðað, að fræðslu- héruð dreifbýlisins fái a.m.k. einn starfsmann í fullu starfi til að sinna slíkum þáttum. Með þessari tillögu er undirstrikað ntikilvægi þessa starfs, en kennsluleiðbeinendur tengja saman starf kennara og fagnámsstjóra menntamála- ráðuneytisins. Þá er lögð áherzla á það, að byggja upp kennslu- gagnamiðstöð við fræðsluskrifstofur, sem annist gerð og dreifingu kensluefnis og stuðli að góðri nýtingu kennslutækja. Frá L. S. F. K. Umsögn og ábendingar um frumvarp til laga um skólakerfi og grunnskóla Skólakerfi í fruv. til laga um skólakerfi, er skólakerfinu skipt í þrjú stig. Þar eru barna- og gagnfræðastig sameinuð í eitt stig, sem kallast grunnskólastig. í þesu frumvarpi felast tvær meginbreytingar, annars vegar lenging skólaskyldunnar um eitt ár og hins vegar er fjórði bekkur núverandi gagn- fræðastigs felldur niður. Gagnfræðaprófið gegndi veigamiklu hlutverki hér áður fyrr, bæði sem almenn undirbúnings- menntun til ýntissa starfa auk þess, sem það var tekið gilt sent nægur undirbúningur til að hefja nám í ýmsum framhaldsskólum. A síðustu áratugum hefur þróuitin ltins vegar orðið sú, að kröfur lil almennrar og sérhæfðrar menntunar hafa vaxið ört, og þar nteð hafa kröf- ur framhaldsskólanna varðandi undirbúnings- menntun nemendanna aukist. Atik þess hefur ríkt nokkurt frjálsræði í námsskrá gagnfræða- deildanna, sent hefur leitt til þess, að gagnfræða- prófið hefur haft mismunandi gildi sem undir- búningur að nánti á ósamræmdum námsbraut- unt framhaldsskólanna. Nú verður að gera ráð fyrir, að inntökuskil- yrði og námsbrautir framhaldsskólanna verði samræntdar þannig, að grunnskólanámið verði MENNTAMÁL 17 L.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.